Bændablaðið - 17.10.2000, Blaðsíða 12
12
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 17. október 2000
Unganga nautgripa
að vetrarlagi
Kúabúum á íslandi fækkar og
þau stækka. Húsrými setur
stækkun búanna oft skorður og
bændur leita því nýrra leiða. Ein
þeirra er að láta hluta gripanna
ganga úti hluta vetrar eða jafn-
vel allan veturinn.
Mikilvægt er að aðstæður grip-
anna séu viðunandi frá dýravernd-
arsjónarmiði. I reglugerð um
aðbúnað nautgripa segir m.a.:
„Gripir sem ganga úti skulu geta
leitað skjóls fyrir óveðrum í
gripahúsum eða sérstöku skýli sem
hefur þrjá veggi hið minnsta, nema
jafngilt náttúrulegt skjól sé til
staðar. Héraðsdýralæknir tekur út
slík skýli og getur bannað
útigöngu ef viðunandi skýli eru
ekki til staðar. Umhverfi, hönnun
og viðhald skýla og húsa skal vera
þannig að gripir haldist hreinir.
Ætíð skal vera til staðar rými inn-
anhúss fyrir gripi sem þurfa
sérstakrar umönnunar við.“
Útiganga hefur bœði kosti og
galla:
+ Byggingarkostnaður lítill
miðað við hefðbundnar ein-
angraðar byggingar
+ Minni vinna
+ Betra heilbrigði
+ Eðlilegt atferli
- Meira fóður
- Erfiðari umhirða
- Hentar ekki öllu landi
- Hentar ekki óvönum,
bóndinn verður að vera
skepnuglöggur
Forsendur fyrir vetrarútigöngu
Veðurfar er takmarkandi þáttur
fyrir útigöng. Nautgripir þola þó
nokkuð frost ef þeir geta leitað
skjóls fyrir vindi. Dýrin verða að
venjast kuldanum smám saman og
því má ekki setja dýr út aftur að
vetrarlagi.
Eðlilegur vetrarundirbúningur
dýranna er:
* Aukinn feldur. Dýr með þykkan
feld veijast betur kulda en
þunnhærð dýr.
* Aukin fitusöfnun. Mikill kostur
er að dýrin safni fitunni undir
húðina þar sem fitan einangrar
vel. Holdagripir og t.d. íslensk
hross hafa þessa fitudreifingu en
mjólkurkúakyn safna fitu í
kviðarhol þar sem hún hefur
engin einangrandi áhrif.
* Aukinn meltingarhraði. Dýrin
þurfa meira fóður til varma-
framleiðslu.
Varmatap dýranna
Rok og rigning veldur mjög miklu
varmatapi. Umhleypingar með
rigningu, slyddu, vindi, miklum
loftraka og snöggum skiptum milli
frosts og þíðu fara mun verr með
gripina en staðviðri með miklum
frostum og þurru lofti. Því er mik-
ilvægt að dýrin geti leitað sér
skjóls fyrir öllum veðrum.
Helstu atriði sem gœta þarf að
við útigöngu:
* Gott skjól
* Næg fóðrun
* Nægur undirburður
* Vindhraði
* Urkoma
* Óhreinindi á dýrunum
Veljið skýlinu stað þar sem
Skjól
Köld hús þar sem
vindhraði fer ekki yfir
0.2 m/s duga
ágætlega heilbrigðum
gripum. Nýfæddir
kálfar, soltin og veik
dýr þurfa betri hús.
góður vatnshalli er frá því. Dyr-
agætt á að vera nógu stór til að
nokkur dýr geti gengið um
samtímis, ella er hætta á að dýr of-
arlega í goggunarröðinni tefji um-
ferð. Dyragætt ætti að snúa móti
sólu nema þar sem sunnanátt er
rikjandi. Gjafagrindur ættu ekki
að vera of langt frá skýlinu, gerið
ráð fyrir að flytja gjafagrindur
nokkrum sinnum á vetri til að hlífa
jörðinni.
í skýlinu eiga að vera þurr og
hlý bæli fyrir dýrin, annars nota
þau ekki skýlið sem skyldi. Þurr
hálmur er besti undirburðurinn, en
meira þarf af honum en flestir átta
sig á. I upphafi á að leggja þykka
dýnu, 100-200 kg af hálmi/dýr.
Blanda má allt að til helminga með
torfi. Gott er að setja í botninn
gamlan skít eða moð til að strax
fari að hitna í dýnunni. Síðan skal
bætt daglega á 2-3 kg hálmi/dýr.
Ef ekki er kostur á að nota hálm
verða að vera einangraðir pallar
fyrir dýrin að liggja á. Þessa palla
verður að hreinsa reglulega.
Munið að gera ráð fyrir skaf-
renningnum sem fyllt getur óþétt
hús á örskammri stund!
Hús opin að framan og þétt að
aftan safna í sig miklum snjó.
Hæfilegt op í bakvegg minnkar
snjóvandamálið.
Fóðrun
Reikna skal með 10-40% aukningu
á fóðurþörf miðað við innifóðrun.
Hæfilega gróft hey gefur magafylli
og eykur varmaframleiðslu. Ekki
er gott að gefa frosið fóður. Dýrin
skulu hafa aðgang að steinefnum
og tryggja verður aðgang að góðu
drykkjarvatni. Best er að gefa úr
gjafagrindum, tryggja verður að öll
dýrin geti étið samtímis og taka þá
með í reikninginn að háttsett dýr
geta vamað lægra settum aðgang
að fóðrinu. IKA
• Mikið varmatap getur orðið
með leiðni þegar dýrin liggja.
Því er mjög mikilvægt að bælið
sé þurrt og undirburðurinn
einangrandi.
• Kæling er varmatap frá dýri út í
andrúmsloftið. Öll hreyfing á
lofti eykur kælingu.
• Uppgufun vatns krefst mikils
varma.
• Varmatap með geislun getur
orðið töluvert, t.d. á heiðskírum
vetramóttum
• Óhreinindi í feldi minnka
einangmn
Uppgufun
Aðalfundur Nautastöðvar LK
ehf. var haldinn í Hrísey fyrir
skömmu, en NLK ehf. er dóttur-
fyrirtæki Landssambands kúa-
bænda og sér um rekstur ein-
angrunarstöðvar nautgripa í
Hrísey. Að sögn Snorra Sig-
urðssonar, framkvæmdastjóra
NLK ehf., var rekstur síðasta
árs erfiður. „Við höfum verið
með lágmarksrekstur vegna
biðar eftir svari við umsókn LK
og BÍ um samanburðartilraun-
ina. Stöðin hefur alltaf haft ein-
hverjar tekjur af sölu á sæði, en
vegna töluverðs kostnaðar var
tap á árinu af reglulegum
rekstri“.
Á árinu var hvorki innflutn-
ingur fósturvísa né sæðistaka og
því rekstur stöðvarinnar í
lágmarki. Sala á sæði árið 1999
var fremur hæg og seldust ein-
ungis 1.781 skammtar á árinu
1999, þar af 1.071 af Aberdeen
Angus og 710 af Limousin. En
hverskonar rekstur fer fram í
stöðinni í dag? „Við erum bara að
bíða eftir svari til að geta tekið
ákvörðun um framhaldið. Bú-
stjórinn okkar, Gísli Einarsson,
hefur því síðasta árið haldið í
horfinu og verið í viðbragðsstöðu.
Nú er í stöðinni 21 kýr og þar af
17 Galloway, ein Aberdeen Ang-
us og þrjár Limousin. Þessar kýr
munum við nota sem fóstur-
mæður ef til innflutnings kemur“,
sagði Snorri að lokum.
Nýkjörin stjórn NLK ehf. F.v. Gunnar Jónsson, formaður, Stefán
Magnússon og Jón Gíslason. Myndin var tekin í sæðistökuherbergi ein-
pngrunarstððvarlnnar f Hrísey.
Rekstur Nauiastöðvar
LK ehf. eriiöup
Eigendur Dýralæknaþjónustu Suðurlands. F.v.: Páll Stefánsson, Sigurður Ingi Jóhannsson og Lars Hansen.
Dýralæknaþjónusta Suðurlands tekur í notkun
nýtt húsnæði að Stuðlum í Ölfusi:
Stopbætt aOstaOa til aö
sinna aOgerðum
Dýralæknaþjónusta Suðurlands
(DýSu) tók nýlega í notkun nýtt
húsnæði fyrir gæludýraþjónustu
og skrifstofuhald en aðstaða fyr-
ir slíkt hefur verið frekar
bágborin hjá fyrirtækinu. Húsið
var áður notað sem gróðurhús
en var breytt til þessara nota.
Hjá DýSu eru starfandi 6
dýralæknar í fullu starfi; Páll
Stefánsson, Lars Hansen, Sigurður
Ingi Jóhannsson, Sveinn Ólason,
Ásdís Linda Sverrisdóttir og
Tómas Jónsson. Þrír þeir fyrst-
nefndu stofnuðu fyrirtækið árið
1996. Starfssvæðið nær frá Hellis-
heiði í vestri að Mýrdalssandi í
austri og yfir allar uppsveitir
Ámes- og Rangárvallasýslna. Fyr-
irtækið hefur tekið þátt í
margvíslegum þróunarverkefnum
og hefur einnig gert þjónustusamn-
inga við svínabændur auk þess
sem verið er að vinna að samskon-
ar samningum við kúabændur.
Auk þessa nýja húsnæðis er
DýSu með hestaspítala á sama stað
og aðra aðstöðu í Vestmannaeyj-
um.
Lars Hansen segir að nýja
aðstaðan stórbæti aðstöðuna til að
framkvæma aðgerðir og sinna
smádýmm og eigendum þeirra.
„Við höfum einnig miklu betri
aðstöðu til að halda fundi með
dýraeigendum og bændum og
þannig halda áfram því fræðslu-
starfi sem við höfum verið að
sinna. Starfsfólk okkar mun einnig
búa við mun betri aðstæður sem
skiptir miklu máli í þeirri sam-
keppni sem er um starfsfólk í dag.“
Nánar verður sagt frá DýSu í
blaðinu innan tíðar.