Bændablaðið - 16.09.2003, Síða 15
Þriðjudagur 16. september 2003
Bændesblaðið
15
Kýr vilja þurr og stöm gangsvæði!
Kýr eiga að geta ferðast aai
foaao flöss ðo öpægirda og ðo
hess eð tenda í þreogslom
Kýmar eiga fyrst og fremst að
hafa nóg pláss. Af þeim sökum er
einmitt mælt með því að gangar og
önnur sambærileg svæði í nýjum
legubásafjósum séu að lágmarki 4
fermetrar á hverja kú. Engir
gangar ættu að enda sem botn-
langar þar sem það getur valdið
vandræðum íyrir lágt settar kýr í
fjósinu. Ef undankomuleið er í
enda hvers gangs munu kýr, sem
era minna metnar innan viðkom-
andi kúahjarðar, eiga möguleika á
að forðast árekstra við "hærra
settar kýr".
Gallinn við það að hafa breiða
ganga er sá að það kallar á sér-
tækar lausnir, t.d. við þrif, enda
erfítt að halda rimlagólfúm
hreinum ef umferð kúa á hvem
fermeter þeirra er í lágmarki.
Traðk kúnna sér til þess að mykjan
fer niður á milli rimlanna og því er
nauðsynlegt að hafa álagið pass-
lega mikið þar sem rimlar era,
ella verður fljótt sóðalegt. Þessi
staðreynd hefúr í seinni tíð ýtt
undir þróun með opna flóra í
gangsvæðum legubásafjósa.
Opnir flórar - betri gólf
Þegar opnir flórar vora
hannaðir hér áður fyrr, vora
það oftast peningalegar
ástæður sem ráku bænduma
áffam til að velja slíkar
lausnir. Nú era hinsvegar fleiri
og fleiri sem kjósa þessa
gólfgerð vegna þess að þeir
telja þau einfaldlega hentugari
fyrir kýmar að ganga á.
Þurrgólf
Oháð því hvort maður
velur rimlagólf eða opna
flóra, þá þarf gólfið að
vera þurrt og hreint.
Þetta mun í auknum
mæli kalla á flór-
sköfukerfi í
ffamtíðinni. Flór- _
sköfúr era að *
sjálfsögðu hluti af
opnum flóram, en
munu í vaxandi
mæli sjást jafnffamt í ^
Qósum með rimlagólf og
dæmi um það er hið nýja fjós
á Hvanneyri sem er í byggingu.
Vel hannaðir opnir flórar, með
affalli fyrir vatn og hland, geta
auðveldlega haldist þurrir og
hreinir. Jafnvel þekkjast dæmi um
að gólfin verði of þurr og skítur
hreinlega festist á gólfin vegna
þess. Við þessu er hægt að
bregðast eins og síðar kemur fram.
Stöm gólf
Öll gangsvæði kúa þurfa að
vera stöm. Venjulega er það ekkert
vandamál þar sem um rimlagólf er
að ræða, en góður árangur þess að
hafa opinn flór stendur og fellur
með því hvort tekst að halda
gólfinu stömu. Siðustu ár hafa
verið gerðar fjölmargar tilraunir
erlendis til að útbúa munstur í
þessa opnu flóra til að halda þeim
stömum. Besta lausnin er að útbúa
«vo'»
mót/stimpil sem þrykkir munstri í
blauta steypuna. Þessi aðferð
og/eða útfærsla á henni hefúr
reynst vel og á að geta tryggt það
að gólfið verður stamt og þægilegt
fyrir kýmar að ganga á.
Önnur aðferð en að mynstra
steypu í opnum flóram er að setja
asfalt á flórana. Þessi aðferð er
mörgum þátttakendum í bænda-
ferðum á Agromek vel kunnug og
sést í vaxandi mæli í fjósum er-
lendis. Efnið hefúr þá eiginleika að
það verður aldrei hált eins og
steypan verður með
tímanum. Það er
sett á mjög
heitt og
leggst
gríðarlega vel í allar misfellur og
myndar jafht og gott yfirborð. Ef
upp úr því heggst með tímanum
eða vegna óhapps, þá er einfalt að
draga upp gaslampann og hita
viðkomandi stað upp sem þá
rennur saman á ný. Efnið er sér-
staklega blandað fyrir þessa
notkun og á í raun ekkert skylt við
hefðbundið malbik, sem hentar
enganvegin í fjós.
Þriðja aðferðin er að draga
strákúst eftir blautri steypunni og
útbúa með því fjölmargar fínlegar
rákir. Þessar rákir gera steypuna
stama, en geta slitnað niður á
nokkram áram.
Forsteypt gólf
Það nýjasta innan gólfgerða
era forsteyptar einingar, sem era
munstraðar beint frá ffamleiðanda.
Einingar sem þessar era mjög
hentugar og gólfin uppfylla allar
þekktar kröfúr sem kýr gera til
gólfa.
Forsteyptar einingar geta, eðli
málsins samkvæmt, verið steyptar
eftir vilja hvers og eins, s.s. með
halla inn að miðju þannig að hland
og vatn renni alltaf ffá básendun-
um. Slík hönnun skilar sér í
hreinni skepnum þar sem halar
kúnna ná ekki að liggja í forinni.
Þá er hægt að fá slíkar einingar
með áfostum affallsröram undir
miðju gólfinu. Rörin gegna þá
bæði hlutverki affalls fyrir hland
og mykju, en einnig er þar pláss
fyrir rennumar sem sköfúkerfið
keyrir eftir (ef um slík kerfi er að
ræða). Röranum er svo haldið
hreinum með sérstöku skolkerfi
og/eða lítilli plötu sem skefúr rörin
um leið og sköfúkerfið keyrir.
Gömul og hál gólf
Steypa slitnar með áranum og í
fjósum sem nokkuð era komin til
ára sinna. Sjá má augljós dæmi um
slíkt á hálum gólfúm, bæði þar
sem era rimlar og/eða opnir flórar.
Gerðar hafa verið fjölmargar
athuganir á því hvemig hægt sé að
gera við slík gólf og eru helst tvær
aðferðir sem standa upp úr.
Sú fyrri er að höggva upp
(ffæsa) yfirborðið með sérstakri
vél. Með þessari aðferð eru fjar-
lægðir örfáir millimetrar af yfir-
borði steypunnar og gólfið verður
eftir það sem nýtt, stamt og fínt.
Hin aðferðin er að setja
gúmmímottur ofan á viðkomandi
gólf. í dag fást margar gerðir af
gúmmímottum með rifúm í af mis-
munandi breidd, sem passa beint
ofan á rimla-
gólfin.
Með
þessari
aðferð
verða gólfm
stöm, þar sem
klaufimar síga
örlítið niður í yfirborð
gúmmísins og ná þar með
festu. Sambærilegar
lausnir era til fyrir opna
flóra.
Sköfukerfin
Tryggja þarf að
sköfúkerfin geti skafið gólf
sem halla inn að miðju. Sum
kerfanna era spildregin, en
algengast er að stokkur liggi
eftir miðju gólfi sem ýtir
sköfúnum áffam. Ekki er
ástæða til að fella þennan
stokk niður í gólfið, en þó getur
verið kostur að gera slíkt til að
gera gólfið sléttara fyrir kýmar.
Mjög mikilvægt er að steypu-
vinnan sé mjög vel unnin og af
fagmönnum.
Stillingar á sköfúkerfúm geta
verið mjög ólíkar, en hver og einn
þarf að fmna rétta sköfútíðni hjá
sér. Eins og áður hefúr komið fram
er mikilvægt að vatn og hland
renni ffá básendunum til að halda
þeim svæðum þurram. Þó getur
verið kostur að hafa raka á
gólfúnum fyrir sköfúkerfin, til að
minnka líkur á því að þau smyrji út
mykjunni í stað þess að skafa hana
burt. Af þessum sökum hefúr verið
mælt með því að munstra gólfin (raki
helst í rifúnum) eða kústa blauta
steypuna samsíða flómum. Raki
liggur þá í örfínum rifúnum sem
eykur líkur á góðum árangri
sköfúkerfisins.
Nýirflórar
Samandregin niðurstaða er þessi:
Opnir flórar eiga ekki að halla eftir
endilöngu, en gjaman ffá básendum
og inn að miðju (1 cm/meter nóg).
Tiyggja þarf að sköfúkerfið geti
skafið gólf sem hallar inn að miðju.
Vanda þarf mjög vel til
steypuvinnunnar, þar sem með henni
er lagður grunnur að
ffamtíðarendingu flórsins. Huga þarf
að því hvort fella eigi niður í flórinn
fasta hluta sköfúkerfisins. Velta má
fyrir sér hvort kostur sé að nota
forsteyptar einingar.
Kostur er að setja munstur í
steypuna með þar til gerðum
mótum/stimplum en a.m.k. að
tryggja að yfirborð flórsins sé stamt.
Það má t.d. gera með því að draga
strákúst eftir yfirborði steypunnar
samsíða flómum og þar með gangi
sköfúkerfisins.
Setja má dren undir flórinn
miðjan til að taka við vatni og hlandi,
en mikilvægt er þá að hugsa fyrir
hreinsun slíkra lagna.
Snorri Sigurósson, LK. Byggt
aó hluta til á grein eftir Helge
Kromann úr Boviologisk 8/03.
Sturtu-
vagnar og
stálgrinda-
hús frá
WECKMAN
Sturtuvagnar
Einnig þak- Stálgrindahús.
og veggstál. Margar gerðir,
hagstætt verð.
H. Hauksson ehf
Suðurlandsbraut 48
Sími: 588 1130
Fax: 588 1131
Látið mjólkurbarinn létta störfin!
Níðsterkar fötur • Endingarbetri túttur • Auðveld þrif • Minni
vinna • Fást nú hjá Mjólkurbúi Flóamanna á Selfossi.
Munið einnig hinar frábæru Cow Comfort básamottur
sem sameina bæði mikil gæði og gott verð.
Elvar Eyvindsson - Skíðbakka 2
S: 487-8720, 899-1776 - Tölvup.: elvarey@eyjar.is