Neytendablaðið - 01.04.2003, Page 18
Gæðakönnun
Bílar fara batnandi
Audi A4 íékk hæstu gæðaeinkunn fyrir barna-
sætisfestingar og hita- og loftræstikerfi. Hér
fást ýmsar útgáfur á verðbilinu um 2,8-5 millj.
kr. hjá Heklu hf.
Nokkrar hæstu gæðaeinkunnirnar
Heildareinkunn Skoda Octavia Elegance 1.9 TDI Combi, VW Passat Trendline 1.9 TDI Sedan, BMW 3'er 320d Sedan, Fiat Stilo 1.9 JTD115
Nýting eldsneytis Skoda Octavia Elegance 1.9 TDI Combi, VW Passat Trendline 1.9 TDI Sedan, BMW 3'er 320d Sedan, Mercedes A170 CDI Elegance
Festingar barnasæta Fiat Stilo 1.9 JTD115, VW Golf 1.4, VW Polo 1.4, Alfa Romeo 147 2.0 TS, Opel Corsa 1.216 V Comfort Easytronic
Hemlunarvegalengd BMW 3-Compact 316 ti
Rými farangursgeymslu Ford Focus 1.6 Ghia, Lada 1101.5, Mercedes A170 CDI Elegance
Sjá töflur á bls. 22-23 og á vef NS, www.ns.is. Lykilorðið er labbi.
Gædakönnunin
Neytendablaðið birtir nú gæðakönnun
ICRT (International Consumer Research
and Testing) á 40 bílgerðum sem fengust
hérlendis í ársbyrjun 2003 (í könnuninni
í heild voru 185 bílgerðir). Við birtum
gæðaeinkunnir fyrir 15 atriði um hverja
bílgerð hér í blaðinu en á vefsetri sam-
takanna, www.ns.is, eru alls birt 45 atriði
um hverja gerð. Lykilorð félagsmanna að
læstum síðum er labbi.
MarkaÖskönnunin
Markaðskönnunin er á www.ns.is. Þarna
eru m.a. upplýsingar um verð, fjölda
dyra, eldsneytisgerð, vélarstærð og afl
bílgerðanna. Ódýrasti bíllinn var Lada
110 1,5 á 890.000 kr. en sá dýrasti BMW
3 330d á 4.650.000 kr.
Bílar ársins 2003
Nýlega var valinn bíll ársins 2003 á
vegum alþjóðlegrar dómnefndar 58 bíla-
blaðamanna frá 22 Evrópuríkjum en alls
kepptu 30 bílar um titilinn.
1. sæti: Renault Mégane II með 322 stig.
Úrslitum réð að sögn dómnefndar nýstár-
leg hönnun, bæði í útliti og tæknilegum
þáttum. Bendir hún á aksturseiginleika,
kraftmikla frammistöðu og öryggis-
búnað, auk þæginda fyrir bílstjóra og far-
þega. Bíllinn fæst hjá B&L á verðbilinu
1,7- 2 m.kr.
2. sæti: Mazda 6 með 302 stig. Hér fást
Mazda 6 1,6 á 1.870.000 kr. og Mazda 6
1,8 á 2.150.000 kr.
3. sæti: Citroén C3 með 214 stig. Hann
fékkst ekki hér en hins vegar þrjár aðrar
Citroén-gerðir á verðbilinu 1.970.000
-2.360.000 kr.
Renault Mégane II er í sérflokki í ör-
yggismálum enda hlaut bíllinn fimm
stjörnur eða hæstu mögulegu einkunn
fyrir öryggisbúnað í árekstra- og ör-
yggisprófunum Euro NCAP (European
New Car Assessment Programme). Það
var í fyrsta sinn sem bíll í flokki með-
alstórra fjölsky Idubifreiða (C-flokki)
hlaut þá viðurkenningu. Hingað til
hefur hún gengið til stærri og þyngri
bifreiða. Árekstrarvörnin olli því í öll-
um prófunum að engar þær skemmdir
urðu á klefa Renault Mégane II sem
valdið gætu bílstjóra eða farþegum
alvarlegum áverkum. Þetta má meðal
annars þakka því að vélarrúm fellur
saman við árekstur og að á hliðum eru
styrktarbitar auk þess sem Renualt not-
ar höggþolið stál í bifreiðarnar.
GóÖ ný ökutæki
Alþjóðasamtök neytenda (e. Consumer
International) birtu nýlega lista yfir þau
ökutæki sem virðast einna best í flokki
fólksbíla og pallbíla. Þessar gerðir fengu
allar einkunn yfir meðallagi fyrir traust og
áreiðanleika.
Besti bíllinn: BMW 530i. Sameinar frá-
bær þægindi í notkun og yfirburða þæg-
indi fyrir ökumann og farþega, bættan
öryggisbúnað, góða svörun og vandaða
smíð og frágang.
Skemmtilegastir í akstri: Subaru Impreza
WRX, sameinar snögga hröðun, mikla
lipurð í notkun og tiltölulega þægilegan
akstur. Honda S2000 Roadster, sameinar
afl, nákvæmni í stjórn og gott veggrip.
18 NEYTEHDABLAÐIÐ 1. TBL. 2003