Neytendablaðið - 01.02.1996, Síða 24
Notkun hormóna í landbúnaði
Neytendur vilja blátt
bann við hormónum
Það er hægt að þéna mikla peninga með því að nota hormóna við land-
búnaðarframleiðslu. Þannig er hægt að auka kjötmagnið sem naut-
gripur gefur af sér um 10% og fitan minnkar um allt að 35% á 3-4 mánaða
vaxtartíma með notkun hormóna. En það er ekki aðeins í kjötframleiðslu
sem hormónar eru notaðir. í mjólkurframleiðslunni er víða notaður BST
hormónn til að auka nyt kúa.
Mikil umræða hefur
verið að undanfömu
um hvort heimila eigi
notkun hormóna í land-
búnaðarframleiðslu.
Slík notkun hefur lengi
verið lögleg í Banda-
ríkjunum, Astralíu og
víðar. í Evrópu hefur
notkunin hins vegar
verið bönnuð sem og
innflutningur frá lönd-
um þar sem hormóna-
notkun er heimil.
Bandarísk stjórnvöld
sækja það nú mjög fast,
eftir að nýi GATT-
samningurinn var stað-
festur, að litið verði á
innflutningsbannið sem
tæknilega viðskipta-
hindmn og því úr-
skurðað óheimilt sam-
kvæmt þessum nýja
samningi. I mörgum
Evrópulöndum hefur ólögleg
hormónanotkun einnig verið
veruleg, eins og raunar kom
fram í 2. tbl. Neytendablaðs-
ins á síðasta ári. í Belgíu var
til dæmis eftirlitsmaður með
notkun ólöglegra hormóna
myrtur fyrir nokkrum árum
þegar hann gerðist of að-
gangsharður við „horm-
ónamafíuna" sem svo hefur
verið nefnd.
Það er auðvelt að fylgjast
með því hvort náttúrulega
hormóna sé að finna í kjötinu.
En það er erfiðara að fylgjast
með því hvort magnið stafar
af því að dýrið framleiðir af
eðlilegum ástæðum meira
magn hormóna en venjulegt
er, eða hvort dýrinu hafa ver-
ið gefnir inn náttúrulegir
hormónar. Eftirlit með tilbún-
um hormónum er miklu erfið-
ara þar sem stöðugt eru þró-
aðar nýjar tegundir og því
verður sá sem fylgist með
notkuninni að vita nákvæm-
lega hvaða hormóna leita
skal. Einnig hefur verið á það
bent að með notkun náttúru-
legra hormóna verður enn erf-
iðara en ella að greina önnur
og hættulegri efni í rannsókn-
um á dýrum og kjöti. Vegna
erfiðleika við eftirlitið, bæði
að notaðir séu þeir hormónar
sem leyfilegir eru og í réttu
magni, hafa bæði Alþjóða-
samtök neytenda og Evrópu-
samtök neytenda, en Neyt-
endasamtökin eiga aðild að
báðum þessum samtökum,
krafist þess ítrekað að horm-
ónanotkun verði með öllu
bönnuð.
Vilja neytendur
hormónakjöt?
enáut°F
Ert þú
| orÖinngrœnn?
Félagsmenn í Neytendasamtökunum fá Grænu
B| bókina um neytendur og umhverfi á 796 krónur á
l| skrifstofu Neytendasamtakanna og á skrifstofum
Æ neytendafélaga á landsbyggðinni.
Neytendasamtökin
- þjónusta fyrir þig
Því er haldið fram að ekki sé
hægt að sýna fram á það með
vísindalegum rökum að notk-
un hormóna sé beinlínis skað-
leg neytendum. Neytenda-
samtök víða um heim segja
hins vegar að það sé ekki
þeirra að sanna slíkt, heldur
sé það þeirra sem slík efni
nota eða ætla að nota að
sanna óyggjandi á vísindaleg-
an hátt að efnin séu ekki á
neinn hátt skaðleg þeim sem
neyta vörunnar.
Neytendasamtök hafa
einnig bent á að þegar dýrin
eru neydd til að framleiða
meira en eðlilegt er, aukast
sjúkdómar hjá þeim og þar
með notkun fúkkalyfja. Þess
vegna sé notkun hormóna í
raun andstæð hagsmunum
24
NEYTENDABLAÐIÐ - Febrúar 1996