Bændablaðið - 16.09.2003, Síða 10
10
Bændablaðíð
Þriðjudagur 16. september 2003
niehid fjallar um aðgerOir til
styrktar rjúpnastofni
Siv Friðleifsdóttir
umhverfisráðherra hefur
skipað nefnd sem hefur það
hlutverk að gera tillögur um
aðgerðir til þess að styrkja
rjúpnastofninn i framtíðinni að
loknu banni við rjúpnaveiðum
sem stendur næstu þrjú árin.
Nefndinni er m.a. ætlað að
gera tiilögur til ráðuneytisins
um stofnun griðlanda eða
friðlanda á varp- og
vetrarstöðvum rjúpunnar,
veiðikvóta, lengd og
tímasetningu veiðitíma rjúpu,
aðgang að veiðisvæðum og um
veiðiaðferðir s.s. skotvopn og
notkun veiðihunda og mögulegt
bann við sölu á rjúpu. Nefndin
mun skila tillögum í síðasta lagi
í lok árs 2005.
í nefndinni eiga sæti:
Ingimar Sigurðsson,
skrifstofustjóri í
umhverfisráðuneytinu,
formaður, skipaður án
tilnefningar
Kristinn Haukur
Skarphéðinsson
fuglafræðingur, tilnefndur af
Náttúrufræðistofnun lslands
Áki Ármann Jónsson
forstöðumaður, tilnefndur af
Umhverfisstofnun
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
formaður Sambands íslenskra
sveitarfélaga, tilnefndur af
sambandinu
Ólafur Einarsson fugla-
fræðingur, tilnefndur af
Fuglaverndarfélagi íslands
Sigmar B. Hauksson,
formaður Skotveiðifélags
íslands, tilnefndur af félaginu
Ari Teitsson, formaður
Bændasamtaka íslands, til-
nefndur af samtökunum.
Nýtt fjarnámskepfi
á Hvanneyri
Nýlega var tekið í notkun nýtt fjarnámskerfi við Landbúnaðarhá-
skólann á Hvanneyri. Kerfið boðar byltingu í samskiptum nemenda
og kennara á vefnum. Við þróun þess var reynt eftir megni að taka
tillit til lélegra gagnatenginga sem enn eru sums staðar í sveitum
iandsins.
Fjamemar í búnaðarfræðum
komu í hefðbundna heimsókn að
Hvanneyri til að taka þátt í tveggja
daga dagskrá í upphafi náms. Við
FB
FOÐURBLANDAN HF.
FORYSTA i FÓÐURBLÖNDUN
Fóðurblöndur búmannsins
Undirstaða arðbærrar
framleiðslu er gott kjarnafóður
Kjarnafóður frá Fóðurblöndunni er úr völdum hráefnum
og framleitt sérstaklega fyrir íslenskan markað.
Við vinnum stöðugt að rannsóknum, þróun og endurbótum
á fóðurvörum og sérfræðingar fyrirtækisins gefa þér
góð ráð um allt sem varðar fóðrun búfjár.
ÍSLENSKT ÚRVALS KJARNFÓÐUR, FÓÐURSÖLT OG FÓÐURBLOKKIR FYRIR ELDISFISKA,
NAUTGRIPI, HÆNSN OG HESTA, KANÍNUR, MINKA, HUNDA, REFI, SAUÐFÉ OG SVÍN.
FÓÐURBLANDAN HF. • Korngörðum 12 • 104 Reykjavík • Sími 570 9800
það tækifæri var þeim sýnd notkun
nýja fjamámskerfisins. Kerfið er
hugsað til notkunar jafnt í
staðamámi sem og í fjamámi og
jafht á framhaldsskólastigi og
háskólastigi. Vonast er til þess að
það verði ekki bara gagnabanki fyrir
námsefni og verkefhi, heldur líka
vettvangur til náms og rauntíma
skoðanaskipta innan veggja skóla
sem og utan.
Kerfið sem ber nafhið Námskjár
hefur þegar verið tekið í gagnið í
.......... BMi
Þór Þorsteinsson frá fyrirtækinu
Nepal kennir fjarnemum í búnaðar-
fræðum á Hvanneyri að nota nýtt
fjarnámskerfi.
hluta staðamáms á háskólastigi og
em vonir um að þáttur þess í
staðamámi á báðum kennslustigum
skólans fari vaxandi.
Kerfið er hannað af hug-
búnaðarfyrirtækinu Nepal í Borg-
amesi. Það er algerlega miðlægt og
geta því nemendur stundað nám í
mörgum skólum samtímis, svo lengi
sem viðkomandi skólar noti kerfið.
Landbúnaðarháskólinn er fyrsti
notandi kerfisins og hefhr haft
töluverð áhrif á þróun þess.
Með tilkomu þessa nýja kerfis er
vonast til að bilið sem er á milli
fjamema og staðamema minnki og
að hægt verði að samkenna þessum
tveimur hópum í einhveijum
tilvikum, að hluta til eða í heild.
Áframhaldandi þróun kerfisins
verður unnin í samvinnu við
notendur þess, bæði kennara og
nemendur.
Eins og áður var tekið ffam var
við hönnun þessa kerfis reynt eftir
megni að taka tillit til lélegra gagna-
tenginga í sveitum landsins og auk
þess var kerfið reglulega prófað á
gervihnattatengingum.
Umsjónarmaður fjamáms við
Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri
er Edda Þorvaldsdóttir.
Villa við
búnaðargjalds
Komið hefur í ljós villa við
álagningu búnaðargjalds árið
2003. Dæmi eru um að ef
maki rekstraraðila er eldri sé
búnaðargjald lagt á báða
einstaklinga. Eftir því sem
næst verður komist er um að
ræða kerfisvillu sem ekki
hefur verið leiðrétt. Greið-
endum búnaðargjalds er því
bent á að fara yfir álagn-
ingarseðla sína með þetta í
huga og hafa samband við
viðkomandi skattstofu eða
senda skriflegar kærur til
viðkomandi skattstjóra, komi
villur af þessu tagi í Ijós.