Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.05.1996, Blaðsíða 28

Neytendablaðið - 01.05.1996, Blaðsíða 28
vanskila og/eða frestun greiðslna þegar vanskil stafa af tekjulækkun vegna langvarandi veikinda, at- vinnuleysis eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum. Húsnæðisstofnun hefur á þessum forsendum heimild samkvæmt nýsettum lögum til að veita skuldbreyting- arlán til allt að 15 ára og að fresta greiðslum í allt að þrjú ár. Einnig er hægt að óska eftir því að fresta greiðslum áður en til van- skila kemur ef sýnt þykir að í óefni stefni verði ekk- ert að gert. Enn fremur hefur ríkis- stjórnin lagt fram þrjú ný lagafrumvörp til lausnar á þessum málum. Frumvarp til laga um réttaraðstoð við einstaklinga sem leita nauðasamninga, frumvarp til laga um breytingu á lög- um um Innheimtustofnun sveitarfélaga, vegna með- lagsskulda og frumvarp til breytinga á lögum um tekju- og eignarskatt sem fela í sér heimild inn- heimtumanna til að sam- þykkja nauðasamninga. Neytendasamtökin hafa á síðustu árum barist fyrir að sett verði lög um greiðslu- aðlögun en það er sú leið sem stjómvöld í nágranna- löndum okkar hafa valið. Stjórnvöld hér á landi hafa ekki fallist á þá leið. Neyt- endasamtökin hafa því ákveðið að styðja leið stjórnvalda um réttaraðstoð til einsstaklinga til að leita nauðasamninga vegna þess gríðarlega vanda sem mörg heimili búa við. Ef sú til- raun tekst ekki með þeim hætti sem til er ætlast vænta Neytendasamtökin þess að sett verði lög um lögþvingaða greiðsluaðlög- un. Neytendasamtökin leggja jafnframt áherslu á að leitað verði fleiri úrræða til að leysa greiðsluvanda heimilanna í landinu og þar hafa samtökin bent á fjöl- margar leiðir á undanförn- um árum. Þuríður er starfsmaður NS og stjórnarformaður Ráð- gjafarstofu umfjármál heimilanna. Heimili í skuldnauð Að undanförnu hefur átt sér stað nokkur umræða um skuldastöðu almenn- ings. Sú umræða setti svip sinn á kosningabaráttu fyrir síðustu alþingis- kosningar og hefur verið nokkur síðan. í grein í Morgunblaðinu þann 16. desem- ber 1994 lýsti núverandi viðskiptaráðherra áhyggjum sínum yfir skuldastöðu heimilanna eins og hún var þá. Hann taldi að allt stefndi í holskeflu gjaldþrota sem myndi gera þúsundir fjölskyldna heimilislausar. Frá því að greinin var skrif- uð hafa skuldir heimilanna enn aukist. Frá því í október 1994 til september si. haust nam þessi aukning 27 milljörðum króna. Eftir Runólf Ágústsson lektor Skuldir íslenskra heimila eru í dag að mati Seðlabankans lík- lega hærri en í nokkru öðru aðildarríki OECD. Þessar miklu skuldir eru komnar að hættumörkum. Árið 1980 voru skuldir heimilanna, sem hlutfall af ráðstöfunartekjum, 24% en náðu 136% árið 1994 og hafa síðan stórhækkað. Þann 1. janúar 1995 voru 18.000 skuldarar í vanskilum við byggingalánasjóðina og námu þau vanskil meira en 2 milljörðum króna. Samkvæmt könnun Félagsvísindastofnun- ar áttu þá 37% fólks á aldrin- um 25-39 ára í vandræðum með að standa í skilum með venjuleg útgjöld heimilisins og 32% íbúðareigenda áttu í vandræðum með að standa í skilum með íbúðarlán. Sam- kvæmt upplýsingum frá Hús- næðisstofnun sóttu 2.500 manns um aðstoð stofnunar- innar vegna greiðsluerfíðleika á tveggja ára tímabili, frá því síðla árs 1993 til 1995. Með- algreiðslubyrði þessa fólks vegna lána var 98% af heild- artekjum þess og það var flest með margföld mánaðarlaun sín í vanskilum. Fjárnámum, nauðungarsöl- um og gjaldþrotum fjölgar ár frá ári í beinu hlutfalli við skuldaaukninguna og vanskil- in. Svo virðist sem stór hluti heillar kynslóðar stefni hrað- byri í fjárhagslega blindgötu. Runólfur er lektor við Sam- vinnuháskólann á Bifröst og fuUtrúi sýslumanns í Borgar- nesi. Spyrja má hve stór hluti þjóð- arinnar þurfí að komast í greiðsluþrot til þess að slíkt hætti að vera vandamál við- komandi einstaklinga og verði vandamál þjóðarinnar allrar. Hversu margir þegnar lands- ins þurfa að verða gjaldþrota til að þjóðin sjálf verði gjald- þrota? Þáttur hins opinbera Þrátt fyrir að ríkisstjórn og Alþingi hafi viðurkennt ógn- vænlega skuldastöðu heimil- anna í landinu og hafíð að- gerðir í því sambandi ganga þær allt of skammt. Lenging lána í húsbréfakerfinu er um- deild ráðstöfun sem dregur stórlega úr raunverulegri eignamyndun hjá þeim lán- takendum sem það nýta sér og ný ráðgjafarstöð um fjármál heimilanna hefur í raun fá og smá úrræði fyrir fólk. Þeir fjármunir sem verja á til að aðstoða fólk í greiðsluvanda eru aðeins brotabrot þeirra tekna sem ríkið hefur af skuldum fólks og vanskilum. Samkvæmt upplýsingum fjármálaráðherra frá því í vor innheimtir ríkið hátt á fjórða hundrað milljóna króna á hverju ári vegna fjámáms og nauðungarsala og rúma 2,3 milljarða í stimpilgjöld, aðal- lega af skuldabréfum ýmiss konar. Þótt ekki liggi fyrir skipting á þessum tekjum rík- isins á milli einstaklinga og lögaðila er ljóst að stór hluti þessara 2,8 milljarða króna er innheimtur af einstaklingum. Hjón eða par sem fer út í húsnæðiskaup á 10 milljóna króna eign, sem metin er á 7 milljónir í fasteignamati, og tekur 8 milljónir króna að láni til kaupanna, greiðir til ríkis- sjóðs tæp 150.000. Þetta bæt- ist ofan á greiðslubyrði vegna lána þar sem margir mæta þessum kostnaði með hærri bankalánum. Lendi þetta fólk í greiðsluvanda með sínar skuldbindingar er ekki óraun- hæft að setja upp dæmi þar sem gjaldtaka ríkisins yrði annað eins í formi fjámáms- 28 NEYTENDABLAÐIÐ - Maí 1996

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.