Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.02.1999, Page 9

Neytendablaðið - 01.02.1999, Page 9
ná sem mestum hraða og hafa því beina kanta á hliðum en það er nauðsynlegt til halda jafnvægi við að skásníða brekkur og breyta snöggt um stefnu í hraðri niðurkeyrslu. A svigbrettum er ríkari hætta á meiðslum og þau útheimta meiri reynslu og líkamlega fæmi. Að velja bretti Skynsamlegast er að leigja bretti fyrst í stað til að finna hvaða gerð hentar og hvert hæfni- og áhugasviðið er. Það er hægt að gera hjá skíðastöðv- unum í Bláfjöllum og í Odds- skarði, versluninni Holunni á Akureyri og Týnda hlekknum, Skátabúðinni og Sportleigunni í Reykjavík. Séu kaup ákveðin er fyrsla skrefið á vigtina þvf rétt lengd brettis fer að vemlegu leyti eft- ir líkamsþyngd, en einnig hæð, skóstærð og reynslu. Ungmenni em oft með mjög ákveðnar skoðanir á „réttum“ vömmerkjum en mikilvægara er að taka tillit til raunverulegr- Brunað á vefnum Board Genie hjá Snowboarding Online reiknar bretti á fólk (verið tilbúin aó velja tölur samkvæmt bandarískri vog, skónúmerum og $-verói): http://www.twsnow.com/hardware/boardsearch/index.htm Góð hlekkjasíða um snjóbretti er á vegum the Mining Company: http://snowboarding.miningco.com Alþjóðasamtökin International Snowboard Federation: http://www.isf.net/ Solsnowboarding og Transworld Snowboarding Magazine: http://www.solsnowboarding.com/ The Snowboarding Ring, með 218 hlekkjum á vefsetur: http://www.geodties.com/Pipeline/Dropzone/3952/snowring.htm Upplýsingar á þýsku frá Online Snowboard Magazin: http://www.snowboards.de/ Norska snjóbrettasambandið: http://www.nsbf.no/ íWffm.'. ar þarfar. Upprétt á brettið yfir- leitt að ná að höku eða upp á kinn notandans. Hér eru á markaði bretti frá 95 cm, sem henla yngstu börnum, og upp í 193 cm fyrir mjög hávaxið fólk. Bamabretti geta miðast við allt niður í 30 kg þyngd en þau kosta yfirleitt svipað og hin. Odýrust eru bretti úr frauð- plasti en fæstum munu þykja þau fullnægjandi til lengdar. Trébretti eru góður kostur fyrir flesta. Dýrust eru bretti úr blöndu viðar og efna sem bæta eiginleikana. Þau eru flest ætl- uð atvinnu- og keppnisbrett- ingum og eiginlefikar þeirra nýtast ekki venjulegu áhuga- fólki. Hægt er að fá bretti á verð- bilinu um 13^10 þúsund krónur og er algengt að þau kosti 25-30 þúsund. Skór kosta yfirleitt um 7-10 þúsund. en geta verið tvöfalt dýrari og bindingar kosta um 6-7 þúsund. Reikna má með að fullur búnaður með fatnaði, hlífðargleraugum og hjálmi kosti að minnsta kosti um 60 þúsund en tvöfalda má þá fjár- hæð ef valdar eru dýrustu gerð- ir af öllu. Annar búnaður Snjóbrettun fylgja kollsteypur og hnjask, sérstaklega í byrjun, og því þarf að nota góðan fatn- að, hlífar og skó. Vemda þarf nánast alla líkamshluta, sér- staklega höfuð, hné og hendur. Mæla má með hjálmum og nota skal stóra og þykka hanska, helst með spelkum sem ná uppfyrir úlnlið. Fatnað- urinn þarf að vera vatns- og vindheldur og nógu rúmur fyrir óþvingaðar hreyfmgar. A frjálsstílsbrettum þarl’ sterka en mjúka skó og ökklinn á að vera sveigjanlegur. Unnt er að nota góða fjallaskó en best er að fá sér sérstaka bretta- skó. Skóstærð skiptir máli því ekki er ráðlegt að skór nái meira en rúman sentimetra út fyrir brettið. Rekist tá í snjó á fullri ferð em harkalegar veltur næsta vís'ar. Bindingar á brettum er hægt að færa til og stilla hvenær sem er eftir aðstæðum. Oft er miðað við að fjarlægðin milli þeirra sé nálægt axlabreidd notandans en að öðm leyti fer hún eftir skilyrðunum og þeim listum sem leika skal. Stutt bil gerir Snjó- rettaráð 1. Farðu á námskeið til aó byrja með. 2. Forðastu að braut þín liggi á brautir annarra. 3. Stansaðu ekki á stöð- um þar sem aðrir sjá ekki til þín. 4. Varastu svæði þar sem snjóflóðahætta er. 5. Notaðu hjálm og hand- leggjahlifar. 6. Taktu oft hlé ef þreyta gerir vart við sig. Leiga á snjóbrettum Verðkönnun Neytendablaðsins í janúar 1999. Brettin eru öll fyrir frjálsstíl (freestyle). Sama gjald er innheimt hvort sem staógreitt er eða meó korti. Skátabúðin, Reykjavík Bretti og skór Tryggingagjald Bretti Skór 1 sólarhringur 2.600 2.000 800 2 sólarhringar 3.640 2.800 1.120 3 sólarhringar 4.550 3.500 1.400 4 sólarhringar 5.233 4.025 1.610 Sólarhringurinn eftir það 650 500 200 Týndi hlekkurinn, Reykjavík Bretti án skóa 1 sólarhringur 2.500 0 0 2 sólarhringar 4.000 0 0 Eftir það 1.500 0 0 Sama verð fyrir börn ogfullorðna Sportleigan, Reykjavík Bretti og skór 1 sólarhringur 2.500 0 0 Næsti sólarhringur 2.000 0 0 Skiðaleigan i Bláfjöllum Bretti án skóa 1 klst. 500 Hálfur dagur 2.000 Sama verð fyrir börn ogfutlorðna NEYTENDABLAÐIÐ - febrúar 1999 9

x

Neytendablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.