Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1998, Blaðsíða 346
344 Tækni- og vísindagreinar
kvæðar eldingar einnig í miklum meirihluta.
Þetta er í samræmi við það sem áður var sagt að
hlutfallslega er meira um neikvæðar eldingar að
sumarlagi en að vetrarlagi, sbr. mynd 4. Tvær
jákvæðu eldinganna mælast þó langsterkastar
eða nálægt 170kA og 200kA og koma þær síðast
í þessari eldingahryðju.
Lokaorö
Aðdragandinn að eldingarannsóknum á Islandi
var alllangur. Mörg fyrirtæki á sviði raforkumála
og fjarskipta tóku þátt í þeirri vinnu. Þrátt fyrir
ýmsa byrjunarörðugleika við gangsetningu kerf-
isins hafa reglulegar mælingar á niðurslætti eld-
inga nú farið vel af stað og er þess að vænta að
þær muni koma að gagni í framtíðinni m.a. við
hönnun og rekstur raforkukerfisins.
Eldingamælingar munu væntanlega einnig verða vaxandi þáttur í reglulegum athugunum
Veðurstofu Islands og hjálpa til við að gefa heildstæða mynd af íslensku veðuifari og skýra hið
flókna samspil einstakra veðurþátta. Þá er líklegt að ílugmálayfirvöld og tryggingafélög muni
vilja nýta niðurstöður þessara athugana í vaxandi mæli í framtíðinni.
Samstarfsnefndin gaf út áfangaskýrslu um verkefnið í apríl 1998 [9] og er hún nú
aðgengileg öllum á Netinu. Veffangið er http://www.ve0ur.is/ta/elding. Þá voru fyrstu niður-
stöður úr verkefninu kynntar á alþjóðlegri ráðstefnu um eldingamælingar í Birmingham á
Englandi í september 1998 [10].
Heimildir
[1] Flosi H. Sigurðsson og Eyjólfur Þorbjörnsson: „Fjöldi þrumudaga á Islandi 1950-1989“.
Skýrsla. Veðurstofa íslands, 1990. (4 s)
[2] Þorbjörn Sigurgeirsson: „Jarðeðlisfræðirannsóknir í sambandi við Surtseyjargosið". Náttúru-
fræðingurinn, 35, s. 188-210, 1966.
[3] Anderson, R. o.fl.: „Atmospheric Electric Disturbances Produced by the Volcano at Surtsey,
Iceland". Science, 148, s.l 179-1189, 1965.
[4] Uman, M. A.: „The Lightning discharge". Academic Press, 1987.
[5] Helga Jóhannsdóttir: „Comparison of Lightning Location Systems". Skýrsla unnin fyrir Lands-
virkjun. Electric Power Engineering Department, Technical University of Denmark, 1993. (208 s)
[6] Þórður Arason: „Uppsetning eldinganema á íslandi". Skýrsla VÍ-G960229-TA02. Veðurstofa
íslands, 1996. (3 s)
[7] Menke, W.: „Geophysical Data Analysis: Discrete Inverse Theory“. Academic Press, 1984. (260 s)
[8] Passi, R. M. og López, R. E.: „A Parametric Estimation of Systematic Errors in Networks of
magnetic Direction Finders". J. Geophys. Res., 94, s. 13 319-13 328, 1989.
[9] Samstarfsnefnd um rannsóknir á eldingum: „Uppsetning á búnaði til mælinga og skráningar á
niðurslætti eldinga til jarðar á íslandi". Apríl 1998. (55 s)
[10] Þórður Arason: „Initial Results of the Icelandic Lightning Location Systcm". Proceedings of 24th
International Conference on Lightning Protecion, Birmingham, 14.-18. sept. 1998, s.241-244.
4
64° 30'N - - -- -- Ajf
\ r • °
64° 00'N -
63° 30N 4 I I 1 1 1 3—i 1—
23°V 22°V 21 *V 20°V 19°V