Bændablaðið - 30.05.2000, Side 18

Bændablaðið - 30.05.2000, Side 18
18 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 30. maí 2000 Sturtu- vagnar og stálgrinda- hús frá WECKMAN Sturtuvagnar og flatvagnar Einnig þak og veggstál Stálgrindahús. Margar gerðir, hagstætt verð. H. Hauksson ehf. Suðurlandsbraut 48 Sími: 588-1130. Fax. 588-1131. Heimasími: 567-1880 Kyngetan aukin með lýsingu kvnlds og morgna Á loðdýrabúi LBH á Hvanneyri stendur nú yfir samanburður á tveimur pörunarkerfum fyrir minka. Borin er saman svokölluð bandarísk pörunaraðferð, sem að uppruna er bresk en hefur fengið bandaríska útfærslu, við hefð- bundna danska aðferð sem notuð er hér á landi. Bandaríska aðferðin hefur verið notuð þar vestra af mörgum minkabændum s.l. 10 ár með góðum árangri. Það sem þessi aðferð er talin hafa fram yfir hina hefðbundnu er hvað pörunartíminn styttist mikið, allar læður eru tví- til fimmparaðar, færri læður verða geldar og fleiri hvolpar fást eftir hverja paraða læðu. Þá er auðveld- ara að rækta út úr stofninum þau dýr sem hafa óeðlileg gangmál eða skerta kyngetu. Þau dýr, sem þarf að farga eftir pörun, högnar og óparaðar læður, hafa mun betri og verðmeiri skinn en hin sem eru felduð síðar. Ennfremur er talið að meðganga læðanna verði jafnari og styttist og þar af leiðandi koma læðurnar upp fleiri lifandi hvolp- um. Þá á gottíminn að verða styttri og jafnari og dýrin verða fyrr tilbúin til feldunar að haustinu. Kostir og gallar Eins og rakið er hér að framan á þessi bandaríska pörunaraðferð að hafa marga kosti og vegur þar hæst minni vinna, aukin frjósemi og ein- falt úrval fyrir eðlilegri kyngetu. Þá á hún að skila bóndanum auknum tekjum og betri samkeppnisstöðu. Gallamir við aðferðina em hins vegar þeir að meira álag er á starfsfólk búsins þá fáu daga sem parað er. Þá fá högnamir bætta aðstöðu í hálfan mánuð fyrir og á pömnartímanum, þar sem lýsing er sett yfir búr þeirra. Kyngetan aukin með lýsingu á morgnana og aftur á kvöldin Þar sem mikið álag er á högnana þá 6 daga sem pömnin stendur yfir þá fá þeir sérstaka ljósameðferð til að auka kyngetu sína. Yfir búr þeirra er strengd ljósasamstæða með venjulegum ljósapemm, með 250 cm millibili. Ljósasamstæðan er tengd lítilli klukku sem kveikir Ijós hjá högnunum hálftíma fyrir birtingu á morgnana og aftur í hálftíma við sólsetur á kvöldin. Nokkrar niðurstöður Hér við Landbúnaðarháskólann eru þegar komnar ákveðnar vísbendingar um þetta pömnar- kerfi en áætlað er að samanburður á kerfunum haldi áfram á næsta ári. I tilrauninni em 102 læður og tilheyrandi högnar og eru þau bor- in saman við önnur dýr á búinu sem pöruð em með hefðbundnum hætti. Á fyrstu þremur dögum til- raunarinnar pömðust 77 læður, eða rúmlega 75% þeirra, sem er mun meira en vanalegt er. Á seinni þremur pörunardögunum, sem fram fóm íjómm sólarhringum síðar, vom 100 þeirra paraðar eða 98%. Af þeim vom 5 einparaðar en hinar pömðust tvisvar til fimm sinnum. Þessi árangur er mjög góður á ekki fleiri dögum og þá sérstaklega hve fáar læður vom einparaðar, en einparaðar læður koma upp mun færri hvolpum að jafnaði. Eftir pömnina var sjö læðum fargað. Þeim tveimur læðum sem pömðust ekki og þeim fimm sem voru einparaðar. Högnunum var einnig flestum fargað, að undanskildum nokkmm kynbótahögnum sem keyptir vom sl. haust. Við athugun á pörunar- getu þeirra kom fram að þeir höfðu reynst vel. Aðeins einn högni paraði enga læðu, annar paraði eina en hinir pömðu 5 til 15 sinn- um eða að meðaltali tvær paranir á dag. Lýsing iiefur örvandi áhrif á högnana Þegar athugað var hvort lýsingin hefði áhrif á pömnargetu högn- anna kom fram að þeir högnar sem vom inn í virka ljósgeislanum (innan 125 cm radíus frá ljósaper- unni) pömðu mun meira. Þannig töldust 162 paranir hjá þeim högnum sem vom inni í virka ljósinu, en 137 paranir hjá jafn mörgum högnum sem vom utan þess. Munurinn er verulegur þar sem högnamir í besta ljósinu voru 18% afkastameiri í pömninni. Eftir er svo að vita hvort kviknað hefur líf af öllum þessum pörunum, en svar við því fæst í næsta mánuði þegar minkagotið er afstaðið. Það má geta þess til gam- ans að fyrirspum hefur komið til starfsmanna skólans hvort talið sé að aukin lýsing á þessum tíma sólarhringsins virki eins á önnur dýr og þar með mannskepnuna. Sigurjón Bláfeld, loðdýrarœktarráðunautur BÍ SERTILBOÐ SUMARTILBOÐ Á BÚVÉLA- OG VINNUVÉLADEKKJUM verðdæmi: fullt verð tilboð án vsk 11,2 R24 28.430,- 21.322,- 17.126,- 350X8 3RIB 1.275,- 1.020,- 819,- fleiri dæmi: fullt verð tilboð án vsk 13.6R24 33.575,- 26.860,- 21.574,- 18,4x26 64.421,- 51.537,- 41.395,- 16,9-14X34 43.421,- 34.737,- 27.901,- 480/70R38 79.278,- 63.422,- 50.942,- 350X6 T510 1.235,- 865,- 694,- 350X6 3rib 2.121,- 1.485,- 1.193,- JEPPADEKK - FÓLKSBÍLADEKK -GOTT VERÐ fleiri dæmi: fullt verð tilboð án vsk 10.00x16 10 pr 11.00X16 10 pr 11,5-80X15,3 10PR 13-75X16 10PR 16.561,- 18.078,- 13.250,- 17.840,- 13.249,- 14.462,- 10.600,- 14.272,- 10.642,- 11.616,- 8.514,- 11.463,- AKUREYRI, S. 462 3002 FELLABÆ, S. 471 1179 Framleiðum úr gúrrtmíi hlífar á bita. 1----15 cm Einnig mottur eftir máli í stíur og bása. CQ GúmmímúTun Borgartúni 2 550 Sauðárkrókur Sími 453-6110, fax 453-6121.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.