Bændablaðið - 30.05.2000, Blaðsíða 10
10
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 30. maí 2000
HVANNEYRARBRÉF
Nokkur atriði
um káHauppeldi
Mikil vakning virðist eiga
sér stað í þeirri umræðu að
uppeldi á góðri mjólkurkú
hefjist strax þegar
kvígukálfurinn fæðist.
Sums staðar virðist sá
misskilningur lengi hafa
verið við líði að kvígan
skipti litlu máli fyrr en rétt
fyrir sinn fyrsta burð þegar
fara á að venja hana við
nýjar aðstæður og annars
konar umgengni. Sem betur
fer er þetta ekki alveg
almenn hugsun manna en svona
þankagangur viðgengst þó enn.
Það er því ákaflega ánægjulegt að
sjá bændur eins og þá
Þorvaldseyrarfeðga sem virðast
gera sér góða grein fyrir mikilvægi
kálfauppeldis og góðri, natinni
umhirðu gripsins alla tíð
(viðtalsgrein sem birtist í 6.
tölublaði Bændablaðsins á þessu
ári). í viðtalinu segir Ólafur bóndi
á Þorvaldseyri; „Kvígueldið er
einn mikilvægasti hlekkurinn í
mjólkurframleiðslunni, því
þetta eru nú okkar
framtíðar mjólkurkýr."
Sem dæmi um
nýframkvæmdir þeirra
feðga má nefna
kálfafóstruna sem líkir eftir
náttúrulegri
drykkjarhegðun kálfanna.
Þeir geta fengið sér
fyrirfram ákveðinn
skammt af mjólk hvenær
sólarhringsins sem er. Það
er kálfum í rauninni ekki
eðlislægt að drekka slurk af mjólk
tvisvar sinnum á dag og sú
„fóðurtækni" því í raun óhentug
þó hún sé nær oftast viðhöfð.
Þegar kálfur sýgur móður sína er
hann að fá broddmjólkina í réttu
ástandi m.t.t. hitastigs, svo dæmi
sé tekið. Hverjum kálfi er
nauðsynlegt að fá 2 lítra af
broddmjólk, helst innan 2 klst. frá
fæðingu. Ef kálfur fær ekki að
sjúga móður sína er gott viðmið að
kálfurinn fái 1 líter í einu, 4
sinnum á dag fyrstu sólarhringana.
Mikilvægt er að hitastig
mjólkurinnar sé sem næst
líkamshita 38°C, því þá hleypist
hún á um 5 mín. Sé hún 15°C
hleypist hún á 6 klst., mjólkin berst
þá óhleypt úr vinstur í þarma og
veldur skitu. Fyrstu sólarhringana
(1-2) komast mótefnin í
broddmjólkinni óskemmd frá
þörmum og yfir í blóðið. Þessi
hæfileiki getur þó verið til baga,
m.t.t. sýkingarhættu um
meltingarveginn og út í blóðið.
Annar liður í góðum
aðbúnaði nautgripa er svokölluð
burðarstía. Fyrstu daga kálfsins er
hann vamarlaus gegn ýmsum
sýkingum sem kunna að leynast í
umhverfi hans. Helstu smitleiðir
eru í gegnum naflastrenginn og í
gegnum meltingarveginn, sér í lagi
á broddmjólkurskeiðinu. Undirlag
kálfsins þarf því að vera þurrt og
hreint til þess að dregið verði úr
smithættunni. Kaldur,
steinsteyptur fóðurgangurinn fyrir
framan kúna er því ekki
ákjósanlegasti staðurinn fyrir
nýfæddan kálfinn. Burðarstíur
hafa ekki rutt sér til rúms hérlendis
en em víða í fjósum erlendis. Þar
er sú viðmiðun að fyrir hverjar 30
kýr í fjósi skuli vera ein burðarstía.
í náttúmnni draga kýmar sig út úr
hópnum og halda sig einar. Þær
leita vars fyrir rándýmm þar sem
kálfurinn getur legið kyrr fyrstu
dagana. Með burðarstíum emm
við að búa kúnum möguleika á því
að líkja eftir þessu atferli og
stuðlum að sem eðlilegustum
aðstæðum við burð. Hversu lengi
kálfurinn á að fá að vera hjá kúnni,
er álitamál. Þrír til fimm dagar er
algeng viðmiðun en þó fer það
alfarið eftir heilsufari kýrinnar og
kálfsins. Svo vitnað sé í bók
Sveins Guðmundssonar, Hraustar
kýr (1996), þá hafa margar
athuganir sýnt að kálfar sem fá að
vera með kúnni fyrstu dagana eftir
burð (og sjúga hana) vaxa hraðar
og dafna betur. Þá virðast kýr, sem
fá að hafa kálfmn hjá sér fyrstu
dagana, fá síður júgurbólgu, doða,
súrdoða eða fastar hildir.
Skýringin á þessu er sú að nærvera
kálfsins stuðlar að jafnvægi
kýrinnar eftir burðinn. Auk þessa
segir Sveinn í bók sinni: „Sannað
þykir að frásog mótefna frá
þörmum er betra meðal kálfa sem
sjúga mömmu sína en þeirra sem
fá broddinn úr fötu“ (Sveinn
Guðmundsson, Hraustar kýr.
1996. bls. 23).
Burðarstía er mikilvægur fyrsti
hlekkur í aðbúnaði og uppeldi
kálfa, sem skiptir miklu máli í
afkomu góðs kúabús. Þeir sem
huga að nýbyggingu eða
endurbótum á fjósi ættu því að
gera ráð fyrir burðarstíu í fjósinu
en hún gæti líka gengt hlutverki
sjúkrastíu ef með þyrfti. Þá má
alltaf kanna möguleikann á því að
búa til burðarstíu, t.d. í viðbyggðri,
ónotaðri þurrheyshlöðunni!
Orri Páll Jóhannsson
Nemandi við Bœndadeild
Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri
Innflntningur íslenskra
kúa fll Vestmannaeyja
Á fyrri hluta síðustu aldar
voru þónokkur kúabú í
Vestmannaeyjum. En
nautgripum fór fækkandi
þegar leið á öldina og í
gosinu á Heimaey 1973,
var þeim fáu gripum sem
eftir voru fargað niður við
höfn í fiskvinnusluhúsi
Hraðfrystistöðvarinnar,
sem nú er farið undir
hraun.
Síðan þá hafa
nautgripir ekki stigið fæti á
eyjuna, ef undanskilinn er
nautkálfur sem bræður unnu í
happadrætti og kom í stutta
„heimsókn" á eyjuna til
eldis, þar til hann var
sendur í sláturhús.
I lok síðasta sumars
sóttu tveir athafnamenn úr
Vestmannaeyjum,
Sigurgeir Jónsson, kennari
og Ómar Garðarsson,
blaðamaður, um leyfi
bæjaryfirvalda til þess að
fá að flytja tvær kvígur á
eyjuna, til reynslu. Óskuðu
þeir eftir því að fá
Stakkagerðistún, til nytja,
en túnið er staðsett í miðjum bæ
Heimaeyjar, og er notað til
útivistar fyrir almenning. Ef að vel
tækist til þá var ætlunin að stækka
við sig.
Þeir ítrekuðu umsókn sína og
tóku þá ennfremur fram að ef
Stakkagerðistúnið væri ekki inni í
myndinni þá yrðu þeir ánægðir
með að fá úthlutað öðru
sambærilegu landsvæði á eynni.
Einnig bentu þeir á að þetta væri
nýsköpun í atvinnulífi eyjanna, þar
sem sambærilegur búskapur hafi
ekki verið stundaður á eynni í
rúman aldarljórðung.
Þegar þeir fengu aðra synjun,
sendu þeir inn þriðja bréfið og þá
útlistuðu þeir enn frekar hver
áætlan þeirra væri með
búskapnum.
Auk þess að framleiða lífræna
mjólk, höfðu þeir í huga að nýta
afurðir nautgripanna til fulls og
framleiða hámæringu og húð-
smyrsl úr úrgangsefnum þeirra.
Einnig vildu þeir efla rannsóknir á
vinnslu á lífrænu gasi úr mykju, og
bentu í því sambandi á nýlega
samþykkt Bæjarveitna Vest-
mannaeyja, um framleiðslu á
lífrænum áburði. Að endingu
bentu þeir á að nýlegar tilraunir í
Japan benda til þess að unnt sé að
framleiða úr ógerilsneyddri mjólk
með sérstakri aðferð, efni sem
hefur betri og skjótari virkan en
stinningarlyfið Viagra.
Enn var þeim synjað en þeir
eru þó ekki hættir, þó þeir séu
famir að leita á önnur mið. Nýlega
birtu þeir opinberan spumingalista
til bæjarstjórnar Vestmannaeyja,
þar sem að þeir krefjast svara.
Ekki er öll nótt úti enn og
aldrei að vita nema að á næstu
ámm, þegar Islendingar fara að
flytja erfðavísa úr norskum kúm til
Islands, að farið verði að flytja inn
íslenskar kýr til Vestmannaeyja.
Jóna Sveinsdóttir
Nemandi við Bœndadeild II
Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri
Hið fræga naut, Guttormur, sem
er til heimilis í Húsdýragarðinum,
var fluttur um set þar á dögunum
þegar skólabörn frá Selfossi af-
hentu skólabörnum úr Reykjavík
og forsvarsmönnum Húsdýrag-
arðsins nýja stfu handa Guttormi
en farið var að þrengja að honum
i básnum sem hann stóð í áður.
Ýmsar nýjungar eru fyrir-
hugaðar í starfi Fjölskyldu- og
húsdýragarðsins á næstunni.
Lengja á opnunartímann, auka
skemmtidagskrá og fjölga dýra-
tegundum auk þess sem aukin
áhersla verður iög á fræðslustarf.
Þá má geta þess aö garðurinn
hefur nú opnað skemmtilegan vef
með fréttum og upplýsingum um
starfsemina. Slóðin er www.mu.is.
Á myndinni sjáum við Ingi-
björgu Sólrúnu Gfsladóttur borg-
arstjóra og Guðna Ágústsson
landbúnaðarráðherra í hópi krakk-
anna frá Selfossi.
Búnaðarþingsfulltrúar
búnaðarsambanda:
Fjögur búnaöarsambönd eiga nú eftir
aö kjósa búnaöarþingsfulltrúa og
verður væntanlega kosið í þeim
flestum í júní. Alls hafa tiu búnaðar-
sambönd gengiö frá kosningu 15
búnaöarþingsfulltrúa. Hér á eftir kemur
listi yfir þá fulltrúa á búnaöarþingi sem
búiö er aö kjósa og hvenær kosið
verður í öörum búnaðarsamböndum.
Búnaðarsamband Kjalarnesþings:
Aðalmaður:
Guðmundur Jónsson, Reykjum.
Varamaður:
Kristján Oddsson, Neöri-Hálsi.
Vesturland:
Bs. Dalamanna:
Aðalmaður:
Bjarni Ásgeirsson, Ásgaröi.
Varamaöur:
Siguröur Þórólfsson, Innri-Fagradal.
Bs. Borgarfjarðar:
Aöalmenn:
Haraldur Benedikfsson, Vestri-
Reynum.
Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson,
Bakkakoti.
Bs. Snæfellinga:
Aðalmaður: Guðbjartur Gunnarsson,
Hjarðarfelli.
Varamaður: Jónas Jóhannesson,
Jörva.
Búnaðarsamband Vestfjarða:
Kosið 23. júní
Búnaðarsamband Strandamanna:
Aöalmaöur:
Georg Jón Jónsson, Kjörseyri.
Varamaður:
Guðbrandur Sverrisson,
Bassastöðum.
Búnaðarsamband V-Húnvetninga:
Einn listi barst kjörstjórn og telst hann
sjálfkjörinn.
Aðalmaður:
Tómas Gunnar Sæmundsson,
Hrútatungu.
Varamaður:
Rafn Benediktsson, Staðarbakka.
Búnaðarsamband A-Húnvetninga:
Aðalmaður:
Jón Gíslason, Stóra-Búrfelli.
Varamaður:
Ragnar Bjarnason, Norðurhaga.
Búnaðarsamband Skagfirðinga:
Enginn listi barst áður en
framboðsfrestur rann út. Almennar
kosningar verða haldnar á næstunni.
Búnaðarsamband Eyjafjarðar:
Aöalmenn:
Haukur Halldórsson, Þórsmörk,
Svalbarðsströnd.
Svana Halldórsdóttir, Melum,
Svalbarðsströnd.
Varamenn:
Stefán Magnússon, Fagraskógi.
Stefán Tryggvason, Þórisstöðum.
Ráöunautaþjónusta Þingeyinga:
Aðalmenn:
Ari Teitsson, Hrísum
Jón Benediktsson, Auðnum.
Varamenn:
Geir Árdal, Dæli.
Hávar Vagn Sigtryggsson, Hriflu.
Búnaðarsamband Austlands:
Aðalmenn:
Lárus Sigurðsson, Gilsá
Sigriður Bragadóttir, Sfreksstöðum
Þorsteinn Kristjánsson, Jökulsá.
Varamenn:
Anna Bryndís Tryggvadóttir, Brekku.
Sigurbjörn Snæþórsson, Gilsárteigi.
Friðbjörn Haukur Guömundsson,
Hauksstöðum.
Búnaðarsamband A-
Skaftafellssýslu:
Aðeins einn listi kom fram. Auglýst
hefur verið eftir öðrum lista og rennur
frestur út til að skila honum 6. júnf.
Búnaðarsamband Suðurlands:
Kosið tii 15. júní, talning hefst 19.
júní.