Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.05.1996, Side 7

Neytendablaðið - 01.05.1996, Side 7
Landbúnaður - úttekt I I Gríðarleg vonbrigði um bændasamtakanna, hve mikið kjöt megi selja á innanlandsmarkaði. Það er alkunna að ef einhver þekkir markað, og stjómar því að auki hve mikið er selt inn á hann, getur sá hinn sami ráðið verðinu sem ríkir á markaðnum. Reyndar em al- gengustu kennslubókardæmin um einok- un af þessu tagi: Þau lýsa einokara sem ákveður magnið beint en verðið óbeint. Því verður að vísu ekki haldið fram að bændasamtökin ráði kjötframboðinu í smæstu atriðum né heldur að þau þekki kjötmarkaðinn út í ystu æsar. Meira gæti farið í sölu á haustmánuðum en til stæði og auðvitað gætu menn misreiknað sam- drátt eða söluaukningu milli ára. Engu að síður er ljóst að fyrst landbúnaðarráð- herra getur ákveðið, að fengnum tillög- um bændasamtakanna, hversu mikið kindakjöt má selja innanlands, þá ræður ráðherrann í stóram dráttum söluverði kindakjöts. Það er að vísu rétt að engum er bannað að selja sitt kjöt fyrir lægra verð en takmarkað framboð tryggir hon- um. En þess konar verðlagningarfrelsi leiðir ekki til hagræðingar eða verðlækk- ana. En þeim sem halda að þess konar verðlagningarfrelsi leiði til hagræðingar og verðlækkana ætti að halda frá stjóm efnahagsmála. Nýja fyrirkomulagið þarf ekki að vera verra fyrir neytendur en það sem jákvætt viðhorf til samkeppninnar. Kenn- ingin um markaðsbrest og stjómsýslu- mistök greinir frá því að hagræðing og hagkvæmni í rekstri fer ekki saman við opinberan stuðning. Til skamms tíma litið er það mikil hagkvæmni fyrir bændur og aðra fram- leiðendur að fá opinberan stuðning, bæði á framleiðslustigi og markaðsstigi. En til langs tíma litið er það varasöm aðgerð. Framleiðendur landbúnaðarvara á íslandi eru of margir miðað við stærð markaðar- ins þannig að fækkun þeirra er óumflýj- anleg, það er spurning um tíma hvenær neytendur og aðrar atvinnustéttir krefjast þess að stjómsýslumistökin verði leiðrétt. Sigrún Halldórsdóttir hagfrœðingur (Unnið upp úr kandídatsritgerð í meistaranámi við Verslunarháskólann í Kaupmannahöfn, 1995; Agriculture in Iceland, External and Internal Influences on the Industry.) áður gilti: Þá var not- uð formúla til að fínna rétt kostnaðar- verð á kindakjöti en nú geta bændasamtök og ráðherra stefnt að því verði sem þeim finnst skynsamlegast. Það er alls ekki víst, og raunar heldur ólfk- legt, að það verð reynist hærra en það sem formúlan hefði ungað út enda leggja sauðfjárbændur mikla áherslu á að viðhalda markaðshlutdeild kindakjöts. Það væri líka ósanngimi að taka ekki fram að sitt- hvað í samningnum er til bóta. Verðlagn- ing og framboð á slátrun og heildsölu- þjónustu er gefið frjálst - í alvöru - og bændur geta ekki lengur látið sér standa á sama hvort innlagt kjöt selst eða þránar í birgðum. Sú fram- Eftir jóðsótt fjallsins fœddist minni háttar nagdýr með allan leiðsluskylda sem ættarsvip fyrri búvörusamninga, er dómur Markúsar um bú- bóndi þarf að upp- vörusamninginn. fylla til að fá greiðsl- ur úr ríkissjóði hefur verið lækkuð og mörg landbúnaðarstörf sem framast er það er líka spor í rétta átt. unnt. Óbreytt meginstefna Vandi sauðfjárbænda Það sem veldur vonbrigðum er ekki tæknilegu mistökin, óframkvæmanlegu ákvæðin og vitleysumar. Þau má leið- rétta og verður líklega gert þegar nauð- syn krefur. Stærstu vonbrigðin eru að sú meginstefna samningsins frá 1991 er óbreytt; að eins margir geti haft viður- væri sitt af framleiðslu sauðfjárafurða og framast er unnt með því að viðhalda eins mikilli innflutningsvernd og eins háum styrkjum og stjórnmálamenn framast þora að bjóða kjósendum og erlendum viðskiptaþjóðum upp á. Þótt fjandskapur- inn við hagræðingu og stækkun búa sé ekki samur og áður, og þótt kverkatökin á svína- og alifuglarækt hafi verið linuð, víkur áhugi stjómmálamanna fyrir hag- ræðingu og lækkun matvælaverðs enn fyrir viðleitni þeirra til að varðveita svo Vandi sauðfjárbænda er sá að vegna aukinnar framleiðni í greininni, vegna ódýrari aðflutninga, lækkandi verðs annarra matvæla og batnandi kjara í öðrum atvinnugreinum dugar kinda- kjötsmarkaðurinn þeim ekki lengur til viðunandi viðurværis. En allar þessar breytingar eru í eðli sínu framfarir þótt ábatanum væri misskipt ef þær væru látnar afskiptalausar. Þá yrði offramboð á verkkunnáttu bænda og hún snarfélli í verði. Þar með myndi búvöruverð hrynja og neytendur græða. Þegar nógu margir hefðu flúið greinina myndi bú- vöruverð aftur þokast upp á við í það horf að bændur þyldu við. Verð yrði þó lægra en fyrir hamfarirnar vegna fram- leiðniaukningarinnar. Svipuð atburða- rás fylgir trúlega flestum meiri háttar NEYTENDABLAÐIÐ - Maí 1996 7

x

Neytendablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.