Bændablaðið - 16.09.2003, Síða 19
Þriðjudagur 16. september 2003
19
Bændablaðið
kjamfóðrið ásamt fleim sem
tengist komrækt. í framhaldinu
var farið í Kvíaból þar sem em
nær 60 mjólkandi kýr auk þess
sem stunduð er mikil komrækt.
Þar bauð Norðurmjólk upp á
veitingar.
Samgönguminjasafnið í
Ystafelli var næsti áningarstaður
og höfðu margir gaman af að
skoða gamla bíla og
landbúnaðartæki sem gerð hafa
verið upp. Síðan var ekið sem leið
lá ffamhjá Goðafossi og austur
yfir Fljótsheiði, upp Reykjadalinn
og farið í ferðamannafjósið í
Vogum í Mývatnssveit þar sem
formaðurinn Olöf Hallgrímsdóttir
býr. Þar var matast og slegið upp
litlu hlöðuballi þar sem Leifúr
Hallgrímsson og Valmar Valjaots
léku á hljóðfæri.
Þegar því lauk þökkuðu
bændur úr Múlaþingi þingeyskum
bændum fyrir möttökumar og
sögðu ferðina bæði fróðlega og
skemmtilega, en héldu svo austur
til búa sinna glaðir i bragði. /Atli
Sól var í heiði þegar þrjátíu
kúabændur úr Múlasýslum
komu í rútu vestur yfir fjöllin og
heimsóttu
mjólkurframleiðendur í
nokkrum sveitum í
Þingeyjarsýslu. Voru þetta
bændur úr
Nautgriparæktarfélagi
Vopnafjarðar og Félagi
nautgripabænda á Héraði og
Fjörðum.
Ólöf Hallgrímsdóttir,
formaður Félags
þingeyskra kúabænda, tók á
móti hópnum að austan í
Mývatnssveit s.l.
laugardag. Ekið var niður
Hólasand og borðaður
hádegismatur í boði
félagsins í Félagsheimilinu
Heiðarbæ. Þá var ekið sem
leið lá vestur yfir
Hvammsheiði og horft yfir
Aðaldalinn, ekið ffarn hjá
Laxárvirkjun og farið í
heimsókn að Búvöllum þar
sem rekið er kúabú í
nýuppgerðu fjósi. Þar er
m.a. brautarkerfi fyrir
mjaltatækin sem margir
höfðu gaman af að sjá auk
þess sem búið þykir sérlega
þrifalegt. Þar á eftir var
farið í Grímshús þar sem tekinn
hefúr verið í notkun mjaltaþjónn
og annar nýtískulegur búnaður
sem tilheyrir ljósum. Þar voru og
veitingar ffá
Áburðarverksmiðjunni og Vélum
og þjónustu, en fúlltrúar þessara
fyrirtækja voru á staðnum.
Á Hálsi í Kinn var skoðaður
tölvustýrður fóðurvagn sem
gengur um fjósið og skammtar
Kúabændur úr
Múlaþingi í heimsókn
hjú Þingeyingum
MultiLotion er mýkjandi
spena-og júguráburður
með sótthreinsandi áhrif.
MultiLotion áburður er
borinn á spena/júgur
strax að loknum mjöltum.
Pakkningastærð: 500 gr.
Útsölustaðir: Innflutningur og dreifing:
Mjólkurbú og PharmaNor hf.
búrekstrarvöruverslanir
UmboOsmaQur íslenska heslsins tehinn dl staria
Stjórn verkefnisins
umboðsmaður íslenska hestsins
hefur ráðið Jónas R. Jónsson
sem forstöðumann verk-
efnisins. Jónas er landsþekktur
tónlistar- og fjölmiðlamaður en
hefur undanfarin ár starfað
erlendis við alþjóðaverkefni.
Jónas er rétt að byrja í
starfinu og sagðist hann í
byrjun vilja kynna sér hvað
það væri sem menn hefðu i
huga, til hvers væri ætlast,
hver forgangsverkefnin væru
og að reyna að ná yfirsýn yfir
það sem starfið snýst um. Hið
raunverulega starf væri vart
hafið enn þá enda ekki nema
nokkrir dagar frá því hann hóf
störf.
[
framúrskarandi velar alls staðar
Í*1"® 'íiO'
JOHN DEERE
VELAR&
ÞJéNUSTAHF
Þekktir fyrir þjónustu
Járnhálsi 2 ■ no Reykjavík ■ Sími: 5-800-200 ■ Fax: 5-800-220
Óseyri 1a ■ 603 Akureyri ■ Sími: 461-4040 ■ Fax: 461-4044
IÐ OG PRUFUAKIÐ JOHN DEERE
DRÁTTARVÉLUNUM HJÁ VÉLUM & ÞJONUSTU í
Reykjavík OG á Akureyri
www.velar.is
ý