Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.02.1999, Blaðsíða 8

Neytendablaðið - 01.02.1999, Blaðsíða 8
Gæði, markaður — Snjóbretti Skíðasvæðin eru að breytast í bretta- svæði og ísland er frjálsstíls-land Nær helmingur þeirra sem renna sér á mörgum „skíða“- svæðum landsins eru ekki lengur á skíðum heldur snjó- brettum. Intemational Testing í Austurríki hefur gengist fyrir könnun á snjóbrettum í sam- vinnu við Sports-Magazin í Þýskalandi. Hér er birtur hluti af niðurstöðunum ásamt ís- lenskri verðkönnun Neytenda- blaðsins. Fyrir hverja? í þessari grein em notuð ný- yrðin snjóbrettun eða brettun fyrir iðkun snjóbrettaíþróttar- innar en notendumir kallaðir snjóbrettingar eða brettingar. Fullfrískt fólk á öllum aldri getur áhættulftið spreytt sig á snjóbrettun. Mælt er með þvf að krakkar séu orðnir fimm ára en einn tíðra gesta í Bláíjöllum er áttræður snjóbrettingur. Flestir em um 14—25 ára og læra listimar af sjálfum sér en sums staðar er boðið upp á námskeið. Böm og unglingar velja nú bretti miklu fremur en skíði. Gísli Páll Jónsson, starfsmaður í Bláfjöllum, giskar á að fjölg- un brettinga þar miðað við í fyrravetur nemi 30-40% og nálgist þeir ört að vera um helmingur gesta. Hið sama á við annars staðar. Agúst Ingi Axelsson, forstöðumaður Skíðastaða í Hlíðarfjalli við Akureyri, telur að þama séu líka að koma til sögunnar nýir hópar sem ekki hefðu farið að stunda skíðaíþróttina. Kristinn G.K. Lyngmó, forstöðumaður skíðasvæðanna á Seljalandsdal og Tungudal við Isafjörð, tekur undir þetta og segir nú sjald- gæft að krakkar kaupi sér skíði. Omar Skarphéðinsson, umsjónarmaður með Skíða- miðstöð Austurlands í Odd- skarði, segir að sjáist unglingar á skíðum séu það nær ein- göngu þeir sem æfa skipulega og taka þátt í mótum, hinir sem komi bara til að viðra sig og skemmta sér séu allir á snjó- brettum. Tveir flokkar Snjóbretti skiptast eftir gerð í tvo aðalflokka, frjálsstílsbretti (freeride, freestyle) sem eru yf- irgnæfandi hérlendis og svig- bretti (freeride, freecurve, alp- in) sem em fátíð hérlendis. I þessari könnun er aðallega Ijallað um frjálsstílsbrettin. Frjálsstílsbretti em breiðari en svigbretti, inndregin á hlið- unum til að auka stöðugleika í beygjum og sveigjanleg til að draga úr áhrifum af hörðum sviptingum og lendingum. Þau em nokkuð alhliða og má nota við fjölbreyttar aðstæður, jafnt til bruns og kollhnísa eða flugs. Þau em ekki erfið byrj- endum og henta áfram þjálfuð- um notendum. I könnuninni reyndust Scott Alturis-brettin sem Markið selur sérstaklega góð til stökkkúnsta. Svigbretti em lengri, mjórri og stífari. Þau eru notuð til að Gæða- og verðkönnun á snjóbrettum Intemational Testing, Sports-Magazin, Neytendablaðið. Gefnar eru einkunnir á kvaróanum 1-5 þar sem 5 er best. Verð í Noregi og Þýskalandi var aóallega kannaó í nóv.-des. 1998 en umreiknaó í isl. kr. mióaó vió gengi i janúar 1999. I Frjálsstilsbretti (freestyle) Svigbretti (freecarve, alpin) FD Nitro Scott Rossignol Burton F2 Speedster ' Nitro Boxer Naturals Atturis Strato Wire GTS Range Verð í ÞýskaLandi 29.441 43.949 35.394 26.544 23.004 35.341 18.939 tengri gerðir 29.494 19.352 Verð í Noregi 41.400 45.908 37.711 26.588 40.940 27.508 Verð á ístandi, staðgreitt 27.550 30.020 með korti 29.000 31.600 Brettatengdir 155/40-65 148 / 50-65 140 / 30-60 140 / frá 40 147 / 35-65 153 / 50-80 152 / 50-85 í cm og viðeigandi 162 / 50-80 155 /55-75 145 / 35-55 150 / frá 50 154/45-75 158 / frá 65 157 / 55-100 tíkamsþyngd 168 / frá 65 159 / 65-85 150 / 45-75 160 / frá 60 162 / frá 55 163 / frá 70 brettings í kg 164 / frá 65 155 / 50-90 166 / frá 70 169 / frá 70 160 / 60-100 175 / frá 75 Athugasemdir Hentar öllum, Fremur dýrt Gott fyrir Mjög gott Bæði fyrir Mjög gott Gott fyrir gott í öttum og hentar stökk og alhliða bretti byrjendur og fyrir hraðar byrendur en atriðum, best snjóbraut með góðu þjáifaóa, og krappar ekki hraða sértega fyrir þjálfuðum (hálfpípu) jafnvægi. kantar gripa beygjur. Ekki ferð tistir E.t.v. futierfitt afar vel fyrir byrjendur fyrir byrjendur 5 4 4 3 4 hh 4 Stjórn á beygjum 5 4 4 4 4 4 3 Sniðbeygjur í bratta 4 5 . 4 4 5 5 4 5 4 4 4 5 5 4 Stöðugteiki 4 4 3 4 4 5 2 Hæfni í mism. tandstagi 5 4 4 BB HH 3 Heildareinkunn 5 4 4 4 mm m 3 8 NEYTENDABLAÐIÐ - febrúar 1999

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.