Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.05.1996, Blaðsíða 11

Neytendablaðið - 01.05.1996, Blaðsíða 11
Landbúnaður - úttekt Siðfræði og jurtafæði Iskoðanakönnunum fyrir áratug sögðust heldur fleiri Bretar vera grænmetisætur en samkyn- hneigðir. Núna eru grænmetisæt- urnar þrisvar sinnum fleiri. Um helmingi fleiri konur heldur en karlmenn neyta jurtafæðu. Sam- kvæmt nýlegri könnun eru 24% breskra kvenna á aldrinum 18-24 ára jurtaætur. Hlutfallstalan hefur hækkað um 8% frá 1984. Á sama tíma hefur dregið úr kjötneyslu á mann í allri Evrópu. Orsakimar em af heilsufarsástæðum („jurtafæði er hollara og hreinna"), af efnahagsástæðum („kjöt- framleiðsla er misnotkun á auðlindum jarðar“), af pólitískum ástæðum (mót- mæli við landbúnaðarstefnu ESB sem hyglir kjötframleiðendum) og sxðast en ekki síst vegna dýravemdarsjónarmiða. Ástæðumar em oft hugmyndafræði- legar en sumir neytendur tengja kjöt að- allega við hugsanlega sjúkdóma, skað- lega hormóna og kólesteról. Úrval fitu- snauðrar grænmetisfæðu er langtum meira nú en fyrir 10 ámm. Meira fæðu- val og upplýsingar um bætiefni gera auð- veldara fyrir grænmetisætumar að forð- ast hörgulsjúkdóma. Alls konar grænmeti er nú fáanlegt allan ársins hring, ólíkt því sem áður var. Þróun í viðskiptum og flutningatækni hefur útrýmt hugtökum eins og „jarðarbeijatími“. „Sprenging“ hefur orðið í eftirspum eftir jurtafæði og alls staðar hafa konur forystuna. Kjötneysla hefur sérstaklega hrapað í Bretlandi og Þýskalandi. Ástæð- umar em blanda af áhuga á dýravemd og heilsuvemd neytendanna. Dauðsföll af völdum Kreutzfeldt-Jacobs-veiki, sem hugsanlega er tengd neyslu á kjöti af sýktum nautgripum (kúafárið, mad-cow disease), ollu miklum samdrætti í sölu áður en markaðurinn hmndi snögglega í mars 1996 jafnframt því sem alheimsút- flutningsbann var sett á breskt nautakjöt að undirlagi ESB. Siðfræði landbúnaðar hefur undanfar- in ár komist í kastljósið sem aldrei fyrr. Einkum er það í Bretlandi sem neytendur láta sig meira skipta velferð og „réttindi“ húsdýra. Þessi málefni hafa reynst póli- tískar og siðfræðilegar tímasprengjur, átök harðnað og ágreiningur reynst óbrú- anlegur. Upphaflega bar einna mest á þeim sem andmæltu loðdýraeldi til pels- framleiðslu. Síðan var ráðist gegn þröng- eldi alifugla og kálfa. En dýraverndarbar- áttan líkist snjóbolta sem hleður utan á sig og rennur æ hraðar. Sérfræðingar The Economist gera ráð fyrir því að almenningur muni í auknum mæli láta í sér heyra árið 1996 á vett- vangi dýravemdar og siðfræði í matvæla- framleiðslu. Stjómendur verslana vita hvað er á seyði og hafa þegar tekið að bregðast við. Verslunarfyrirtæki Mark’s & Spencer á Bretlandi hefur ákveðið að kosta kennaraembætti í „dýraheilbrigði" við Cambrigde-háskóla. Dýrt er að framleiða kjöt. Meiri hlut- inn af rými landbúnaðar og tveir þriðju hlutar koms em notaðir til að ala holda- gripi. Við þetta fara um 90% af hitaein- ingum forgörðum. Þrýstingur eykst á framleiðendur í Evrópu að taka í notkun hormóna í kjötframleiðslu. Matvæla- stofnun SÞ hefur fallist á notkun þeirra. Sprenging hefur oröið í eftir- spurn eftir jurtafæði og alls staðar hafa konur forystuna. Kjötneysla hefur sérstaklega hrapað í Bretlandi og Þýska- landi. Ástæðurnar eru blanda af áhuga á dýravernd og heilsuvernd neytendanna. Siðfræði landbúnaðar hefur undanfarin ár komist í kastljósið sem aldrei fyrr. Einkum er það i Bretlandi sem neytendur láta sig meira skipta velferð og „ réttindi“ húsdýra. Árið 1996 er reiknað með að fjórðungur aligripa í Bandaríkjunum sé alinn á þeim. Kínveijar flytja ekki inn kom sökum hungursneyðar eða fátæktar í landinu, heldur vegna hagvaxtar og aukinnar vel- sældar. Undanfarin fimm ár hefur orðið þriðjungs aukning á neyslu svínakjöts en tvöföldun á sölu nautakjöts, sem veldur hærra heimsmarkaðsverði á fóðri. Jarðar- búar snæða í heild sífellt meira af kjöti, mælt í magni á íbúa, sérstaklega kjúklinga og grísi. 1996 er gert ráð fyrir að jarðarbúar neyti 75 milljóna tonna af svínakjöti, sem er meira en samanlagt nauta-, kinda- og geitakjöt til manneldis. Bandaríkjamenn juku lítils háttar neysl- una á svína- og nautakjöti á þessum ára- tug. Heimildir: Agricultural policy in the European Union. The consumer agenda for reform. An analysis by the National Consumer Council, London 1995. The World in Figures: Industries: Agriculture. The Economist. The World in 1996. London 1995, 93. Matt Ridley: ,Man ’s meat, woman ’s veg. ” The Economist. The World in 1996. London 1995, 14-15. NEYTENDABLAÐIÐ - Maí 1996 11

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.