Foringinn - 01.12.1975, Page 21

Foringinn - 01.12.1975, Page 21
Bandaríksa þjóöin mun halda upp á 200 ára afmæli sitt næsta ár. I tilefni þessa afmælis hafa banda- rískir kvenskátar boðið tveim íslenskum skátastúlkum til Bandaríkjanna næsta sumar. Dagana 10.-26. júnx verður haldið nokkurs konar mót í Þjóðgarði í Virginíufylki og rammi mótsins er: "Þú ert ábyrg fyrir náttúrunni". Eftir mótið verður dvalið á heimilum í um þrjár vikur. 1 allt eru þetta um 40 dagar. Allur dvalarkostnaður er borgaður af gestgjöfunum, en umsækjendur verða að borga ferðirnar frá Reykjavík til Bandaríkjanna og heim til Islands aftur. Einnig verða þátttakendur aö sjá sár fyrir vasapeningi. Þátttakendur eiga að vera á aldrinum 15 - 18 ára eða aðeins eldri. Vegna þess að mótið er einskonar hike mót þá þurfa þátttakendur að vera líkamlega hraustir og hafa mikinn ahuga á útilífi. Góð reynsla í skátastarfinu er nauðsynleg eins og hjálp í viölögum, eldun á hlóöum og fleira. Viö hvetjum alla félags- foringja aö íhuga þetta boö og þeir sem vilja sækja um eru beðnir aö snúa sér til skrif- stofu Bandala|s ísl. skáta fyrir 15. januar 1976. Einnig hefur borist boð frá norskum kvenskátum, þar sem þær bjóða til ráöstefnu um skátamót og útilíf. ís- lenskum skáta hefur verið boðið að koma og taka þátt í þessari ráðstefnu, sem haldin er í Shiffield dagana 9-12. apríl 1976. Þetta boö er ætlað foringjum og leiðbein- endum, sem hafa áhuga á úti- lífi og dagskrárgerö á mótum. Þátttakandi verður að greiða fargjaldið sjálfur frá Reykja- vík til Shiffield en uppi- hald er greitt af gest|jöfum. Þeir sem hafa áhuga snui sér til Bandalags xsl. skáta. Ef til vill er hægt að sam- eina þetta meö ferð til London. ★ ★ ★ Boð frá norsku K.F.U.K. skátunum um þátttöku á alþjóð- legu móti í Noregi n.k. sumar. Tími: 1-14. ágúst 1. 7. ágúst á heimili en^á mótinu frá 7-14. ágúst. Staður: NORDTANGEN, þjálfunar- miðstöð KFUK skátanna um 80 km norður af Osló. Leyfileg þáttt.: 10 skátast. og einn til tveir foringjar. Þátttökugjald: Mótsgjald N.kr. 250,- Ferðakostnaður frá Osló til Nordtangen og til baka um N.kr. 45,-. Tungumál: Allir verða að geta talað ensku. Dagskrá: listir og verkefni, leiklistar verkefni, sólarhrings hike, varð- eldar og fl. (Lutherskar helgiathafnir). Ötbúnaður: Persónulegur út- búnaður og svefnpokar, tjöld og mataráhöld munu verða útveguð. Löndum sem veröur boöið: Bretland, U.S.A., Kanada, Finland, Frakkland, Luxemborg, Island og Sviss. Þátttökutilkynningar veröa að berast fyrir 20. janúar 1976. 21

x

Foringinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Foringinn
https://timarit.is/publication/905

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.