Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.02.1999, Qupperneq 14

Neytendablaðið - 01.02.1999, Qupperneq 14
Markaðs- og gæðakönnun Rafhlöður og hleðslutæki Hleðslutæki og ein rafhlaða l’ylgja öllum vélunum. Aukarafhlöðupakkar geta ver- ið nauðsynlegir ef mikill og samfelldur vinnutími er fyrir- sjáanlegur en annars eru kaup á þeim peningaeyðsla því þeir eru dýrir og orsaka óþarfa mengun eða endurvinnslu. NiMH-rafhlöður eru vist- vænni en NiCd. Þær eru mjög dýrar en hafa góða eiginleika, fela til dæmis í sér um 10% meira orkumagn en eldri raf- hlöðugerðir af sömu þyngd. Tvær Makita-vélar í könnun- inni (6313 D og 6333 D) nota NiMH-rafhlöður. Endurhleðslutíminn skiptir Ifka miklu máli og hleðslu- tæki eru mjög mismunandi. Flest sem fylgja nýjum bor- vélum þurfa um eina klst. til að endurhlaða en hin ódýrari lengri tíma og sum eldri tæki 3-16 klst. eða meira. Langur endurhleðslutími getur skadd- að sumar rallilöður en nokkur hleðslutæki eru með varnar- búnað gegn ofhitnun eða of- hleðslu. Kostnaðarsöm leið er að nota hraðhleðslutæki sem geta fyllt ralTilöðupakka á 9-15 mín. Þau eru í raun bara fyrir atvinnumenn eða þá sem þurfa að vinna mikið eða oft með borvélinni. Gaumljós á rafhlöðusettun- um eru mjög gagnleg, sérlega með merki um hleðslustig þót,t það sé ckki alltaf mjög nákvæmt, en líka um hitastig, bilun o.fl. Ending rafhlaðna Eins og sést í töllunni var mjög mismunandi hve lengi fullhlaðnar ralTilöður réðu við ákveðna borun og skrúfun í beyki og furu, og sumar gátu engu bætt við eftir 15 mín- útna endurhleðslu. Vistvænt hugsandi notend- ur hirða vel um rafhlöðurnar svo þær dugi betur og þurfi sjaldnar að endurnýja. Gæði rafhlaðna eru breytileg eftir tegunduiYirÞær endast yfirleitt lengur eftir því sem volta- og Ah-tölurnar eru hærri og þeim mun duglegri reynast líka vél- arnar. (Framleiðendur gefa Ah-töluna ekki alltaf upp.) Flestar rafhlöður missa ónot- aðar um þriðjung af hleðsl- unni á þrcmur vikum. Við mjög lágt hitastig eða hátt rakastig dregur verulega hrað- ar úr endingunni. Til að láta rafhlöðurnar ná fullu geymslurými og nýta það sem best er ráðlegast að láta borvélina ítrekað ganga „út“ í tómagangi áður en hún er tekin í notkun í fyrsta sinn, þ.e.a.s. tæma rafhlöðurnar og endurhlaða til fulls nokkrum sinnum. Hafi vél legið ónotuð um langt skeið skal fara eins að og heppilegast er að gera þetta þrisvar til fjórum sinn- um á ári hvort sem vélin er notuð eða ekki. Ending borvélar Ending vélarinnar fer vita- skuld að mestu eftir notkunar- tíma, álagi og umhirðu. í tækniprófunum var vélunum þrælað út og fiestar virtust endingargóðar en gallar komu fram í þessum þremur sem eru á íslenskum markaði: ■ MetaboABE 12/2 RT: Kolefnisbursti og straum- vendir skemmdust í annarri prófunarvélinni og leiðsla frá rofa í vél bilaði í hinni. ■ Kress MSX 132: Gírbox var gallað í báðum vélum. ■ Black & Decker KC 1882 CK: Gírbox skemmdist í báðum vélum eftir minna en helming áskilinna próf- ana. Gagnlegir eiginleikar Átaksstýring (torque control) fylgir flestum rafhlöðuborvél- um enda er hún sérlega gagn- leg við skrúfun, til að stjórna hraða og átaki, svo skrúfur skemmist ekki, fari skakkt eða of djúpt í. Allar vélar í sölu hér eru með þennan búnað. Áreynsluvörn (overload protection): Flestar borvélar hægja á sér ef þrýst er fastar á en erfiða þá um leið meira og geta stöðvast. Sé þetta oft stundað veldur það miklu sliti og getur fijótt eyðilagt vélina. Áreynsluvörnin stöðvar hana til að koma í veg fyrir þetta. Stanslás (lock off) er mjög gagnlegur öryggisbúnaður, bæði vegna barna og þeirrar áhættu að vélin fari óvart í Aðrar rafhlöðuborvélar á markaði hérlendis sem ekki voru í könnun IT Vörumerki og gerð 9,6 volt Þyngd (kg) Fjöldi gíra Fytgi- hlutir10 Innflytjandi Stað- greiðstu- verð Bosch PBM 9,6 VE-2 1,5 gm Br. Ormsson 9.999 Atlas Copco PES 9,6 T 1,5 2 a Br. Ormsson 17.910 Hitti SB 10 xx) 1,65 2 ++ Hilti 29.989 12 voit Kinzo 25 C 240 1,2 1 mm Verkfærasatan 5.890 Builder BD 12 VDT 1,6 mm a Verfæralagerinn 8.980 Talon 7233 1,4 WBH a Verkfærasatan 9.980 Bosch PSR 12 VE 1,2 hh Br. Ormsson 11.128 Adam PSE 12 1,5 2 a Heitdsöluverslunin 11.600 Makita 6223D (1) 1,5 HH a, b Þór(5) 19.900 Bosch GSR 12 VES-2 (1) 1,8 2 a Br. Ormsson (6) 19.900 Atlas Copco PES 12 T 1,6 2 a, b Br. Ormsson 23.310 Metabo beat 212/2R+L (1) 2,2 2 a, b, c Bítanaust 32.156 Hilti SB 12 (1) 1,9 2 ++ Hilti 32.696 13,2 volt Kress 132 ADSE 1,9 2 a, b Verkfærasalan 24.900 14,4 volt T.I.P. 20312 1,4 1 a Heitdsölutagerinn 6.900 Kinzo 25 C 558 1,2 HHI a, d, f g Heildsölutagerinn 7.490 Kinzo 25 C 925 1,4 2 Heitdsölulagerinn 9.900 Adam PSF 14 1,7 H a Heildsötuverslunin 13.400 Wagner W 144 DQ 1,5 ■Hl a Bílanaust 16.870 Talon 7153 1,6 HHH a, b Vétar og verkfæri 17.286 ELU BSG 73 1,9 HH a, b, d Sindri (9) 24.900 Attas Copco PES 14,4T (1) 1,6 2 a, b Br. Ormsson 28.710 15,6 volt Taton TD 716310 1,6 2 Verkferasatan 15.900 16,8 volt Rotwerk EBA 168 TA 1,4 1 a, d, f Verkfærasalan 6.900 Kinzo 25 C 568 1,2 1 a, d, f. g Heitdsölutagerinn 8.990 Wagner W168 CD 1,7 1 a Bítanaust 10.655 18 volt T.I.P. 20316 1,5 1 a Heildsötulagerinn 8.900 ELU SBA 85 K 2,3 2 a, b, d Sindri 41.900 ++ 12% af andvirði tækisins fylgja með í fylgihlutum að eigin vali. 10. sjá skýríngu bls 13. 14 NEYTENDABLAÐIÐ - febrúar 1999

x

Neytendablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.