Bændablaðið - 30.05.2000, Blaðsíða 21

Bændablaðið - 30.05.2000, Blaðsíða 21
Þriðjudagur 30. maí 2000 BÆNDABLAÐIÐ 21 Mengunarmálin tekin fastari tðkum Nýlega efndi landbúnaðarráðu- neytið til fundar með fulltrúum ýmissa stofnana landbúnaðarins þar sem rætt var um mengun í landbúnaði af ýmsu tagi. Þótt minna sé um slík vandamál en almennt gerist erlendis var það samdóma álit fundarmanna að taka þurfl mengunarvarnir fast- ari tökum, bæði á sveitabýlum og í fyrirtækjum sem annast vinnslu landbúnaðarafurða. Kynntar voru leiðbeinandi regl- ur um góða búskaparhætti sem er skýrsla nefndar frá 1998 og m.a. lögð fram eftirfarandi skrá um helstu reglur sem taka til mengunarvarna beint eða óbeint. Sjá upptalningu í ramma hér fyrir neðan. Fram kom að um getur verið að ræða margskonar mengun sem fylgir landbúnaði og skyldri starf- semi svo sem efnamengun, úr- gangsmengun, lyktarmengun, hljóðmengun, loftmengun, sjón- mengun og erfðamengun. Talin er hætta á vaxandi mengun í tengsl- um við uppbyggingu stórra, þéttbærra búskapareininga og einnig í tengslum við ákveðnar tæknibreytingar, svo sem aukna notkun landbúnaðarplasts. Aætlað er að notuð séu um 1500 tonn af slíku plasti í landinu árlega. Bent var á hversu brýnt er að varðveita ímynd hreinleika og hollustu íslenskra landbúnaðara- furða. Fæðuöryggi væri hagur jafnt bænda sem neytenda og ferðaþjónustan kann vel að meta hreint og ómengað umhverfi. Að sögn Ólafs R. Dýrmundssonar sem sat fundinn vöktu Bændasamtök Islands sérstaka athygli á gæðastýringu sem nú er verið að koma á í öllum greinum íslensks landbúnaðar. Hún feli m.a. í sér auknar kröfur til mengunarvama. Reglugerð nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun. Reglugerð nr. 796/1999 um mengunarvamareftirlit. Reglugerð nr. 797/1999 um vamir gegn mengun gmnnvatns. Reglugerð nr. 798/1999 um fráveitur og skólp. Reglugerð nr. 804/1999 um vamir gegn mengun vatns af völdum köfnunarefnissambanda frá landbúnaði og öðmm atvinnurekstri. Reglugerð nr. 805/1999 um úrgang. Heilbrigðisreglugerð nr. 149/1994. Reglugerð nr. 50/1984 um notkun eiturefna og hættulegra efna í landbúnaði og garðyrkju og til útrýmingar meindýra. Reglugerð nr. 35/1994 um vamir gegn olíumengun frá starfsemi í landi. Lög nr. 18/1996 um erfðabreyttar lífvemr. Reglugerð nr. 504/1998 um vistvæna landbúnaðarframleiðslu. Reglugerð nr. 219/1995 með breytingu nr. 90/1998 um lífræna landbúnaðarframleiðslu. Reglugerð nr. 219/1991 um aðbúnað og heilbrigðiseftiriit á svínabúum. Reglugerð nr. 251/1995 um aðbúnað og sjúkdómavamir á alifugl- abúum og útungunarstöðvum. Reglugerð nr. 125/1996 um hænsnahald í búmm. Reglugerð nr. 444/1982 um loðdýrarækt og innflutning loðdýra. Reglugerð nr. 263/1991 um kanínurækt. Reglugerð nr. 671/1997 með breytingu nr. 616/1999 um aðbúnað nautgripa og eftirlit með framleiðslu mjólkur og annarra afurða þeirra. Reglugerð nr. 132/1999 um aðbúnað og heilbrigðiseftirlit hrossa. Reglugerð nr. 60/2000 um eftirlit með aðbúnaði og heilbrigði sauðíjár og geitfjár og eftirlit með framleiðslu kjöts og annarra afurða þeirra. Félag þingeyskra kúabænda NauOsynlegt íyrir kúabændur að skrá sig Þann 12. apríl var stofnfundur Félags þingeyskra kúabænda haldinn á Breiðumýri. Félagið er arftaki Félags kúabænda á sam- lagssvæði MSKÞ og er starfssvæði þess félagssvæði Búnaðarsambands Suður-Þin- geyinga. Formaður hins nýja félags er Kristín Linda Jónsdóttir Mið- hvammi, Atli Vigfússon Laxamýri er gjaldkeri og Sveinbjöm Sig- urðsson Búvöllum ritari. Varamenn stjómar em Ásvaldur Þormóðsson Stómtjömum og Ólöf Hallgrímsdóttir Vogum. I samþykktum félagsins segir; „Félagar geta þeir einir verið sem framleiða nautgripaafurðir sem lagðar em inn í afurðastöð og greitt hafa félagsgjald." Aðeins þeir sem skrá sig í félagið með formlegum hætti em félagar sem er ólíkt fyrra fyrirkomulagi þegar allir mjólkur- framleiðendur vom skjálfkrafa aðil- ar gegnum MSKÞ. Stjóm félagsins hvetur kúabændur á svæðinu til að ganga í félagið og minnir á að félagsaðild veitir atkvæðisrétt þegar greidd em atkvæði um hagsmunamál kúabænda Að sjálfsögðu geta fleiri en einn frá hverju búi gerst félagar enda félagsaðild bundin við einstak- linga en ekki framleiðslunúmer. Þess má geta að Erlingur Teits- son Brún og Hálfdan Bjömsson Hlégarði sem starfað hafa fyrir þin- geyska kúabændur um langa hríð gáfu ekki kost á sér til stjómarstarfa í nýja félaginu. Fyrir hönd þin- geyskra kúabænda em þeim færðar þakkir fyrir vel unnin störf. Miðhvammi/KLJ Teno Spin á íslandi Bændur! Verslið þar sem reynslan er mest og plastið er b...!!!!!!!!! Kverneland ŒJQspin Kverneland Teno Spin rúllubaggaplast Verð: 50 sm - 1.800 m kr. 4.130 + vsk 75 sm- 1.450 m kr. 5.150 + vsk Hafið samband við umboðsmenn okkar um land allt og tryggið ykkur gæðarúllubaggaplastið frá Teno Spin. Ingvar Helgason hf. Vélasala, Sævarhöfða 2, sími 525 8000. Umboðsmenn Búvélaverkstæðið Skipanesi, Skipanesi Jóhann Pétur Ágústsson, Brjánslæk Kaupfélag Hrútfirðinga, Borðeyri Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga Kaupfélag Skagflrðinga, Sauðárkróki Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar ehf. Stefán N. Stefánsson, 4 !^ÉÍé'**• ■>; *tV Breiðdalsvík Sigurður Jónsson, Hvolsvelli Kverneland Betri Bílasalan, FTTlsvin Selfossi

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.