Neytendablaðið - 01.06.1998, Síða 11
þó ekki refsað fyrir þetta í
þessum lið, en það kemur nið-
ur á því hve vel þau strauja.
Straugæði
Þetta er veigamesti þáttur
könnunarinnar og vegur
þyngst í heildareinkunn. Hér
var tvennt prófað, annarsveg-
ar hve vel jámin strauja og
hins vegar hve vel miðað við
tímann sem það tók. Gæði
velta á mörgum þáttum, svo
sem hitastigi jámsins,
gufuflæði, hve auðveldlega
þau renna áfram og þyngd
járnsins. Prófunin var þannig
gerð að atvinnustraujarar
straujuðu flíkur á vissum still-
ingum og gæðin vom svo
metin daginn eftir, en fatnað-
urinn á það til að innihalda
gufu í sér fyrst eftir straujun,
sem getur falið krumpur. Tími
og gæði voru vegin þannig að
gæði vógu 60% af einkunni,
en tíminn 40%. Philips HI
510 og Philips 530 komu best
út í þessari prófun.
Þægindi í notkun
Atvinnustraujarar, tæknimenn
og heimavinnandi neytendur
dæmdu þægindi við notkun.
Hér voru margir þættir próf-
aðir, eins og það hversu fljót-
legt er að setja járnið af stað
og ganga frá því eftir notkun,
hvort rafmagnsnúran er til
óþæginda, hve auðvelt og
þægilegt er að stilla járnið og
stjórna því, hve fljótt það
hitnar og hve fljótt það kólnar
eftir notkun, og hættan á að
straujarinn brenndi sig var
einnig metin. Braun PV 2210,
Philips HI 530 og Mistral HI
284 komu best út í þessari
prófun.
Ending
Gera þarf fyrirvara við þenn-
an þátt í könnuninni. Erlendis
er vatnið oft mjög steinefna-
ríkt, sem hefur mikil áhrif á
endingu gufustraujárna. Stein-
efnin orsaka fellingar sem
myndast við uppgufun vatns-
ins, en slíkar fellingar geta
stíflað og eyðilagt straujámið.
Hér á landi skiptir þetta litlu
máli enda era steinefni í sára-
litlum mæli í vatni hér. Þessi
þáttur könnunarinnar gefur
því ekki fullnægjandi mynd
fyrir íslenska neytendur. Eins
og sjá má í töflunni fá öll
straujárnin góða einkunn fyrir
þennan lið nema Philips HI
220, Princess 2400 og Ufesa
PV 4323, sem gerir heildar-
einkunnina lægri en ef rann-
sakað hefði verið við íslensk-
ar aðstæður. Einnig voru aðrir
þættir varðandi endingu próf-
aðir, svo sem höggþol, en
vægi þessa var ekki mikið og
hafði lítil áhrif á niðurstöður.
Ending botnsins
Straujámið þarf að renna auð-
veldlega yfir, en hættan er sú
að sé farið hratt yfir getur
botninn rispast. Hér er því
rannsakað tvennt, annars veg-
ar hve auðveldlega straujámið
rennur yfír við ýmiss konar
núning, svo sem rennilása,
tölur og aðra erfiða fleti, og
hins vegar hve auðveldlega
straujámið rispaðist. Braun
2210 og Tefal 1470 fengu
besta einkunn fyrir þetta, en
þau era bæði með glerjaðan
álbotn. Þess konar botnar
komu best út, en teflon-húð
reyndist líka vel.
Rafmagnsöryggi
Hér voru straujámin prófuð
samkvæmt Evrópustöðlum og
stóðust þau öll prófíð að því
leyti að engin þeirra vom talin
hættuleg, þó nokkur tæki
höfðu þó minni háttar galla.
Sigurvegararnir
Eftirtalin straujám fá hæstu
einkunn (4 af 5 mögulegum):
Braun PV 2210 á 4.690 kr„
Philips HI 510 á 6.990 kr„
Philips HI 530 á 7.390 kr„
Tefal 1470 3.696 kr. og Tefal
1625 á 4.320 kr. Fast á fætur
þeim komu, með sömu heild-
areinkunn en þó ívið slakari
einkunnir fyrir einstök atriði
sem prófuð voru: Braun PV
2510 á 5.690 kr„ Philips
Mistral HI 284 á kr. 3.990 kr.
og Rowenta DE 121 á 2.533
kr.
NEYTENDABLAÐIÐ - júní 1998
11