Bændablaðið - 17.09.2002, Side 5
Þriðjudagur 9. júlí 2002
BÆNDABLAÐIÐ
5
Allgott verð er nú á æðardúni og fyrir skömmu var Elías Gíslason heild-
sali staddur norður á Hrauni á Skaga þar sem æðarbændur á Skaga og
víðar voru að fá dún sinn metinn og pakka honum til útflutnings, en Elías
hefur séð um sölu á þessari verðmætu náttúruafurð í allmörg ár. Frá
vinstri: Guðlaug Jóhannsdóttir Hrauni, Rögnvaldur Steinsson Hrauni, Jón
Benediktsson Höfnum og Elías Gíslason dúnkaupmaður. Þess ber að geta
að geta að verðmæti bílfarmsins er í engu samræmi við útlit bílsins.
Bændablaðið/Gunnar R.
lÍFUHHB f HAUST
VIÐSKIPTAVINIR
Munið nýtt
símanúmer
Fóðurblöndunnar
570-9800
í haust verða flutt um 1550
fjárskiptalömb milli varnarhólfa
frá ósýktum svæðum til 10 bæja
sem þurft hafa að lóga fé sínu
vegna riðuveiki, og til tveggja
bæja í viðbót vegna sérstakra
aðstæðna. Fimm fjárskipta-
bæjanna eru í V-Hún, þrír í A-
Hún, einn í Eyjaf. og einn í
Arnessýslu. Sölusvæðin eru
Oræfi og Strandasýsla norðan
Bitru, Snæfellsnes, Þistilfjörður
og Suðursveit.
Fyrir meðmæli viðkomandi
sauðfjárræktarráðunauta verða
fluttir um 300 lambhrútar frá sömu
svæðum til kynbóta á 125 bæjum á
vamarsvæðum þar sem óráðlegt er
að versla með lífhrúta vegna
riðuveiki, eða vegna þess að
kynbótastörf takmarkast af ein-
hverjum ástæðum, s.s.þeim að
sauðfjársæðingar nýtist ekki. I
ómerktu eða hálfmerktu fé og
óskráðu eru kynbætumar lítils
virði. Þeir sem fá leyfi til að flytja
lambhrúta til kynbóta og nota þau
hafa um leið skuldbundið sig til að
hafa allt fé sitt merkt og skráð. Því
miður hefur þurft að synja
nokkmm mönnum um flutnings-
leyfi vegna ófullnægjandi
aðstæðna.
Auk þess sem hér hefur verið
nefnt að framan, hefur verið leyft
af vemdarsjónarmiðum að flytja
nokkrar forustugimbrar til 4 staða í
öðrum vamarhólfum.
Þegar fé er flutt á milli varnar-
hólfa er alltaf viss smithætta til
staðar. Slíkt leyfí er því ekki auð-
velt að fá. Allar kindur sem seldar
verða skal sprauta tvisvar sinnum
fyrir flutning með langvirku
Amerísk gæða
framleiðsla
30-450
lítrar
Umboðs-
menn um
land allt
RAFVORUR
ARMULI 5 • RVK • SIMI 568 6411
sníkjudýralyfi. Líða skal vika til
10 dagar milli sprautanna. Lyfið er
varasamt og ekki þykir rétt að
aðrir en dýralæknar sprauti féð.
Nauðsynlegt er því að þeir sem
vilja kaupa fé samræmi komur
sínar til vals á fé og fjárkaupa og
taki tillit til þess að talsverð
fyrirhöfn og kostnaður fylgir
tvísprautuninni áður en féð er
flutt. Þeir sem flytja féð skulu hafa
farartækin hrein og sótthreinsa í
samráði við héraðsdýralækni milli
varnarhólfa.
Sigurður Sigurðarson,
dýralœknir.
FÓÐURBLANDAN HF.
www.landbunadur.is
fjölnota
gnpaflutningakerrur
Tveggja hæða fjárkerrur með færanlegu milligólfi,
rúma 50-60 fjár eða allt að 6 hesta
Ifor Williams
iTrallers]
Lágmúla 7
S:5882600 og
8931722
VÉLAVERk
Eigum einnig kerrur sem rúma tvo til þrjá
hesta á aðeins kr. 425.000- án/vsk.