Bændablaðið - 31.10.2000, Qupperneq 8
8
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 31. október 2000
Afkvæmarannsúknir vegna
sauogársæflingaslöfivanna
Vegna þeirra feikilega miklu
áhrifa sem sæðingastarfsemin í
sauðfjárrækt hefur á ræktun-
arárangur verður að leita allra
leiða til að tryggja eins gott val
hrúta á stöðvarnar og kostur er.
Eftir viðræður við yfirvöld
sauðfjárveikivarna í landinu
fékkst leyfí til að fara nýjar
leiðir í vali á hrútum fyrir
stöðvarnar haustið 1999. Leyfi
fékkst til að á nokkrum svæðum
sem talin eru tiltölulega „hrein“
með tilliti til sjúkdóma mætti
einangra hrúta heima í héraði og
taka inná stöðvarnar að hausti.
Þetta skapaði möguleika til að
gera afkvæmarannsóknir á þes-
sum hrútum í heimahéraði,
flytja síðan á stöð toppana sem
sýndu sig að eiga þangað erindi,
en hinir hrútarnir færu um
haustið úr einagrunarhólfí aftur
á heimabú.
A þessum grundvelli voru
slíkar prófanir fyrri sæðing-
arstöðvamar skipulagðar á nokkr-
um stöðum á landinu núna þetta
haust. Hér á eftir verður í örstuttu
máli sagt frá þessum prófunum, en
nánari upplýsingar um þær munu
koma í hrútaskrá stöðvanna.
Fyrsta prófunin í haust var í
Holti í Þistilfirði. Þar voru í prófun
fimm valdir hrútar víða úr
sýslunni, auk þriggja veturgamalla
heimahrúta. Vænleiki dilka í Holti
í haust var um meðallag, en greini-
legt var að miklir þurrkar í sumar
höfðu haft áhrif á vöxt lambanna.
Vaxtarlag margra lambanna þarna
var hins vegar eins og ætíð í Holti
framúrskarandi gott. Mikill munur
kom fram á afkvæmum hrútanna
sem voru í prófuninni og þegar
niðurstöður lágu fyrir var metið að
tveir hrútanna ættu erindi á
sæðingastöð, þeir Hagi 98-857 frá
Hagalandi, sem þar hét Freyr áður
og Túli 98-858 úr Leirhöfn.
Næst lá leiðini norður í
Arneshrepp, en þar hafði verið sett
upp prófun á báðum búum á Mel-
um. Fengnir höfðu verið að til
prófunar fjórir úrvalshrútar, en auk
þess voru heimahrútar á báðum
búum í prófuninni, en á báðum
búum á Melum hefur verið mikið
hrútaval hin síðari ár. Þarna voru
þvf í prófun nokkuð á annan tug
hrúta. Féð þama var í haust líkt og
undanfarin ár föngulegt og gat þar
að líta margt úvalslambið. Þegar
niðurstöður prófunar lágu fyrir
voru teknir þrír hrútar til notkunar
á sæðingastöðvunum. Voru það
Stúfur 97-854, sem er frá Bass-
astöðum í Kaldrananeshreppi,
Hnokki 97-855 og Hörvi 99-856,
sem báðir eru fæddir á Melum 1.
Veturgamlir hrútar á Stóra-
Armóti höfðu verið hafðir í ein-
angrunarhólfi, en þegar afkvæmi
þeirra höfðu verið skoðun var
metið að enginn þeirra ætti erindi á
sæðmgastöð.
A Teigi í Fljótshlíð voru fimm
heimahrútar í prófun. Þar var feiki-
lega glæsilegur hópur lamba undan
þessum hrútum, en þegar
niðurstöður höfðu verið metnar þá
virtist enginn af þessum hrútum
sameina á þann hátt kosti með til-
liti til allra eiginleika að hann ætti
augljóst erindi á sæðingastöð.
Veturgömlu hrútamir á
fjárræktarbúinu á Hesti, vom
tiltækir í einagrunarhólfi, enda eins
og ætíð í skipulegri afkvæma-
prófun. Þetta bú hefur eins og allir
þekkja verið meginuppspretta
hrúta fyrir stöðvarnar um langt
árabil. Þama voru að þessu sinni í
prófun 11 hrútar. Lömbin á Hesti
vom í haust með alvænsta móti.
Þegar niðurstöður afkvæmar-
annsókan lágu fyrir kom hins veg-
ar í ljós að nú gerðist það sem aldr-
ei áður hefur gerst í meira en
fjögurra áratuga sögu afkvæmar-
annsóknanna á Hesti að enginn
hrútur kom þama fram sem skaraði
áberandi framúr hinum. I ljósi
þeirrar niðurstöðu var tekin
ákvörðun um að ekki væri ástæða
til að flytja neinn af þessum
hrútum á sæðingastöð..
Á Hjarðarfelli á Snæfellsnesi
voru í afkvæmaprófun fimm
hrútar, bæði hymtir og kollóttir.
Þar var eins og alltaf mikið af
mjög vel gerðum lömbum. Þar bar
nokkuð af Styrmir 98-852, sem er
fæddur í Tröðum í Staðarsveit og
er kollóttur og var hann fluttur á
stöð í ljósi þeirra yfirburða sem
afkvæmi hans sýndu.
Síðasti hópurinn sem kom til
mats í haust var í Háholti í
Gnúpverjahreppi, en þangað höfðu
komið til notkunar þrír
úrvalshrútar úr héraði auk fjögurra
heimahrúta. Þar vora feikilega vel
gerð lömb og skýr munur sem kom
fram á afkvæmahópum. Þaðan
voru teknir inná stöð tveir hrútar,
Sjóður 97-846, sem er frá Efri-
Gegnishólum og Bessi 99-851,
sem er heimaalinn í Háholti.
Það er sannfæring okkar sem
að þessum afkvæmarannsóknum
höfum unnið að á þennan hátt eigi
okkur að vera mögulegt að skerpa
og bæta enn val stöðvarhrútanna.
Reynsla komandi ára verður að
vísu hinn endanlegi dómur þar um.
Myndin var tekin þegar fram
fór mat á lömbum í afkvæmar-
annsókninni í Háholti. /JVJ/
Ferðavefurinn
-Ný hugbúnaðarlausn á markafi
fyrir íslenska ferfiaþjónusluafiila
íslensk upplýsingatækni ehf. í
Borgarnesi hefur sett á
markað nýja veflausn með
markmið ferðaþjónustuaðila í
huga. Undanfarin ár hafa þeir
í auknum mæli nýtt sér Netið
til kynningar og markaðssetn-
ingar á þjónustu sinni. Einkum
hafa það þó verið stærri fyr-
irtæki fremur en þau smærri,
sökum kostnaðar við
hefðbundnar heimasíður, sem
haft hafa bolmagn til fjárfest-
inga á sviði vefsíðugerðar.
Með hinum nýja Ferðavef
íslenskrar upplýsingatækni er
komin á markað vellausn sem
sérstaklega er sniðin að
kröfum og þörfum
ferðaþjónustunnar. Vefurinn
er allur gagnvirkur og sér eig-
andi hans eða umsjónarmaður
sjálfur um að skrá upplýsingar
á hann. Til þess þarf einungis
lágmarks reynslu á tölvur,
venjulegan vefskoðara og net-
tengda tölvu. Hver eigandi fær
úthlutað notendanafni og lykil-
orði sem tryggir að aðrir hafi
ekki aðgang að breytingu
upplýsinga.
Björn Garðarsson,
markaðsstjóri Islenskrar
upplýsingatækni segir að
ástæða þess að farið var af stað
með hönnun Ferðavefsins hafí
verið sú að mikið hafí verið
leitað til fyrirtækisins undan-
farna mánuði um gerð kynn-
ingarefnis fyrir
ferðaþjónustuaðila. í flestum
tilfellum hafi verið óskað eftir
hefðbundnum „statískum“
vefsíðum enda hafa aðrar vef-
lausnir ekki verið í boði fram
að þessu. Með tímanum úreld-
ast slíkar vefsíður og því hafí
íslensk upplýsingatækni
•
ákveðið að þróa vef sem
stöðugt er hægt að uppfæra.
Hönnuð var gagnagrunnstengd
veflausn þar sem eigandinn
getur sjálfur uppfært efni eftir
því sem þjónustan þróast,
nýjar upplýsingar bætast við
og umfangið breytist.
Vppbygging vefsins
Ferðavefurinn skiptist í forsíðu
og fímm aðalflokka. Á forsíðu
eru almennar upplýsingar um
viðkomandi þjónustuaðila auk
myndar og tengla á undirsíður.
Aðalflokkarnir eru þjónusta,
upplýsingar, fréttir, gestabók
og myndasíða. Jafnframt eru á
forsíðunni valhnappar fyrir
notendur til að velja milli
tungumála. Umsjónarmaður
getur sett inn upplýsingar á
fjórum tungumálum; íslensku,
ensku, dönsku og þýsku.
Eigandi eða
umsjónarmaður getur sett
myndir inn á vefínn jafn
auðveldlega og texta og þannig
er hægt að vera með mynda-
albúm á vefsíðunni og skipta
út myndum eftir árstíðum eða
hvernig vindar blása hverju
sinni. Þá er hægt að setja inn
fréttir og tilkynningar á
fréttasíðu vefsins og líkt og all-
ir aðrir hlutar hans uppfærast
upplýsingarnar um leið í
gagnagrunninum og eru því
ætíð nýjar og réttar.
Hentar flestum
Þar sem Ferðavefurinn er
algjörlega ný lausn í möguleik-
um fyrirtækja til markaðssetn-
ingar hyggst ÍU fara af stað
með kynningarherferð um vef-
inn á næstu vikum. „Við mun-
um leggja áherslu á að kynna
þennan nýja vef ítarlega enda
erum við komnir með ódýra og
hagkvæma veflausn sem kynnt
verður með slagorðunum „lif-
andi vefir fyrir lifandi fyr-
irtæki.“ Þessi vefur þjónar því
öllum, hvort sem þeir reka
hestaleigu, sundlaug, leigja
sumarhús, reka minjagrip-
asölu eða hvaðeina sem tengist
þjónustu og verslun,“ sagði
Björn Garðarsson. Þeir sem
vilja kynna sér vefínn nánar
geta litið á sýnishorn af honum
á slóðinni:
http://www.ferda.vefurinn.is
______________________________________________,r ..r______
rÉSMiniwMMm i'i»
flraiss veisla han sem
selahjöt er aöalrétturinn
Þótt selkjöt og aðrar afurðir sels-
ins, svo sem hreifar og spik, hafi
um aldir verið eftirsótt til matar og
þótt hið mesta lostæti, þá er nú svo
komið að þeir eru æði margir sem
alls ekki þekkja þetta gamla
góðmeti. Á síöari áram hefur þó
áhugi margra vaknað á því að bæta
selkjötinu í það úrval sem hér er til
af svo kallaðri villibráð. Þótt
selkjöts og annarra selaafurða sé
nú neytt í vaxandi mæli og stund-
um fáist það keypt í verslunum, þá
era þeir býsna margir sem mundu
vilja prófa þennan mat en fá ekki
beint tækifæri til þess.
I því sambandi má þó benda á,
að breiðfirski Eyjamaðurinn,
Guðmundur Ragnarsson, frá Vest-
urbúðum í Flatey, býður upp á sel-
kjöt allt árið á veitingastað sínum
Lauga - Ási í Reykjavík.
I nokkur ár hefur Guðmundur
Ragnarsson staðið fyrir „Sela-
veislu“ sem notið hefur vaxandi
vinsælda og er nú orðin árviss
viðburður. Þetta er athyglivert
framtak og sannað, að selkjöt er
tilvalið hráefni í hinar bestu veisl-
ur.
Enn á ný er komið að hinni
árlegu Selaveislu, því nú boðar
Guðmundur Ragnarsson, til
veisluhalds laugardaginn 11.
nóvember nk. að Glaðheimum,
Álalind 3 í Kópavogi (reiðhöll
Gusts ). Mæting er kl. 20:00, en
borðhald hefst kl. 21:00.
Matseðill
Grillað selkjöt
Saltaður selur, soðinn
Siginn fískur með selspiki og
hangifloti
Súrsaðir hreifar
Glóðarsteikt lambalæri
Reyktur lundi
Hrár marineraður hvalur að
hætti Japana
Grillað hvalkjöt
Hákarl
Á eftir er boðið upp á kaffi og
koníak/líkjör (innifalið í miðav-
erði).
Miðaverð er kr. 3.000 á mann.
Miðana þarf að kaupa fyrirfram.
Þeir verða seldir á veit-
ingahúsinu Lauga - Ási, Laug-
arásvegi 1, Reykjavík, laugardag-
inn 4. nóvember á milli kl. 14:00 -
16:00 og fimmtudaginn 9. nóvem-
berámillikl. 19:00 og 21:00.
Takið með ykkur gesti og
leyfið sem flestum að kynnast þes-
sum frábæra mat.
Þeir sem koma utan af landi
geta pantað miða hjá Hallbimi
Bergmann í síma 555-3461, í
símboða 842-1648 eða í farsíma
855-4980.
Arni Snœbjörnsson,
hlunnindaráðunautur, BÍ
Sjjórn Bl ræOir
afréttarmál 09
álagningu
fjallskila
I kjölfar nýlegs úrskurðar um-
boðsmanns Alþingis í deilumáli
um álagningu Qallskíla í Dala-
byggð fjallaði stjóm Bændasam-
takanna um afréttarmál og álagn-
ingu fjallskila. Stjómin ákvað að
fela þeim Ólafi Dýrmundssyni
ráðunaut og stjómarmönnunum
Þórólfi Sveinssyni og Gunnari
Sæmundssyni að kanna þau
ákvæði laga sem um þetta fjalla.
Ef ástæða þykir til er þeim einnig
falið að undirbúa tiUögur til breyt-
inga fyrir búnaðarþirig.