Neytendablaðið - 01.06.1998, Page 17
Gæðakönnun
Könnun rakakrema
Merki / tegund Juvena Skinmarine Mat Inni- hald í ml Verð kr. Verð í kr. pr. 10 ml Kremið sjálft Krem- gæðin samtals Umbúðirnar Umbúðir samtals Heildar niður- staða
Raka eigin- leikar Gegn þurrki og misfellum Notkunar- eigin- leikar Innihalds- lýsing Notkunar- eigin- leikar Umhverfis vænt
50 2.765 553 ★ ★ ☆ ★ ☆ ☆ 3 O ☆
Oil of Ulay Active Beauty Fluid 100 469 47 ☆ ☆ ☆ ☆ ☆ ☆ O O ☆
The Body Shop Light Moisture Lotion 50 960 192 ☆ ☆ ☆ ☆ ☆ ☆ ☆ ☆ ☆
Lancome/Hydrative Ressource Permanente D'hydration 50 3.230 646 ★ ★ ☆ ★ ☆ ☆ • • O
L'Oréal Plénitude Hydro-Active 50 689 138 ★ ★ ☆ ★ ☆ ☆ • • O
★ ☆ O 3 •
Best ------►Lakast
Þrjátíu konur dœmdu þessi fimm krem. Þau fá öll góða
einkunn ogfæst mestfyrir krónurnar efOil ofUIay er keypt.
Húðvæn krem með
óheppilegum efnum
Enginn hafði neitt út á kremin
að setja með tilliti til þægi-
legra áhrifa þeirra á húðina.
Það þýðir þó ekki að þau geti
ekki valdið einhverjum not-
endum óþægindum. Rotvarn-
ar- og ilmefni sem oft eru not-
uð í snyrtivörur geta valdið
óþægindum í húðinni, en rot-
varnarefni fannst í öllum
kremtegundunum. Konur sem
þola illa ilmefni geta valið
Body Shop, sem er án ilm-
efna.
Notkun á ilmefnum sem
heita „nítromoskus“ hafa ver-
ið gagnrýnd. Þessi efni voru
lengi notuð sem ilmefni, til
dæmis í krem. Líkaminn á
erfitt með að eyða efnunum,
þau smjúga gegnum húðina
og setjast að í fituvefjum. Þau
hafa meðal annars fundist í
móðurmjólk. Bannað er að
nota eitt þessara efna, moskus
ambretto, í snyrtivörur. Rætt
hefur verið um að banna
einnig önnur nítromoskus-
efni.
í Lancöme-kreminu fannst
örlítið af tveimur tegundum
þessara efna. Lancöme-fyrir-
tækið ætti eins og keppinautar
þess að sniðganga varasöm
efni. Allur vafi á að vera neyt-
endum í vil og framleiðendur
verða því að hætta notkun
þeirra efna sem eru gagnrýn-
isverð.
Umbúðirnar lækka
einkunnina
Það er fleira en eiginleikar
kremanna sem skiptir máli í
heildarniðurstöðu rannsóknar-
innar. Þar koma umbúðirnar
einnig við sögu. Hjá Lancöme
og L'Oréal eru umbúðirnar
þrisvar sinnum þyngri en
innihaldið. Umhverfisvænum
neytendum finnst óásættan-
legt að svo mikið skuli lagt í
umbúðirnar, dýrar öskjur,
jafnvel pappafóðraðar, og fyr-
irferðarmiklar krukkur. Vegna
umbúðanna fá góðu kremin
frá Lancöme og L’Oréal slök-
ustu einkunnina þegar litið er
til umhverfisþáttarins og það
er eina ástæðan fyrir því að
þessar tvær tegundir fá með-
aleinkunn í heildarniðurstöð-
unni.
Verðmunur er mikill
Það er ekki mikill munur á
þessum fimm kremtegundum
þegar metnir eru eiginleikar
þeirra og er aðalmunurinn á
umbúðunum eins og áður er
greint frá. Aftur á móti er
verðmunurinn gríðarlegur.
Lancöme er dýrast og
kosta 10 millilítrar af því 646
krónur. Sama magn af Juvena
kostar 553 krónur, af Body
Shop 192 kr., L'Oréal 138 kr.,
og ódýrast er Oil of Ulay, að-
eins 47 krónur á 10 millilítra.
Umbúða-
farganið
I sumum tilvikum eru
umbúðir þrefalt þyngri en
innihaldið og á þetta til
dœmis við um Lancöme.
Ljóst er að neytandinn
hefur enga þöiffyrir
þetta, en spurningin er
hins vegar: Hvað grœða
framleiðendur á slíkri
sóun ?
NEYTENDABLAÐIÐ - júní 1998
17