Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.06.1998, Blaðsíða 14

Neytendablaðið - 01.06.1998, Blaðsíða 14
Gleraugnakaupin Aðlögunarhæfni augna tap- ast um miðjan aldur og fólk þarf þá yfirleitt lesgler- augu. Þeir sem ganga með gleraugu að staðaldri vegna sjónlagsgalla (íjarsýni, nærsýni og sjónskekkju) þurfa þá ann- aðhvort skipt gleraugu eða sér- stök lesgleraugu. Oftar en ekki er hentugt að fá sér skipt gler- augu, þau eru sambyggð, með leshluta neðan til. Slík gler- LA6ASAFN NEYTENDA § § NEYTENDUR! Gerið ykkur grein fyrir rétti ykkar með Lagasafni neytenda Verð kr. 900 Verö til félagsmanna kr. 700 Skipt gleraugu augu eru ýmist tvískipt með slípuðu lesgleri að neðan (- bífókal) og sjást þá skiptin sem þverstrik í glerjunum, eða margskipt með fljótandi skipt- um (prógressíf) og sjást þá skiptin ekki. Neytendablaðið hefur kynnt sér þennan mark- að. Skipt gleraugu eru hentug við flest störf og í daglegu lífi. Gleraugu með fljótandi skipt- um hafa batnað verulega á seinni árum og orðið æ vin- sælli. I ýmsum tilvikum eru tvískipt gleraugu þó hentugri vegna stærra lessviðs, til dæm- is við ýmis iðnaðarstörf, sé fólk eingöngu með sjón á öðru auga, eða vegna sérstakra sjón- lags- eða sjóngalla, og þarf að meta það sérstaklega. Við tölvuvinnu, lestur útafliggjandi og ýmislegt fleira þarf oft sér- stök gleraugu, sem henta betur í þeim tilvikum. Notandinn þarf því að gera sér góða grein fyrir því um hvað málið snýst og hvaða kostir eru til staðar. Hérlendis eru sjónmælingar í höndum augnlækna. Sjón- tækjafræðingar taka síðan við, staðsetja sjónmiðju glersins, hanna og smíða gleraugun. Víða erlendis mega sjóntækja- fræðingar einnig mæla sjón, en kröfur um menntun eru mis- miklar eftir löhdum. íslenskir . sjóntækjafræðingar hafa sett fram óskir um aukin réttindi til sjónmælinga, meðal annars til að örva samkeppni. Auglæknar halda hins vegar fast í óbreytt kerfi og hafa komið með heilsufræðileg rök sem verður að skoða í þessu samhengi. Aðlögun Margskiptu gleraugun eru kær- komin þeim sem sífellt þurfa að skipta á milli gleraugna, en þó er talið að þeir sem lesa mikið þurfi eftir sem áður að eiga sérstök lesgleraugu. Áður en nýju gleraugun eru keypt er nauðsynlegt að vita að það get- ur tekið nokkum tíma að venj- ast þeim. Eftir um tvær vikur á notandi að sjá skýrt nær sem íjær, ef ekki er skekkja við mælingu, slípun eða vinnslu glerjanna. Aðlögunin tekur mislangan tíma, enda em gler- augu og fólk misjöfn. Flestir sjóast að lokum og muna síðan varla eftir aðlöguninni þegar eftir er spurt. Einn og einn get- ur þó alls ekki vanist þessum gleraugum, talið er að það séu á bilinu 1-3%. Gangi illa að venjast gleraugunum þarf að láta sjóntækjafræðinginn stilla þau betur og séu áfram vanda- mál á undantekningalaust að leita augnlæknis og þá helst þess sem skrifaði uppá gler- augun. Er vandinn þá undan- tekningalítið leystur á viðun- andi hátt. Vandinn er að í fyrsta skipti veit maður ekki fyllilega hvað verið er að kaupa fyrr en búið er að ganga frá gleraugunum og þau em sett upp. Það er ekki hægt að prófa glerin sem slík áður en kaupin em ákveðin, það er ekki gerlegt því að þau em sérstaklega gerð og gler- augun hönnuð og smíðuð fyrir hvem einstakling fyrir sig. Nýju glerin gagnast flestum sem ganga með gleraugu og orðnir em 40-45 ára og eldri, en valið getur verið erfitt, því úrvalið er mikið. Hér á landi er algengast að gleraugnasalar flytji sjálfir inn þau sjóngler sem þeir selja og segir Karl Davíðsson sjóntækjafræðingur á Akureyri að þeir flytji ein- göngu inn sjóngler í háum gæðaflokki, þess vegna sé á þeim lítill verðmunur. Hann nefnir Varilux BBGR frá franska fyrirtækinu Essilor, Gradal HS frá þýska fyrirtæk- inu Carl Zeiss, Hoya Lux frá Japan og svo Rodenstock. Sjóntækjafræðingar leggi mik- ið upp úr gæðum og séu yfir- leitt ekki með óvandaða og ó- dýra vöm á boðstólum. Kostnaður Skoðun hjá augnlækni ásamt sjónmælingu kostar yfirleitt 2-3 þúsund krónur. Sjóngler, ólitað með fljót- andi skiptum kostar á bilinu 15-18 þúsund krónur. Ef styrk- leiki er orðinn plús/mínus fjórir og glerin slípuð þunn getur verðið verið á bilinu 20-25 þús. kr. Séu glerin með glampavöm, sem nú er mjög' vinsælt, og með meðalstyrk- leika er verðið á bilinu 25-30 þúsund. Til viðmiðunar kosta venjuleg gler á bilinu 4—8 þús- und krónur. Umgjörð kostar frá 5-15 þúsund og jafnvel meira ef um merkjavöru er að ræða. En á- hugaverðasta spumingin er að sjálfsögðu: Em gæðin í sama hlutfalli og verðlagið, og hve nauðsynleg em gæðin? Vafalaust em dýmstu sjón- glerin vandaðri en þau ódýrari. En hvort dým gleraugun em peninganna virði fyrir viðkom- andi notanda er erfiðara að svara. Sumir hafa mjög sveigj- anlega sjón, þannig að þeir geta nánast vanist öllu. Öðmm verður einfaldlega illt af sjóná- hrifum sem ekki em fullkom- lega rétt. Nákvæmni Það er tiltölulega einfalt að smíða gleraugu með einum styrkleika, en vandamál koma frekar upp með margskiptu glerin. Það þarf að vera ljóst til hvers nota á gleraugun. Ef notandinn er til dæmis tónlist- armaður, og þarf að geta lesið nótur í 80 cm fjarlægð, er nið- urstaða sjónmælingaar sem tekin hefur verið í 40 cm lestrarfjarlægð ónothæf. Þá er mikilvægt að taka tillit til þess hvernig notandinn ber.gler- augun, hvemig höfuðburður hans er og hvar á nefinu gler- augun sitja. Að teknu tilliti til alls þessa ákvarðast það svo hvernig glerin eru unnin í um- gjörðina. Glerin era gerð af svo mik- illi nákvæmni að það er nauð- synlegt að þeim sé komið fyr- ir í umgjörðinni af sömu ná- kvæmni. Ef ekki er tekið tillit til hvemig gleraugun sitja get- ur notandinn fundið fyrir 14 NEYTENDABLAÐIÐ - júní 1998

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.