Bændablaðið - 30.05.2000, Blaðsíða 4
4
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 30. maí 2000
Útgefandi:
Bændasamtök
íslands
Bændahöll við Hagatorg,
127 Reykjavík
Sfmi:
563 0300
Fax á aðalskrifstofu BÍ:
562 3058
Fax hjá Bændablaðinu:
552 3855
Kennitala:
631294-2279
Ritstjóri:
Áskell Þórisson (ábm.)
Beinn sími ritstjóra:
563 0375
GSM sími: 893 6741
Heimasími ritstjóra:
564 1717
Netfang:
bbl@bondi.is
Auglýsingastjóri:
Eiríkur Helgason
Beinn sími auglýsingastjóra:
563 0303
Blaðamaður:
Hallgrímur Indriöason.
Blaðstjórn:
Sigurgeir Þorgeirsson,
Hörður Haröarson,
Þórólfur Sveinsson.
Bændablaðið kemur út
hálfsmánaðarlega. Því er dreift til
allra bænda landsins og fjölmargra
annarra er tengjast landbúnaði.
Alls fóru 6.519 eintök í dreifingu
hjá íslandspósti hinn 15. febrúar sl.
Bændablaðinu er dreift frítt til
þeirra er stunda búskap en
þéttbýlisbúar geta gerst
áskrifendur að blaðinu.
Árgangurinn kostar kr. 3.800 en
sjötugir og eldri greiða kr. 1.800.
Umbrot: Prentsnið
Prentun: ísafoldarprentsmiðja
Nr. 114
ISSN 1025-5621
BændgbLoðið
Hver er að éta gengishagnaðinn?
Að undanfömu hefur Davíð Oddsson,
forsætisráðherra, rætt um það að matvara
hafi hækkað óeðlilega mikið í Ijósi sterkrar
stöðu krónunnar gagnvart evrópskum
gjaldmiðlum. Þannig segir DV að
forsætisráðherra hafi til dæmis hvað eftir
annað gefið í skyn að verðmyndun í
verslunum Baugs sé óeðlileg - en litlar
líkur eru á að forsætisráðherra ræði um
slíka hluti nema að hann hafi viti að það
sé maðkur í mysunni. Forsætisráðherra er
greinilega búinn að fá nóg af því hvernig
matvara hækkar og hækkar án sýnilegra
ástæðna.
Jón Ásgeir Jóhannesson, sem stýrir
Baugi, tekur undir það með
forsætisráðherra að neytendur hafi verið
hiunnfarnir en kennir heildsölum um
ástandið - og bætir landbúnaði við. Nú er
það svo að þegar fólk verður fyrir
ásökunum, sem það á erfitt með að
verjast, leitar það auðveldra leiða út úr
ógöngunum. Þetta er ódýr aðferð sem
líklega verður að lokum kennd við Bónus.
Umræðan er einföld og ef til vill pirrar það
forstjóra Baugs. Forsætisráðherra telur að
verðmyndunin í versluninni sé ekki eðlileg
og að það standi enn óútskýrt hvers
vegna verðlækkun í helstu
viðskiptalöndum okkar og hið sterka gengi
krónunnar hafi ekki skilað sér inn á
matvörumarkaðinn.
í viðtali við sjónvarpsstöð sló Jón
Ásgeir Jóhannsson um sig og talaði um
gífurlegan kostnað af nýgerðum
búvörusamningi sem hann gaf í skyn að
væri rót meinsins. Sem betur fer veit
íslensk þjóð - og sá hluti kaupmanna sem
hefur farið út fyrir borgarmörkin - að
stuðningur við landbúnað og tollvernd
þjónar margþættum tilgangi og ekki síst
þeim að tryggja matvælaöryggi og sjálf-
stæði þjóðarinnar og viðhalda ákveðnu
byggðamynstri í landinu. Auðvitað kostar
það samfélagið eitthvað og ísland - legu
sinnar vegna - er ekki ódýrt land. Um
þessi mál er þokkaleg, pólitísk sátt í
landinu enda lítið vit í að stefna öllum
landsmönnum á höfuðborgarsvæðið.
Setja má upp dæmi sem líklegt er að
Jón Ásgeir skilji: Hægt er að framleiða alla
mjólk landsins á Suðurlandi og án efa er
hægt að reikna út að það sé hagkvæmt.
Ef framleiðslan flyttist suður veiktist byggð
í Eyjafirði. Fólk mundi flýja og innan
skamms þyrftu eigendur
Hagkaupsbúðarinnar við Norðurgötu 62 á
Akureyri að loka henni. Fjárfestingin væri
þeim einskis virði. Með öðrum orðum:
Landbúnaðurinn er liður í því að annað
atvinnulíf sé arðbært. Þannig hefur
reynsla annarra þjóða til dæmis sýnt að
ferðaþjónusta deyr drottni sínum ef annað
atvinnulíf hverfur á brott.
Fákeppnisstjórar sem tala um að
íslenskar búvörur séu dýrar ættu að líta í
eigin barm. íslenskir bændur kunna
margar sögur um það hve mikið þeir lögðu
á sig til að lækka framleiðslukostnað en
að aðrir hafi hirt mismuninn.
Samkvæmt vísitölu neysluverðs hafði
verð á búvörum (án grænmetis) um
hækkað um 4,1% sl. 12 mánuði nú í maí.
Á sama tíma nam hækkun vísitölu
neysluverðs 5,9%, innfluttar mat og
drykkjarvörur hækkuðu um 6,9% og aðrar
innlendar mat og drykkjarvörur um 6,3%.
Þetta hlýtur að segja meira en mörg orð
um það hverjir hafa skilað hagræðingu hjá
sértil neytenda á liðnum misserum. Hér er
fyrst og fremst um það að ræða að
hagstætt verð ytra hefur ekki skilað sér í
vasa neytenda. Um það snýst málið þótt
forstjóri Baugs reyni að láta í það skína að
vandinn sé íslenskur landbúnaður.
Hækkuð álagning hjá stóru verslunar-
keðjunum á ekki að koma neinum á óvart.
Hún er bakhliðin á eignamyndun á hluta-
bréfamarkaði. Augljóst var þegar Baugur
var verðiagður á um 10 milljarða og að
stórum hluta seldur án þess að um
verulegar, áþreifanlegar eignir væri að
ræða, að nýir fjárfestar gerðu miklar
arðsemiskröfur, varla undir 15%. Á 7 ára
tímabili gæti því arðsemiskrafa eigenda
Baugs numið nálægt 10 milljörðum (2/3 af
kostnaði vegna nýs sauðfjársamnings) og
þann kostnað greiða varla aðrir en
viðskiptaaðilar Baugs. Hluta greiða
framleiðendur varanna í formi aukins
afsláttar og hitt greiða neytendur í hærra
vöruverði. Hlutverk Jóns Ásgeirs er að sjá
til þess að þessar greiðslur skili sér til
hluthafa í formi arðs.
Sem betur fer hefur forsætisráðherra
ákveðið að hið opinbera rannsaki hvernig
stendur á því að hrun evrunnar - sem er
gjaldmiðill Evrópusambandsins - hefur
ekki skilað sér í lægra vöruverði hérlendis.
Og hann hefur boðað að niðurstaðan verði
gerð opinber. Það verður fróðlegt að sjá
hver er að éta gengishagnaðinn, en það
eru ekki íslenskir neytendur eða bændur -
svo mikið er víst. Getur hent sig að
fákeppnisforstjórar sitji að snæðingi og
heildsalar þjóni til borðs?
-Ritstj.
Það hefur varla farið fram hjá neinum að
Netið heldur nú innreið sína inn á flest
heimili af fullum krafti. Netið er eitt heiti á
þessu fyrirbæri sem á útlensku heitir því
snaggarlega nafni Intemet. Áhugafólk um
íslenska tungu hefur reynt að koma góðu
íslensku heiti á Internetið með misjöfnum
árangri. Nýjasta ujjpástungan sem ég
heyrði er Lýðnet. Eg vil stinga upp á heit-
inu Heimsnet, sem mér finnst lýsa best
þessu neti sem teygir sig um allan krók og
kima heimsins, og er sannanlega eign alls
heimsins. Það er nefnilega svo að enginn
einstaklingur, fyrirtæki, stofnun eða land
getur kastað eign sinni á Heimsnetið.
Heimsnetið samanstendur af óteljandi
tölvum sem allar eru tengdar saman í eitt
net - Heimsnetið. Allir geta gerst aðilar að
þessu heimssambandi; aðeins þarf venju-
lega einkatölvu og samband við Heims-
netið. Sumir hafa líkt Heimsnetinu við lif-
andi veru og má vissulega til sanns vegar
færa. Stjómvöld í mörgum löndum hafa
haft fulla ástæðu til að óttast Heimsnetið
enda lýtur það engri stjóm og þar ríkir
óskorað lýðræði þegnanna. Netveijar, eða
þegnar þessa samfélags, hafa þó sett sér
ákveðnar reglur enda vita þeir að frelsið er
vandmeðfarið og misnotkun á því gæti
kallað á aðgerðir stjómvalda til að koma
lögum og reglu á þetta samfélag. Vemleg
hætta er á því að ef stjómvöld brytust inn í
þessa alþjóðlegu veröld með setningu laga
og reglna þá yrði það verulegur dragbítur á
útbreiðslu Heimsnetsins. Þó frelsið sé
vandmeðfarið þá er stjómhyggja misviturra
stjómvalda enn vandmeðfamari.
Heimsnetið er allra
I fyrstu var Heimsnetið vettvangur tölvu-
spekúlanta og grúskara. Þá var þörf á tölu-
verðri kunnáttu á tölvum til að notfæra sér
það. En eins og allt sem snýr að tölvum þá
breyttist þetta hægt og bítandi og varð að
almenningseign. Markaðsmenn allra landa
hafa nefnilega fundið út að með Heimsnet-
inu má græða peninga og það mikla pen-
inga! Og þegar hinn fijálsi markaður tók
við sér tóku hjólin að snúast. Netið (stytt-
ing á Heimsnetið) hefur haldið inn á heim-
ilin í auknu mæli og að nokkrum ámm
liðnum verður aðgangur að því jafn
sjálfsagður og aðgangur að sjónvarpsefni.
Mjög mörg heimili á íslandi hafa aðgang
að Netinu í dag eftir að bankamir fóm að
bjóða „ókeypis" áskrift. Þessi ókeypis
aðgangur er þó ekki ókeypis þar sem
greiða þarf fyrir skrefafjölda til
Landssímans og getur það orðið dágóð
upphæð ef Heimsnetið er notað að ein-
hverju ráði. Erlendis em símafyrirtækin
byrjuð að bjóða símnotendum fasta áskrift
á mánuði fyrir tengingu við Netið. Ég vona
að ekki verði langt að bíða þess að sam-
keppnin á símamarkaðnum hér á landi leiði
til þess að netveijar njóti hennar í fastri
áskrift. í raun finnst mér það eitt mik-
ilvægasta atriðið í útbreiðslu og áframhald-
andi notkun Netsins að slík föst áskrift
bjóðist að Netinu óháð notkun þess. Fyrst
þá verður unnt að fara bjóða upp á
hugbúnað á Netinu sem krefst sítengingar
við það.
Bœndasamtökin inn á
Heimsnetinu
Bændasamtökin hafa t.a.m. ákveðið að
kom sem flestum af sínum forritunum á
Heimsnetið þannig að bændur geti fengið
beinan aðgang að skýrsluhaldskerfum og
gagnasöfnum með gagnvirkum hætti
þ.e.a.s. geti skráð og sótt upplýsingar.
Fyrsti vísir að þessu var aðgangur að
gagnasafni Bændasamtakanna í hrossarækt
með Veraldarfeng sem opnaður var árið
1997 og næsta skref hefur nú verið stigið
með útkomu nautgripaforritsins ÍSKÝR,
sem nýtir sér aðgang að Netinu til að sækja
og senda upplýsingar úr skýrsluhaldinu. Þá
er verið að vinna að WorldFengur verkefn-
inu sem verður algjörlega á Netinu. Þar
geta hrossaræktendur hérlendis og erlendis
skráð skýrsluhald sitt beint á Netinu og
haft aðgang að miðlægu og alþjóðlegu
gagnasafni um íslenska hestinn.
Heimsnetið inn á hvert heimili og inn í
hverju herbergi!
Þessu tengt má benda á að í byijun apríl
kynntu t.a.m. fyrirtækið AOL og Gateway
tölvufyrirtækið að þau ætluðu í
samstarf um að bjóða „Instant
AOL“ þar sem netverjar munu
geta haft aðgang að AOL
þjónustu á Netinu í hverju her-
bergi heimilisins með nýju
tæki sem þessi fyrirtæki ætla
að koma á markað. Á
vorsýningu Intemet World
2000 í Los Angeles kynnti
Gateway fyrirtækið ný tæki í
þessu sambandi, sem m.a.
byggjast á flötum (fyrirferðal-
itlum) skjám og snúrulausu
^ lyklaborði, sem hægt er að
setja upp hvar sem er á
heimilinu og komast
inn á Netið. Enn-
fremur má nefna
að Bill Gates
fyrrv.
forstjóri
MicroSoft
vinnur nú að verkefn-
um sem tengjast því að gera Netið
aðgengilegra og þægilegra fyrir almenn-
ingi. Hvort málaferli stjómvalda í Band-
aríkjunum gegn MicroSoft fyrirtækinu eiga
eftir að breyta þessu er of snemmt að segja
til um, en eflaust eiga áhugaverðar nýjung-
ar eftir að koma út úr þessari vinnu hjá
MicroSoft, sem eiga eftir auka enn notkun
Heimsnetsins.
Jón Baldur Lorange, forstöðumaður
tölvudeildar BÍ