Neytendablaðið - 01.05.1996, Page 31
Húsnæðiskaup
verðbætur eru ávallt sömu að raungildi. í
byrjun eru greiðslur aðallega vextir en
afborganir litlar. Þegar líður á lánstímann
vaxa afborganir en vaxtagreiðslur
minnka. Húsnæðiskaupendur fá opinbera
aðstoð í formi vaxtabóta. Þær fínnast
sem greiddir vextir að frádregnum 6% af
tekjum. Vaxtabætumar minnka með
lækkandi vöxtum. Nettógreiðslubyrði er
greiðslur af fasteignaveðlánunum að frá-
dregnum vaxtabótum. Greiðslur af lán-
unum em alltaf þær sömu að raungildi en
vaxtabætumar falla smám saman niður.
Greiðslubyrði húseigenda þyngist þess
vegna þegar líður frá kaupunum.
Til þess að lýsa þessu betur má taka
dæmi af fjölskyldu sem kaupir íbúð, á
fyrir útborgun en fær 65% kaupverðs í
Huga verður að tekjum fjöl-
skyldna um langt árabil, líta á
samsetningu þeirra og aldur
fjölskyldumeðlima.
húsbréfum. Greiðslubyrðin að frádregn-
um vaxtabótum er í upphafi 13,5% af
tekjum en þyngist ört. Eftir 10 ár er hún
18% og verður mest 26% sem er 93%
hærra en þegar lánið var tekið. Kaupgeta
er almennt metin út frá greiðslubyrði
fyrstu afborgana en í húsbréfakerfinu
verða menn að líta á greiðslubyrðina eftir
10-15 ár. Hið staðlaða greiðslumat kerf-
isins sýnir þó aðeins greiðslur fyrstu 6
árin sem er oft ófullnægjandi. Þá er í
dæmum sem Húsnæðisstofnun sendir frá
sér kaupgeta miðuð við 18% greiðslu-
byrði að teknu tilliti til vaxtabóta. I
mörgum tilvikum getur það jafngilt því
að greiðslubyrðin fari yfir 25% af laun-
um þegar líður frá kaupunum.
Barnabætur
ofreiknaðar
Þau mistök urðu í greininni Lífskjör á
íslandi í þriðja tölublaði síðasta árs að
barnabætur voru ofreiknaðar. Bama-
bætur fyrir tvö böm yngri en sjö ára á
árinu 1995 voru 8.200 krónur á mán-
uði. Með hámarksbarnabótaauka verð-
ur þessi upphæð 15.960 krónur. í yfir-
liti hjónanna Elísabetar og Rúnars er
upphæðin 21.300 krónur en það er sú
upphæð sem þau fengu greidda á síð-
asta ári á þriggja mánaða fresti. Þetta
leiðréttist hér með og biðst Neytenda-
blaðið velvirðingar á mistökunum.
NHYTENDABLAÐIÐ - Maí 1996
31