Bændablaðið - 17.10.2000, Síða 18

Bændablaðið - 17.10.2000, Síða 18
18 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 17. október 2000 Vel heppnaOup fundur hjlí loOdýrabændum Aðalfundur SÍL var haldinn á Eiðum dagana 25. og 26. ágúst 2000. Þann 25. ágúst var haldinn Búdagur og hófst hann með fræðsluerindi sem Stefán Guð- mundsson og Katrín Sigurðar- dóttir fluttu um frjósemis- og ræktunarhóp sem starfandi er á Suðurlandi. Þar kom skýrt fram hvað svona samstarfshópar geta haft mikil áhrif á áhuga, samvinnu og þá einnig árangur bænda. Full ástæða er fyrir aðra bændur að skoða rækilega hvort ekki sé ástæða til að mynda svona hópa á öðrum svæðum. Síðan var sest upp í rútu og ekið til Jóns Sigurðssonar bónda í Teigarseli, sem bauð gestum að skoða loðdýrahúsin og fóðurstöð- ina. Þaðan var ekið í Þrándarstaði til Karls Jóhannssonar og loð- dýrahús, fóðurstöð og tæki skoðuð. Að sjálfsögðu var boðið upp á léttar veitingar í ferðinni en hún þótti takast mjög vel. SIL, fyrir hönd loðdýrabænda, vill þakka Jóni í Teigarseli og Karli á Þrándarstöðum og fjöl- skyldum þeirra sérstaklega fyrir þeirra framlag til þessa skemmti- lega og góða dags. Aðalfundur SÍL hófst kl. 10:00 árdegis þann 26. ágúst. Kjömir fulltrúar voru 14 og af þeim mættu 13 ásamt gestum og loðdýrabændum víðsvegar að af landinu. Er það mál manna að fundur- inn hafi verið málefnalegur vinnu- fundur sem tekist hafi með ágætum. Margar tillögur voru lagðar fram og einnig voru sam- þykktar margar ályktanir er ljölluðu um hag bænda, stöðu loð- dýraræktar, innflutning erfðaefnis, lánamál, fóðureftirlit og fleira. Fulltrúi til Búnaðarþings til þriggja ára var kjörinn Reynir Sig- ursteinsson og til vara Bjami Stefánsson. Einnig fór fram kosning til stjórnar SIL, en kjörtímabili fulltrúa af Austurlandi og Norður- landi var lokið. Kosningu hlutu af Austurlandi; Bjöm Halldórsson, Engihlíð, Vopnafirði, og kemur hann nýr í stjóm fyrir Reyni Sigursteinsson og vill stjóm fyrir hönd loð- dýrabænda þakka Reyni góð og vel unnin störf. Varamaður var kjörinn Karl Jóhannsson, Þrepi. Af Norðurlandi var Jón Sig- urðsson, Brennihlíð 3, Sauðár- króki, kjörinn. Varamaður var kjörinn Tómas Jóhannesson, Túngötu, Grenivík. Að aðalfundi loknum var hald- inn stjómarfundur þar sem stjórn skipti með sér verkum og er hún nú þannig skipuð: Formaður Bjöm Halldórsson, Engihlíð Varaformaður Jón Sigurðsson, Brennihlíð 3 Gjaldkeri Þorbjöm Sigurðsson, Asgerði Ritari Bjami Ólafsson, Selfossi Meðstjómandi Bjami Stefáns- son, Túni Framkvæmdastjóri Ami V. Kristjánsson, Brúnagerði Um kvöldið var síðan farið í skemmtisiglingu með Lag- arfljótsorminum þar sem snæddur var kvöldverður og fegurðar Aust- urhéraðs var notið í góðum félags- skap loðdýrabænda sem áttu þama afskaplega góða kvöldstund. Fyrir hönd loðdýrabænda vill stjóm SIL koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem að undirbúningi og framkvæmd þessa aðalfundar komu og gerðu þessa helgi okkur öllum ógleymanlega. Fyrir hönd stjórnar, Árni V. Kristjánsson Haustnámskeið á Hvanneyri Tímabært aO skrá sig Nú eru hafin haustnámskeið Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri, en það fyrsta var námskeið fyrir ráðunauta um rekstrar- og fóðuráætlanir og námskeiði um framleiðslu loðdýrafóðurs, sem bæði hófust 11. október. Fóðmn og uppeldi kvígna Auglýsing um námskeið haustsins birtist í síðasta Bændablaði og önnur í þessu blaði. Við viljum minna á námskeið um fóðmn og uppeldi kvígna sem haldið verður á Hvanneyri 25.-26. október og í Skagafirði 30.-31. október. Þetta námskeið hefur nú þegar verið haldið í nokkmm sveitum landsins og mælst vel fyrir hjá bændum þar. Bændur em hvattir til að nýta sér þetta tækifæri og fræðast um þennan mikilvæga þátt búskapsins þar sem lagður er gmnnur að framtíð mjólkurkýrinnar. Fjárhundanámskeið Fjárhundanámskeiðin eru eftirsótt sem áður. Tvö slík hafa verið auglýst á Hvanneyri í lok október og em þau óðum að fyllast og því er um að gera að hafa samband sem fyrst. Námskeið í nóvember Námskeið nóvember mánaðar em auglýst á öðrum stað í þessu blaði. Þar em m.a. námskeið um beiðslisgreiningu, fjárhúsbyggingar og klaufskurð. Nánari upplýsingar og skráning er hjá Landbúnaðarháskólanum í síma 4370000 eða tölvupósti hjá endurmenntunarstjóra helgibj@hvanneyri.is. /HBÓ Fjóskettir Vegtia greinar vand- amálabónda skal þetta sagt: I grein VB kemur fram að hann sé bóndi með reynslu. í mínum huga verður að teljast ótrúlegt að geta búið í mörg ár við sama vandann með vissra ára millibili, án þess að reyna að finna lausn sjálfur. Trúlega er þama á ferðinni ormasýking því ormam- ir nýta próteinið úr blóðinu gegnum meltingarfærin. Vegna skorts á próteini í blóðinu við kynþroska geta komið fram grip- ir með vansköpuð júgur. Þetta segir að bændur gefa ekki mjólkurkálfum sem öðrum kálfum ormalyf í uppvexti. Þrálát ormasýking stendur kálfinum fyrir þrifum alla ævi. Þessa visku hef ég eftir Grétari Hrafni Harðarsyni dýralækni. VB þykir það alvarlegt mál að sumir bændur láti frá sér kálfa á sæðingastöðina undan galla- gripum og er ég honum sammála. Þetta er því miður bláköld staðreynd sem sést best á breytileikanum í stofninum. I hrossarækt gilda allt aðrar áherslur, t.d. hækka og lækka hross í dómi eftir árangri. Góður knapi skiptir máli, en kýrin öðlast kynbótadóm sinn á þrem- ur fyrstu mjaltaskeiðunum, eftir það skiptir engu hvort árangur- inn er hækkun eða lækkun á af- urðum, fitu eða próteini, alla- vega sé ég ekki muninn. Eðlilegt er að öll kynbóta- nefndin fari og skoði allar nautsmæður og sé viðstödd að minnsta kosti eina eða fleiri mjaltir á hverjum stað. Með því er hægt að koma í veg fyrir að gallagripir komist í ræktunar- starfið líkt og í hrossaræktinni. Þar eru sýningar í gangi, ráðunautar skoða árangur ræktunarstarfsins og fleiri en einn dómari koma úr öðru héraði til að dæma og er það mat þeirra sem ræður úrslitum, en ekki fag- legt mat eins dómara að dæma eigin ræktun. Það ætti að vera skylda að upplýsa um afdrif nautsmæðrá og nauta sem tekin eru til ræktunar. Misskilningur að jágurbólga sé œttgeng Júgurbólga er áunnin þáttur vegna sogs í uppeldi, löngun eldri kálfa í mjólk á gjafatíma leiðir til sogs hjá þeim þegar uppeldið er í sama húsi. Því ættum við að taka uppeld- isaðferð þeirra feðga á Þorvalds- eyri til fyrirmyndar, hætta að beija lokin og líta á uppeldið sem verðmæti enn ekki vand- amál. Vegna fréttar á RÚV í hádegisfréttum RÚV fyrir nokkru var talað við dýralækni um júgurbólgu sem ólæknandi vandamál. En stóri vandinn er of stutt lyfjameðferð með lélegum lyfjum vegna skammtímalausn- ar. Þannig nær sýkillinn að mynda ónæmi gegn lyfinu og kýrin er þá komin með ólæknandi króníska júgurbólgu. Júgurbólgu á að lyfjameðhöndla eins og sýkingar í mannfólki. Fyrir nokkru var grein í blaðinu sem hét „Fjöður í hatt“. Þar létu nemendur Landbúnaðar- háskólans í ljós álit sitt á kennsluaðferð og skorti á kennslugögnum og fannst mér skólameistari ekki bregðast rétt við aðfinnslum nemenda sinna. A formannafundi Hrepp- abúnaðarfélaganna á Suðurlandi, sem haldinn var að Heimalandi 30. nóvember síðastliðinn, benti ég skólastjóra á að skólinn væri ekki í takt við tímann. Það þýðir ekki að stinga hausnum í sand- inn, skólinn verður að vera í takt við nútíma landbúnað og vera áhugaverður fyrir nemendur, en ekki dragbítur aftanúr grárri fomöld. Eg er sammála þeim um að verknámið þurfi að taka mið af reynslu og þekkingu hvers og eins nemanda. Daníel Magnússon, kúabóndi, Akbraut, Holta- og Landsveit Láttu skoða vafasama gripi ! Að gefnu tilefni er minnt á þá möguleika sem bændum bjóðast varðandi sjúkdómagreiningar á gripum sem eru haldnir sjúk- dómum sem óvissa er um. Þetta á sérstaklega við um einkenni sem gætu líkst gamaveikitilfellum og hugsanlega taugasjúkdómum. Landssamband kúabænda hvetur þá bændur sem standa frammi fyrir áðurnefnd- um tilfellum að hafa samband við viðkomandi héraðsdýralækni eða sérfræðing yfirdýralæknis í smitsjúkdómum nautgripa, Sigurð Sig- urðarson, í síma 567-4700. Kostnaður greið- ist af embætti yfirdýralæknis, enda leiði skoð- un dýralæknis í ljós að um gmn um ofangreind tilfelli sé að ræða. Aðalfundur NLK ehf Aðalfundur NLK ehf. var haldinn í Hrísey 11. október og fóru fram hefðbundin aðalfundastörf. Stjóm lisrn sJVn öc tinath t,r NLK ehf var endurkjörin en í henni sitja: Gunnar Jónsson (formaður) Egilsstöðum, Jón Gíslason Lundi og Stefán Magnússon Fagraskógi. Bústjóri stöðvarinnar er Gísli Einarsson. Sjá nánar viðtal við fram- kvæmdastjóra stöðvarinnar í blaðinu. Smitgát á kúabúum Vinnuhópur LK og Yfir- dýralæknis, sem íjallað hefur um smitgát á kúa- búum, hefur nú gert tillögur um góða búskapar- hætti varðandi smitgát. Nú er verið að vinna að útgáfu á leið- beiningabækl- ingi um málið, sem dreift verður til allra kúabúa á landinu á næstunni. Einnig er fyrirhugað að útbúa aðvömn- armerkingar, sem bændur geta sett upp í fjósum sínum til aðvömnar fyrir óviðkomandi. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu LK. la'íori tv.i'úí'A'é i liíanc

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.