Neytendablaðið - 01.06.1998, Qupperneq 15
Heilbrigði
AHijl
óþægilegum rangfærslum í
gleraugunum.
Staðsetning brennipunkts í
glerinu er mikilvægt atriði.
Sjónmiðja glersins þarf að
vera nákvæmlega framan við
augasteininn þegar notandinn
horfir beint fram. Flestir sjón-
tækjafræðingar nota sérstök
tæki þegar þeir mæla fyrir
staðsetningu sjáaldursins.
Tækin eru sett framan við
augu viðkomandi, stundum
svo nærri að ósjálfrátt horfir
fólk oft örlítið of nærri nef-
inu. Fyrir suma leiðir þessi
ónákvæmni til þess að gler-
augun verða ekki nógu þægi-
leg. Þótt aðeins muni örfáum
millimetrum geta komið upp
vandamál, sérstaklega þegar
um sterk gler er að ræða, og
mikill munur er á milli ein-
staklinga. Ef um einföld gler-
augu er að ræða er það í
mörgum tilfellum ekki vanda-
mál þótt ljósmiðjan flytjist
eitthvað til þegar glerið er
unnið, en sumir eru hinsvegar
þannig gerðir að litla tilfærslu
þarf til að valda óþægindum.
Ef glerin eiga einnig að
bæta upp augngalla af ein-
hverri gerð eykst vandinn enn
ef uppsetning glerjanna er
skökk.
Gleraugnamæling á
myndbandi
Ýmis tæki hafa verið fram-
leidd til að bæta niðurstöður
mælinganna. Nýlega hefur
þýska fyrirtækið Zeiss þróað
tölvustjómað myndbandstæki
sem mælir úr fjögurra metra
fjarlægð hvemig hanna á gler-
augun.
Tækið samanstendur af
tölvu og tveimur myndbands-
tökuvélum sem taka á sama
tíma upp andlits- og vanga-
mynd af viðkomandi með þá
gleraugnaumgjörð sem valin
hefur verið. Aður hafa mál
umgjarðarinnar verið sett í
tölvuna og hún mælir út hvar
sjónmiða glersins á nákvæm-
lega að vera. Einnig er hægt
að nota tækið til að ákveða
hvaða glertegund eigi best við
og hvort mögulegt er að ná
bestu útkomunni í þeim um-
gjörðum sem valin hafa verið.
Tískuvara
Gleraugu em einnig tískuvara
og tískan hefur áhrif þegar
gleraugnaumgjörð er valin.
Nú em lítil gleraugu í tísku,
og þáð getur valdið erfiðleik-
Stuðst er við grein um sama
efni í danska neytendablaðinu
Tœnk og upplýsingar frá Áma
B. Stefánssyni augnlœkni og
Karli Davíðssyni sjóntækja-
frœðingi.
um þegar margskiptu glerin
eiga í hlut. Maður á þá á
hættu að kaupa gleraugu sem
hafa ekki alla þá fleti sem
nauðsynlegir em, eða þá að
sumir fletimir em ekki nógu
stórir, því hlutar þeirra hafa
verið slípaðir burt svo glerin
passi í umgjörðina. Á hinn
bóginn getur umgjörðin
einnig verið svo stór að ekki
er tæknilega mögulegt að
setja margskiptu glerin í þau.
Fagurfræðin og tískan geta
einnig haft áhrif á sjóngæðin
þegar velja þarf á milli þunnra
og þykkra glerja.
Ráð Neytendablaðsins
Ráðfærðu þig við augnlækninn sem skoðar og mælir
sjónina um hvað hentar þér best með tilliti til fyrir-
hugaðrar notkunar gleraugnanna.
Láttu gera sjónathugun sem tekur tillit til fjarlægðar
við lestur.
Kynntu þér verð og tegundir hjá nokkrum aðilum áður
en þú ákveður kaupin. Kannaðu einnig hvað er í
boði ef gleraugun venjast ekki.
Spurðu sjóntækjafræðinginn hvaða gler uppfylli þínar
sjónþarfir og þá hvers vegna.
Veldu þá umgjörð sem sjóntækjafræðingurinn fullyrðir
að nái fram hámarksgæðum glerjanna.
Mátaðu umgjörðina áður en glerin eru sett í hana og
láttu gera nauðsynlegar mælingar með umgjörðina
eins og þú vilt hafa hana.
í síðasta lagi eftir tvær vikur áttu að hafa vanist gler-
augunum þannig að þau valdi ekki.óþægindum. Ef
ekki láttu þá athuga hvort gleraugun eru í réttum
styrkleika og hvort þau eru rétt unnin.
N E YTEND ABLAÐIÐ - júní 1998
15