Bændablaðið - 30.05.2000, Side 3

Bændablaðið - 30.05.2000, Side 3
Þriðjudagur 30. maí 2000 BÆNDABLAÐIÐ 3 Egendur Kjöhim- boðsins sameinast í nýju firrirtæki Nýtt sameinað fyrirtæki verður til 1. júlí næstkomandi með sam- runa Kjötumboðsins hf., Norð- vesturbandalagsins hf. á Hvamm- stanga og kjötsviðs Kaupfélags Héraðsbúa. Arsvelta hins sameinaða félags er áætluð um 2 milljarðar króna og starfsmenn verða vel á annað hundrað. Tilgangurinn með samein- ingunni er að auka arðsemi, gera fyrirtækið betur hæft til að þjónusta viðskiptavini, ásamt því að ná hag- ræðingu í slátrun og vinnslu, sam- kvæmt fréttatilkynningu frá Kjöt- umboðinu. Kjötumboðið hf. hefur síðan það yfirtók rekstur Goða 1993 náð að treysta stöðu sína á markaðinum og hafa viðskiptin aukist hratt. A síðustu þremur árum hefur sala á unnum kjötvömm aukist um 40%. Kjötumboðið hf. var rekið með hagnaði á sl. ári og er það verulegur viðsnúningur frá fyrri ári. Félagið er skuldlaust og eigið fé þess 118 milljónir króna um sl. áramót. Veltufjárhlutfall er 1,21. Helgi Óskar Óskarsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri Kjöt- umboðsins hf., mun hverfa til ann- arra starfa og hefur Valdimar Grímsson rekstrartæknifræðingur verið ráðinn til þess að gegna starfi framkvæmdastjóra hins nýja sam- einaða félags. Stjóm Kjötumboðsins hf. er þannig skipuð að formaður er Ingi Már Aðalsteinsson, aðrir í stjóm em Jón E. Alfreðsson, Jón Sigurðsson, Kristján Jóhannsson og Þorsteinn Benónýsson. Með því að nýta sér þjónustu Heimilislínu og Heimilisbankans á Netinu, má ná fram hagstæðari vaxtakjörum og umtalsverðum sparnaði í þjónustugjöldum - og það kostar ekkert að gerast áskrifandi. Þar með tryggir þú þér hærri innlánsvexti, lægri útlánsvexti, sparar kostnað af færslum, millifærslum og reikningsyfirlitum, auk þess að spara tíma. Betri kjör í Heimilislínunni • Hærri innlánsvextir á Gullreikningi (5,85% 01.04.2000) • Allt aö 500 þúsund kr. yfirdráttarheimild • Lægri vextir á yfirdráttarláni - aðeins gre'rtt fyrir nýtta heimild • Frítt stofngjald og ókeypis árgjald fyrsta árið af VISA farkorti • Allt að 500 þúsund kr. skuldabréfalán án ábyrgðarmanna • Greiösluþjónusta með útgjaldadreifingu • Ókeypis Heimilisbanki á Netinu og netáskrift á binetis • Sérstakur vaxtaauki (allt að 150.000 kr.) tengdur reglubundnum sparnaði (14 vaxtaaukar dregnir út árlega) • Við inngöngu, fjármálabókin .Fjármál heimilisins", vandaður penni eöa grillsvunta. Heimilisbankinn á Netinu Heimilisbanki Búnaðarbankans er gríðarlega öflugur netbanki með flölmarga notkunarmöguleika og hann er alltaf opinn. í Heimilisbankanum eru engin gjöld af færslum eöa millifærslum og þú sparar kostnað viö reikningsyfirlit. n(£ígiro - rafrænir reikningar Með Netgírói er hægt að fá upplýsingar af gíró- og greiösluseðlum beint í Heimilisbankann - og greiða þá á einfaldan og öruggan hátt. - einfalt og ömggt Meö Netgreiðslum er hægt að staðgreiöa vöru og þjónustu sem keypt er á Netinu. HEIMILISLÍNAN ®BÚNAÐARBANKINN Traustur bonki Vertu stórhuga - FELLA vortilboð Þýsk gæðavara í fararbroddi Fjölbreytt úrval heyvinnuvéla frá FELLA, sem er þekkt fyrir vandaðar, léttbyggðar og sterkar vélar. FELLA er þýskt fyrirtæki og í fararbroddi í heimalandi sínu. FELLA heyvinnuvélar hafa verið seldar hér á landi áratugum saman. Bændur hafa góða reynslu af FELLA, enda eru vélamar fyrsta flokks, verðið hagstætt og þjónustan góð. Bjóðum tímabundið tilboðsverð á öllum heyvinnuvélum frá FELLA. Verðdæmi Diskasláttuvélar ffá kr. 298.000 án vsk. Heyþyrlur frá kr. 278.000 án vsk. Stjömumúgavélar ffá kr. 228.000 án vsk. Bændur, gerið hagstæð innkaup tímanlega meðan tilboðið gildir. 5 ■ :£■ 2 • VELAVER? Lágmúli 7 Reykjavík Sí "V* . * ; I" - vvtíMi ■'"; > r. ■ ; Pantið fp* ■■.. fi"Sj ni i 46.1 4Jmm

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.