Bændablaðið - 17.09.2002, Page 6
6
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 17. september 2002
Bændablaðið er málgagn
íslenskra bænda
Erfiður
kjötmarkaður
íslenskir kjötframleiðendur hafa búið við óvissu og
öryggisleysi undanfarin ár. Þrátt fyrir hagræðingu í
framleiðslu og vinnslu og stöðugan hagvöxt og aukna
kaupgetu hjá þjóðinni hefur þessi óvissa um sölumöguleika
og afkomu næstu mánaða farið vaxandi. Ber þar margt til,
rekstrarerfíðleikar sláturleyfíshafa hafa verið meiri en áður
og viðvarandi hallarekstur hjá mörgum þeirra, og þá olli
gjaldþrot Kjötumboðsins mörgum bóndanum þungum
búsifjum. Mikil aukning hefur orðið á framboði kjöts,
einkum svínakjöts, á síðustu mánuðum og í kjölfar þess
hefur verð til framleiðenda lækkað niður fyrir reiknaðan
framleiðslukostnað í flestum kjöttegundum. Nú er
framleiðslukostnaður auðvitað breytilegur en það verð sem
margir bændur fá nú fyrir svínakjöt dugar tæplega fyrir
breytilegum kostnaði og vandséð hvaða tilgangi þjónar að
auka framleiðslu við þær aðstæður. Staða nautakjöts-
framleiðenda hefur sjaldan verið þrengri og vaxandi óvissa
er varðandi markaðssetningu dilkakjöts og afkomuþróun í
sauðfjárrækt.
Sú verðlækkun sem orðið hefur á kjötmarkaði hefur
vissulega leitt til aukinnar kjötsölu og hefur markaðurinn
stækkað um nálægt 3,6 % á síðustu 12 mánuðum þótt
tekjur bænda af kjötframleiðslu hafi dregist saman á sama
tíma.
Ætla mætti að sú staða sem hér er lýst sé jákvæð fyrir
íslenska neytendur og þeir fái nú kjöt á mun lægra verði en
áður. Ekki er það þó sjálfgefið því verðlækkun til
framleiðenda skilar sér ekki endilega til neytenda. Þá
verður einnig að hafa í huga að óvægin samkeppni og
verðstríð getur komið niður á gæðum vörunnar, því
fjölbreytt framboð á fersku kjöti í umhverfi sem skapar sér
æ fleiri heilbrigðisvandamál er hvorki auðvelt né ódýrt.
Neytendum ekki síður en bændum er því mikilvægt að
jafnvægi ríki á kjötmarkaði og stöðug vöruþróun sé í
framleiðsluferli og gæði og öryggi í fyrirrúmi.
Augljóst virðist því að það jafnvægi verður að nást,
ekki síður neytenda en bænda vegna, en slíkt gerist vart
nema með því að stilla framleiðslumagn kjöts eftir
innlendum markaði eða flytja út hluta framleiðslunnar.
Náist það ekki í náinni framtíð er fyrirsjáanleg verðmæta-
sóun og margvísleg vandamál samfara gjaldþroti fjölda
bænda.
Þótt núverandi ástand sé óviðunandi verða bændur að
horfast í augu við að staða á kjötmarkaði verður erfið á
næstu árum. Öflugum kjötkaupendum fækkar og þeir
stækka og hörð samkeppni mun ríkja á matvælamarkaði.
Vænlegasta svar bænda við þessari þróun er samstaða
þeirra um slátrun og vinnslu í fáum og öflugum
fyrirtækjum sem hafa burði til vöruþróunar og markaðs-
starfs og hagsmuni bænda að leiðarljósi í sínum rekstri. Því
miður hefur þróunin ekki verið í þá átt á síðustu árum. /AT.
Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og
fjölmargra annarra er tengjast landbúnaði. Bændablaðinu er dreift ókeypis til
þeirra er stunda búskap en þettbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu.
Árgangurinn kostar kr. 4.200 en sjötugir og eldri greiða kr. 2.000.
Sími: 563 0300 - Fax: 552 3855 - Kt: 631294-2279 Ritstjóri: Áskell Þórisson (ábm.)
Auglýsingastjóri: Eiríkur Helgason, blaðamaður: Sigurdór Sigurdórsson
Netfang blaðsins er bbl@bondi.is
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
Nr. 161
Blaðinu er dreift í 6.400 eintökum.
Dreifing: íslandspóstur.
ISSN 1025-5621
Jónatan Hermannsson tilraunastjóri Korpu:
Kornskuriur hðfst síðar un í fvrra
Jónatan Hermannsson, tilrauna-
stjóri Korpu, sagði í samtali við
Bændablaðið að kornskurður í
ár hefði hafist einni til tveimur
vikum síðar en í fyrra. f Ijós
kom að ekki hafði orðið eins
mikið gagn að hlýindunum í júní
sl. og menn vonuðust eftir. í
fyrra var byrjað að skera korn
sunnan- og vestanlands rétt fyrir
mánaðamótin ágúst/september
en nú var ekki byrjað að skera
fyrr en viku af september, og
sums staðar síðar.
„Það hefur verið kalt seinni-
part sumars hér sunnan og vestan-
lands, og reyndar um allt land, og
það hefur sett mark sitt á kom-
þroskann. Síðustu tvo mánuði
hefur verið rigningatíð um mestallt
land og lítið sólfar og í þannig
veðri þroskast komið hægt," sagði
Jónatan.
„Um vesturhluta landsins -
bæði norðan og sunnan - vora
þurrkar allan júnímánuð og kom
varð þar gisið á sendnu landi og
hætt er við að uppskera verði
heldur ódrjúg. Á djúpum jarðvegi
lítur kornið hins vegar vel út á
þessum slóðum, er bara heldur
seint til þroska. Á austanverðu
Norðurlandi voru þurrkar ekki til
baga í vor og mátti heita að
rigningatíð væri þar í allt sumar.
Þar er kornið nú mun skemmra
komið í þroska en í venjulegu ári.
Um mánaðamótin síðustu gerði
svo slagviðri um allt land, eins og
þau gerast verst. Sums staðar
lagðist kom og þar sem það var
orðið þroskað brotnaði það. Þó er
ekki hægt að tala um að stórskaði
hafi orðið."
„Það er ekki hægt að spá um
hver útkoma kornræktarinnar
verður fyrr en í lok september því
kornið getur bætt við sig út
mánuðinn, ef tíðin verður bærileg
og ekki frýs að marki," sagði
Jónatan Hermannsson.
Samhengi a milli hás
úrefnisgildis í mjólk
og lólegrar trjðsemi
segir í erlendum rannsóknaniðurstððum
Það hefur lengi verið rætt um
hvort hátt úrefnisgildi í mjólk
hafi neikvæð áhrif á frjósemi
kúa, og þá hve mikil. Nýleg
bandarísk rannsókn leiðir í ljós
að samhengið er sterkt. Rann-
sóknin var framkvæmd á 24
búum í Ohio í Bandaríkjunum
og voru alls 1.728 kýr í rann-
sókninni, sem stóð frá júní 1998
til maí 1999. Meðalnyt búanna
var 8.883 kg mjólkur. Mánaðar-
Iega var mælt úrefnisgildi í
mjólk hjá hverri kú og síðan var
unnið með meðaltal hverrar kýr
við uppgjör rannsóknarinnar.
Við uppgjör rannsóknarinnar
var leiðrétt fyrir áhrifum annarra
þátta (s.s. nytar, aldurs, mjalta-
skeiðs, bústofns o.fl.), þannig að
niðurstaðan sýnir samhengi breyti-
leika í frjósemi og úrefnisgildis
mjólkur.
Kúnum var skipt í fjóra jafn-
stóra hópa eftir meðaltölum fyrir
úrefni:
a) kýr með minna en 7,1 mMóI
b) 7,2-9,1 mMól
c) 9,2-11,0 mMól
d) meira en 11,0 mMóI
Niðurstaðan leiddi í ljós að
líkumar á að kýr festi fang voru
2,4 sinnum meiri hjá kúm með
lægra hlutfail en 7,1 mMól, en hjá
kúm með meðaltal upp á 11,0
mMól eða hærra (sjá töflu).
Úrefnisgildi (mMól) < 7,1 7,2
? 9,1 9,2? 11,0 > 11,0
Líkuráfangi 2,4 1,4 1,2 1
Skýringin á þessu samhengi er
talin stafa af breytingum á
efnajafnvægi í legi. Hækkun á
ammoníaki og lækkun á sýrustigi
leiði þannig til þess að frjóvgað
egg nái síður að festast í leginu.
Til viðbótar voru framkvæmdir
útreikningar eftir meðalnyt á
búunum. Meðalnyt hærri hóps
búanna var með 10.916 kg mjólkur
en meðalnyt lægri hópsins 6.850
kg. í ljós kom að meðalnyt búanna
skipti ekki máli í þessu sambandi.
Rannsóknarmennimir benda á
í grein sinni að aðrar rannsóknir
hafi ekki sýnt þetta samhengi jafn
sterkt og hér kemur fram, en benda
jafnframt á að í öðrum rann-
sóknum hafi ekki verið skoðaður
jafn stór hópur kúa.
Greinina má lesa í heild á
vefnum:
www.adsa.org/jds/papers/2001/feb
482.pdf
Athugasemdir
Rannsóknin leiðir í ljós að
líkur á lélegri frjósemi kúa aukast
með mjög háu úrefnisgildi. Hér á
íslandi eru flestar kýr með
langtum lægra gildi fyrir úrefni en
7,1 mMól og er landsmeðaltal
tankmjólkur (2001) 5,0 Mmól
(Ársskýrsla RM, 2001). Rann-
sóknin tók ekki á lægra úr-
efnisgildi en 7,1 Mmól, svo ekki er
hægt að segja til um hvort munur
sé á frjósemi t.d. á milli kúa með
3,0 Mmól annars vegar og 6,0
Mmól hins vegar.
Heimild: Rajala-Schultz, P.J. ofl.:
Association Between Milk Urea
Nitrogen and Fertility in Ohio Dairy
Cows, Journal of Dairy Science,
2001, 84: 482-489 (þýtt og
endursagt úr Kvæglnfo nr. 975)
/SS.