Neytendablaðið - 01.06.1998, Qupperneq 16
Gæðakönnun
Húðkrem - jafngóð en misdýr
Ekki er vafi á því að raka-
krem hafa góð áhrif á
húðina. Þessi gæðakönnun
nær til fímm tegunda dags- og
næturkrems og fá þær allar
góða einkunn. Aftur á móti er
á þeim ótrúlegur verðmunur.
Góð andlitskrem jafnt
á nóttu sem degi
Konur um og yfir fertugt eru
drjúgar við kremnotkun. ís-
lenskar konur eru áreiðanlega
engir eftirbátar þýskra kvenna
í þessum efnum en í Þýska-
landi nota 70% kvenna um
fertugt dagkrem og 60% nota
einnig næturkrem. I þessari
þýsku gæðakönnun eru athug-
aðar fimm tegundir af
svokölluðu 24-tíma-kremi.
Slíku kremi er fyrst og fremst
ætlað að viðhalda raka and-
litshúðarinnar og verja hana
fyrir utanaðkomandi áhrifum,
svo sem þurrki, kulda, heitu
lofti eða miklum hitabreyting-
um. I hvert skipti sem húðin
er hreinsuð missir hún raka og
fitu.
Húð ungs fólks er fljót að
endumýjast og bæta þannig úr
þessum missi en með ámnum
hægir ferlið á sér. Húðin
verður þá háðari því að fá
rakastigið endumýjað utanfrá.
Rakakremið ver húðina og
gerir hana þéttari og heil-
brigðari.
Sumir framleiðendur full-
yrða að framleiðsla þeirra
hæfi andlitshúð allra. Sú er
yfirleitt ekki raunin. Sé húðin
mjög þurr henta ekki allar
kremtegundir til langvarandi
notkunar. Við því er ráðlagt
að nota feitara krem, sérstak-
lega yfir nóttina.
Góð krem
Allar tegundimar fimm
reyndust góðar með tilliti til
rakaeiginleika. Þrjátíu konur
notuðu kremin í tvær vikur
kvölds og morgna á innan-
verðan framhandlegg, en þar
er húðin sérstaklega næm og
því auðvelt að merkja allar
breytingar.
Jafnvel tólf tímum eftir að
kremið hafði verið borið á
húðina var hægt að sjá veru-
lega breytingu á húðrakanum
til hins betra. Þrjár tegundir,
Juvena, Lancöme og L’Oréal,
fengu hæstu mögulega ein-
kunn fyrir rakahæfni og
vegna eiginleika fyrir þurra
og ójafna húð, en hinar tvær
fengu næstbestu einkunn fyrir
þetta tvennt.
I heildina voru konurnar
mjög ánægðar með allar teg-
undirnar. Eftir tveggja vikna
notkun vom þær sammála um
að kremin væru auðveld í
notkun og gengju auðveldlega
inn í húðina.
I heildarniðurstöðu fengu
Juvena, Lancöme og L’Oréal
næsthæstu einkunn, en Oil of
Ulay og Body Shop fylgdu
fast á eftir með meðalein-
kunn.
NEYTENDASTARF Efí IALLRA ÞÁGU
10-11 verslanirnar
Akureyrarbær
Borgarbyggó
Dalvikurbær
Emmessís ht,
Bitruhálsi 1, Rvík
Fjarhltun, verkfræóistofa,
Borgartúni 17, Rvík
Haraldur Böóvarsson hf.,
Akranesi
Hltavelta Reykjavíkur,
Orensásvegl 1
Húsavíkurkaupstaóur
Hverageröisbær
íslenskir aóalverktakar
Japis, Brautarholti 2, Rvík
Kaupfélag Árnesinga,
Suóurlandl
Kaupfélag Héraösbúa,
Egilsstöóum
Kaupfélag Skagfiróinga,
Sauóárkróki
Kaupfélag Þlngeyinga,
Húsavík
KEA - Nettó,
Óseyrl 1, Akureyri
Kjötiónaöarstöóin,
Oddeyrartanga,
Akureyri
Mjólkursamlag KEA,
Akureyri
Mjólkursamsalan,
Bitruhálsi 1, Rvík
Nióursuóuverksmiójan ORA,
Vesturvör 12, Kóp.
Rafmagnsveita Reykjavíkur,
Suóurlandsbraut 34
Samvinnuferóir-Landsýn
Seólabanki íslands
Síldarvlnnslan,
Neskaupsstaó
Slippfélagió,
málninga verksmiöja,
Dugguvogi 4, Rvík
Stjörnuegg,
Vallá, Kjalarnesi
Tryggingastofnun ríkisins
Vestmannaeyjabær
Visa ísiand
- Greióslumiölun hf.
Vopnafjaróarhreppur
Þórshafnarhreppur
Ölfushreppur
16
NEYTENDABLAÐIÐ - júní 1998