Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.02.1999, Blaðsíða 15

Neytendablaðið - 01.02.1999, Blaðsíða 15
Árekstraprófun Við árekstur inn í hlið híls vernda hliðaröryggis- púðar mikið. Þeir eru þó ekki enn staðalöryggis- búnaður nema í fáum bílum hér. Sex fjölskyldubílar: Öryggið mismikið gang þegar hún er sett til geymslu og eyði öllu rafmagn- inu. Aðeins tvær vélar seldar hér eru með stanslás (Makita 6095 DW og 6222 DWE). Öxullás (spindle-lock): Hægt er að læsa öxlinum í sumum rafhlöðuvélum og nota þær sem handskrúfjárn án þess að hafa þær í gangi. Þetla getur verið gagnlegt ef vélin hefur ekki nægilegt afl til að koma skrúfum alveg í botn, losa ryðgaðar skrúfur eða fasta bora. Hraðstopp (fast stop): Borinn hættir strax að snúast þegar gefið er eftir á gikknum en hægir ekki fyrst á sér. Þetta er mjög gagnlegt við skrúfun, sér- staklega ef borvélin er ekki með átaksstillingu. Allar vélar í könnuninni nema Skil-vélarn- ar hafa þessa stillingu. Verkefnisstilling: Sumar vélar er hægt að stilla fyrir efnið sem bora á í sem og breidd borsins og velja þær þá réttan hraða og átak (t.d. ýmsar Black & Decker og Bosch vélar). Hallamál: Sumar vélar hafa það innbyggt svo auðvelt sé að bora lárétt. Skjáir og ljós: Skjáir eða gaumljós á vélum og hleðslu- tækjum upplýsa hve mikið raf- magn er eftir, snúningsstefnu, gefa aðvaranir um átak og of- reynslu osfrv. (fylgir ekki síst Metabo-vélum). Aukahandfang: Með því er oft mun auðveldara að bora. Yfirleitt fylgir það öllum raf- kerfisvélum en sjaldnar raf- hlöðuvélum. Það er nær nauð- synlegt við skrúfun með hinum þyngri. Umbúðir: Stundum cru vél- arnar seldar í pappakassa en stundum í plasttösku með haldi. Yfirleitl er ekki hægt að kaupa hana sérstaklega. Annað: • Ekki þýðir að leita að raf- hlöðuvélum með ganglæsingu svo hægt sé að festa gikkinn inni meðan vélin gengur. Þessi búnaður er af öryggisástæðum bannaður'á rafhlöðuvélum, meðal annars vegna hugsan- legrar ofhitnunar. • Sama borvélargerðin fæst oft í tveimur útgáfum, með einni rafhlöðu eða tveimur, eða með mismunandi hleðslutæki. Fjórir af sex fjölskyldubílum klára sig vel í nýrri evrópskri árekstarkönnun. I tveimur þeirra er hrapallegur skortur á öryggi og þeir vcrnda hvorki bflstjóra né farþega nógu vel í umferðaróhappi. I umferðaróhappi getur hætta verið á ferðum í Nissan Almera. Þannig er mikil hætta á lífshættulegum áverk- um á brjóstkassa bflstjóra við árekstur að framan. Vernd barnanna er einnig rýr í þess- um bfl. Á hinum kantinum eru Ford Focus, Mercedes A og Renault Megane, en þar er vernd bílstjóra jafnt sem far- þega allt önnur og meiri. Reyndar ber að leggja áherslu á það hér að staðalöryggis- búnaður sem fylgir bílunum getur verið annar hér á landi en var í sömu bílum á prófun- unum og getur þetta skipt mjög miklu fyrir öryggi far- þeganna. Þar sem um slíkt er að ræða kemur það fram í nánari umfjöllun um hvern bfl. Sameiginlegt er með öllum bílunum sex að fótgangandi og hjólandi vegfarendur eiga ekki mikla möguleika lendi slíkir bflar á þeim. Öryggi þessara vegfarenda er ekki hátt skrifað hjá bílaframleið- endum og hugsa þeir lítið um þá þegar þeir hanna bílana. Þessi niðurstaða kemur svo sem ekki á óvart. I fyrri próf- unum, sem Neytendablaðið hefur sagt frá, hafa svipaðar niðurstöður komið í ljós. Bflaframleiðendur hugsa ekki mikið um þessa vegfarendur þegar þeir hanna bílana. Aumingja dúkkurnar Síðustu tvö árin hefur Euro- NCAP, sem er samstarfsvett- vangur yfirvalda, neytenda- samtaka og samtaka bifreiða- eigenda í V-Evrópu, rannsak- að öryggi bíla. Þessar árekstraprófanir eru settar upp eins og gerst gæti í raun- veruleikanum. í árekstri að framan rekst bíllinn á efni sem samsvarar öðrum bfl á 64 km hraða. Við hliðar- árekstur er keyrt á bflinn á 50 km hraða. I framsætið eru settar tvær dúkkur. I aftursætið eru einnig settar tvær dúkkur, önnur á stærð við þriggja ára barn og hin miðuð við 18 inánaða gamalt barn. Báðar litlu dúkkurnar eru festar í barnabflstóla sem framleið- andi hafði mælti með. Áður en dúkkurnar voru settar í bíl- ana voru settir á þær nemar sem tengdir voru hátæknileg- um mælitækum og gáfu þeir nákvæmar upplýsingar um hvaða áhrif áreksturinn hafði á dúkkurnar. Börn og merkingar Fjórir bflanna voru með ör- yggispúða í farþegaframsæti í pófuninni, en þeir eru allir seldir þannig hér á landi. Barn í stól sem snýr gegn akstursstefnu í framsæti er í mikilli hættu á að hljóta lífs- hættulega áverka í árekstri. Öryggispúðinn blæs upp með slíkum krafti að hann brýtur bak stólsins og þar með bak barnsins. (Sjá nánar umfjöll- un um þetta efni á bls. 3.) Aldrei er því nóg gert af því að hvetja bílaframleiðendur til að sjá um að varanlegri merkingar séu í bílunum og sem vara við þessu. NEYTENDABLAÐIÐ - febrúar 1999 15

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.