Neytendablaðið - 01.02.1996, Blaðsíða 29
Sigríður A.
Arnardóttir skrifar
skuldara, t.d. um veltu og skuldir hans hjá
bankanum. Hér er urn að ræða nauðsyn-
legar upplýsingar sem liggja þurfa fyrir
áður en tekin er ákvörðun um ábyrgðar-
skuldbindingu. Ábyrgðarmaðurinn á að
geta fengið upplýsingar um stöðu lánsins
og honum skal tilkynnt ef vanskil verða á
greiðslum lánsins.
Dómur Háraðsdóms Hafnarfjarðar
Nýlega var dæmt í Héraðsdómi Hafnar-
fjarðar í máli ábyrgðarmanns gagnvart
banka. Ábyrgðarmaðurinn hafði skrifað
undir óútfylltan víxil vegna yfirdráttar-
heimildar, hvað varðar útgáfudag, gjald-
daga og fjárhæð. Upphaflega hafði yfir-
dráttarheimildin verið 100.000 krónuren
rúmum fjórum árum síðar var hún komin í
3.000.000 krónur og að lokum greiddi
ábyrgðarmaðurinn um fimm milljónir
króna vegna ábyrgðarskuldbindingar sinn-
ar. Bankinn var sýknaður af kröfum
ábyrgðarmannsins. 1 niðurstöðu dómsins
kemur fram að ábyrgðarmaðurinn hefði átt
þess kost að takmarka ábyrgð sína með því
að hafa víxilinn að ákveðinni fjárhæð eða
takmarka ábyrgð sína samkvæmt umboði
en hvorugt hefði verið gert. Einnig hefði
ábyrgðarmaðurinn getað sagt upp ábyrgð-
Við sjálfskuldarábyrgð gengst
ábyrgðarmaður í ábyrgð fyrir
skuldbindingu eins og hún vœri
hans eigin skuld, þannig að ef
skuldin lendir í vanskilum er
hœgt að ganga að ábyrgðar-
manninum. Teikning: Sigurður
Valur.
inni. Engin lagaskylda hefði hvflt á bank-
anum að tilkynna ábyrgðarmanninum um
hækkun á yfirdráttarheimildinni.
Dómurinn sýnir hve staða ábyrgðar-
manna er veik. Engin upplýsingaskylda
hvflir á lánastofnunum gagnvart ábyrgðar-
mönnum, hvorki varðandi breytta stöðu
lána né er fyrir hendi almenn upplýsinga-
skylda um réttarstöðu ábyrgðarmanna.
Úrbóta er þörf
Neytendasamtökin leggja áherslu á að rík
upplýsingaskylda hvfli á lánastofnunum
gagnvart ábyrgðarmönnum og tryggja
þannig að þeir geri sér grein fyrir hvaða
skuldbindingar þeir eru að takast á hendur
og hver réttindi og skyldur þeirra séu.
Koma mætti þessum upplýsing-
um á framfæri í formi upplýs-
ingabæklinga sem hægt væri að
nálgast í afgreiðslu lánastofn-
ana.
Að auki þarf að tryggja vemd
ábyrgðarmanna með lögum.
Fyrirmynd að slflai lagavemd er
að finna á Norðurlöndum. Hér
væri um að ræða reglur um upp-
lýsingaskyldu banka áður en
skrifað er undir ábyrgðarskuld-
bindingu, lágmarkskröfur um efni láns-
samnings, um viðvömnarskyldu til
ábyrgðarmanna ef lánssamningur er van-
efndur, upplýsingar sem ábyrgðarmaður-
inn getur krafið bankann um og til-
kynnningar um breytingar á lánssamningi
svo dæmi séu tekin.
I desember á síðastliðnu ári var lögð
fram á Alþingi þingsályktunartillaga um
réttindi og skyldur ábyrgðarmanna vegna
íjárskuldbindinga einstaklinga. Það er því
von á að þetta svið neytendavemdar verði
tekið til skoðunar á næstunni og munu
Neytendasamtökin leggja áherslu á að sett
verði lagavemd á þessu sviði, til vemdar
ábyrgðarmönnum auk áherslu á almenna
upplýsingaskyldu frá hendi lánastofnana.
- Sigríður er lögfrœðingur
Neytendasamtakanna
NEYTENDASTARF ER íALLRA ÞÁGU
Nýja kökuhúsið
Austurstræti 8
101 Reykjavík
Sjónvarpsmiöstööin
Síöumúla 2
108 Reykjavík
Kaupfélag V.-Húnvetninga
530 Hvammstanga
Kaupmannasamtök íslands
Kringiunni 7
103 Reykjavik
Sparisjóöur Vestmannaeyja
Bárustíg 15
900 Vestmannaeyjum
Sportkringlan
Kringlunni 8-12
103 Reykjavík
Trésmíöaféiag Reykjavikur
Suöurlandsbraut 30
108 Reykjavik
Verkakvennafélagiö
Framtíöin
Strandgötu 11
220 Hafnarfiröi
Verkakvennafélagið Snót
Heiöarvegi 7
900 Vestmannaeyjum
Verkalýös- og sjómanna-
félag Sandgeröis
Tjarnargötu 8
245 Sandgeröi
Verkalýösfélag
Patreksfjaröar
Bjarkargötu 7
450 Patreksfiröi
Verkalýösfélagiö Súgandi
Aöalgötu 26
430 Suöureyri
Verkaiýös- og
sjómannafélag
Fáskrúösfjaröar
Skólavegi 72
750 Fáskrúösfiröi
Verkaiýösfélag Akraness
Kirkjubraut 40
300 Akranesi
Verkalýösfélag
Noröfiröinga
Egilsbraut 11
740 Neskaupstaö
Verkalýðsfélag
Vestmannaeyja
Miöstræti 11
900 Vestmannaeyjum
Verkalýðsfélagiö Hörður
Hvalfjaröarströnd
301 Akranesi
Verkalýösfélag
Raufarhafnar
Aöalbraut 27
675 Raufarhöfn
Verkamannafélagiö
Dagsbrún
Lindargötu 9
101 Reykjavík
Verkamannafélagiö Hlíf
Reykjavíkurvegi 64
220 Hafnarfiröi
Verslanir 10-11
Höfuðborgarsvæöinu
Verslun O. Ellingsen hf.
Crandagaröi 2
101 Reykjavík
NEYTENDABLAÐIÐ - Febrúar 1996
29