Bændablaðið - 25.11.2003, Side 20
20
Bændablaðið
Þridjudagur 25. nóvember 2003
Taka þátt á tveggja ára fresti
Nú tóku mjólkuriðnaðarmenn frá Færeyjum, Noregi
og Svíþjóð þátt í sýningunni í fyrsta sinn. Islendingar
hafa markað þá stefnu að taka þátt í sýningunni á
tveggja ára fresti en hitt árið er efnt til Ostadaga í
Reykjavík.
Hœgfœra þróun
Alls voru rösklega 1500 sýnishorn mjólkurafurða á
sýningunni. Kunnugir segja að nú hafi hægfara þróun
einkennt sýninguna en eins og margir muna þá hrökk
samkoman við þegar Islendingar kynntu LGG til
sögunnar fyrir tveimur árum. A sýningunni voru veitt
sérstök verðlaun fyrir óvenjulega eða nýstárlega vöru og
þau féllu í skaut Arla sem kom fram með á matarrjóma
með 2,5% hveitiblöndu - með öðrum orðum þá þarf ekki
lengur að setja hveiti í sósuna...
Mikil sérhæfmg
Sum þeirra sýna sem Islendingar sendu í keppnina
eru orðin fast að því fáséð í Danmörku en samruni í
dönskum mjólkuriðnaði hefur gert það að verkum að
sérhæfing eykst stöðugt; vörur sem ekki seljast í nógu
miklum mæli hafa horfið af sjónarsviðinu. I þessu
sambandi má t.d. nefna maribúost sem varla sést lengur í
dönskum verslunum. Þá framleiða Islendingar
mjólkurvörur sem þekkjast vart á hinum
Norðurlöndunum og má nefna LGG sem dæmi um það.
Sérhæfingin og samruninn í iðnaðinum er slíkur að það
má segja að það sé aðeins Arla sem framleiðir smjör.
Islenska ferskvaran náði langt
Islensku ferskvörumar vom dæmdar með öðrum
sams konar vömm ffá hinum keppnisþjóðunum en
íslensku ostamir vom í einum flokki þannig að þeir
kepptu innbyrðis. Góð útkoma íslensku ferskvaranna
(konsum) verður enn glæsilegri þegar þetta er haft í
huga. "Ferskavara sem fær verðlaun á þessari sýningu
hefur einfaldtega náð langt", sagði einn viðmælanda
blaðsins en þetta var í fyrsta skipti á sýningunni sem
ferskvöm frá Danmörku, Svíþjóð, íslandi, Noregi og
Færeyjum - 459 sýnum - var steypt saman og dæmt á
milli þeirra.
Vel á annaó þúsund ostur!
Til þess að gefa fólki örlitla hugmynd um umfang
verksins þá mættu dómarar sýningarinnar til Danmerkur
tveimur vikum fyrir hana og hófú verk sitt.
Ferskvörusýnin vom um 500 og þeim var skipt niður í
fjóra flokka en fimmtán dómarar dæmdu þessi sýni.
Ostar sem komu til dóms vom vel á annað þúsund
en 105 dómarar - sem skipt var niður í fimm manna
flokka - dæmdu ostana.
Þrír íslendingar I dómnefndum
Þess má geta að þrír íslendingar sátu í dómnefndum;
tveir vom I dómnefnd sem dæmdi ferskvörumar en einn
í dómnefnd sem annaðist um ostana. íslensku
dómaramir vom þeir Geir Jónsson (OSS), Auðunn
Hermannsson (MBF) og Júlíus Kristjánsson
(Norðurmjólk).
Litagleði og fagmannlega
unnar mjólkurumbúðir
Danskir mjólkuriðnaðarmenn sem Bændablaðið
ra;ddi við á sýningunni sögðu gæði og úrval mjólkurvara
á Islandi vekja athygli og sömuleiðis litagleði og
fagmannlega unnar umbúðir. Sá samanburður sem
iðnaðurinn fær í Heming er dýrmætur - hvort sem horft
er til bænda, þeirra sem starfa í mjólkuriðnaðinum eða
neytenda. Bændur sjá að mjólkin - hráefnið - stendur
sambærilegu hráefni fyllilega á sporði og þeir sjá
sömuleiðis að mjólkursamlögin leggja mikið af mörkum
til þess að geta boðið neytendum úrval mjólkurvara.
Starfsmenn í mjólkuriðnaði fá tækifæri til að fýlgjast
með því sem er nýjast og best í faginu og neytendur fá
óháðan vitnisburð sem staðfestir að á íslandi er
mjólkuriðnaðurinn að bjóða þeim jafn gott og á stundum
betra úrval mjólkurvara en gerist og gengur annars
staðar.
F.v. Helgi Jóhannesson, framkvæmdastjóri Norðurmjólkur, Friöjón Jónsson, mjólkur-
fræðingur, Stefán ívar Hansen, vélvirki og Oddgeir Sigurjónsson, mjólkurfræðingur.
Helgi Jóhannesson, framkvæmdastjóri
Norðurmjólkur á Akureyri, var ytra til að
fylgjast með framgangi þeirra vara sem
Norðurmjólk sendi á sýninguna en auk
þess var tilgangurinn með ferðinni að
skoða vélbúnað - svo sem nýtt stýrikerfi í
samlagið. Um er að ræða tölvukerfi sem
kostar tugi milljóna. "Hér erum við að
þrengja rammann og ræða við þá aðila
sem framleiða slík kerfi," sagði Helgi. Að-
spurður bætti hann við að það væri afar
dýrmætt fyrir fyrirtæki á borð við Norð-
urmjólk að sjá hvemig það stæði sig í
samanburðinum. Ef vara næði ekki þeim
árangri sem að hefði verið stefnt þyrftu
menn að taka sig á. Helgi sagði að ostar frá
Norðurmjólk hefðu fengið jafna og góða
dóma og hann sagðist vera sáttur við út-
komuna í heild.
"Það er gríðarlegur hraði í þróuninni
hér í Danmörku," sagði Helgi, "en ástæðan
er fyrst og ffernst sú að samkeppnisum-
hverfið er erfitt. Athygli vekur hve vel
Danir leysa úr þeim verkefnum sem upp
koma og við getum lært af þeim hvað þetta
varðar. Vissulega skipta vélar, tæki og
vömr miklu máli en ég horfi ekki síst á
það sem hér er gert í mjólkursamlögunum.
Hér á ég við þá áherslu sem lögð er á hag-
kvæmni og hvemig menn nýta þann búnað
sem til er í framleiðslugreininni."
Danskur drengur ánægður eftir að
hafa uppgötvað íslenska vöru!
Dalabrie, Þykkmjólk og Biomjólk.
Þessar vörur fengu sérstök
heiðursgullverðlaun á sýningunni.
Skagfírðingarnir og mjólkurfræðingarnir Helgi Ragnarsson (t.v.) og Jón Þór Spáð og spekúlerað í innihald og
Jósepsson, frá Mjólkursamlagi Kaupfélags Skagfírðinga, voru að skoða sýninguna umbúðlr.___________________
þegar Bbl. hitti þá að máli. Rétt eins og fleiri þá voru þeir önnum kafnir við að
skoða nýjungar af ýmsu tagi - jafnt vélabúnað og mjólkurvörur. Mjólkursamlag KS
sendi nokkrar vörur á sýninguna og þeir félagar voru sáttir við þá dóma sem
vörurnar fengu, en hnetu- og karamellusúrmjólk fékk bronsverðlaun en
kúmenmaribúostur frá KS fékk gullverðlaun. Ferskar mosarellukúlur frá KS fengu
bronsverðlaun. Jón Þór sagði að á liðnum mánuðum hefðu þeir átt við að glíma
ákveðið vandamál varðandi framleiðslu á mosarellukúlunum en á sýningunni hefðu
þeir getað heimsótt fjölmarga aðila sem hefðu haft þekkingu á vandanum og ráðlagt
þeim heilt. A einu síðdegi hefðu þeir fengið upplýsingar sem annars hefði tekið
vikur eða jafnvel mánuði að fá.
Þeir sem hafa áhuga á að
kynna sér mjólkurtækni-
skólann í Dalum, Land-
brugsvej 55, 5260 Odense S,
ættu að fara á heimasíðuna
www.dalumts.dk
Tilgiiiigiirina er aö veita framleiOendum gæialegt aOtiald
- segir Magnús Ólaísson, forsQóri Osta- og smjörsölunnar
Osta- og smjörsalan er sá aðili sem
annast samskipti við aðstandendur
sýningarinnar í Heming. Magnús
Olafsson, forstjóri Osta- og smjörsölunnar,
sagði í samtali við Bændablaðið að
tilgangurinn með mjólkurvörusýningunni í
Heming væri að veita
framleiðslufyrirtækjunum aðhald í
gæðum. "Markmiðið er að íyrirtækin sendi
frá sér vörur með mikil og jöfn gæði. A
þessari sýningu fá islenskir bændur
upplýsingar um þá staðreynd að hráefnið,
sem síðar er notað í margvíslegar vörur, er
fyllilega sambærilegt við það besta sem
gerist í nágrannalöndum okkar. Þátttaka í
svona sýningu - og sú vinna sem
starfsmenn mjólkurvinnslufyrirtækjanna
leggja á sig - tryggir svo neytandanum
vörur sem eru fyllilega sambærilegar á við
það besta sem hægt er að finna í
verslunum í hinum Norðurlöndunum."
Langflestir ef ekki allir
mjólkurfræðingar landsins eru menntaðir
í Dalum í Danmörku. Það fer ekki hjá því
að þegar þeir fara utan og taka þátt í
sýningu á borð við þá sem var í Heming
að þeir hitti gamla vini og kunningja.
Hvaða máli skipta þessi sambönd þegar
íslenskur mjólkuriðnaður er annars vegar?
Magnús minnir á að persónuleg sambönd
og góður kunningsskapur við danska
mjólkurfræðinga hefur hvað eftir annað
komið sér vel fyrir mjólkuriðnaðinn. Það
megi fullyrða að vinátta við starfsmenn
innan danska mjólkuriðnaðarins hafi
sparað jafnt tíma og beinharða peninga.
"En fleira skiptir máli. Islendingamir sem
fara utan halda saman og kynnast líka. Hér
ræða menn um gæði og gæðastaðla og
fjölmargt sem er atvinnuveginum til
framdráttar."
En hvað gerist þegar sýningunni
lýkur? Hvemig heldur umræða um úrslitin
áfram þegar mjólkurfræðingamir koma
heim? Þegar blaðið kemur út verður
nýlokið fúndi á Akureyri þar sem
dómamir ytra hafa verið teknir, metnir og
ræddir ofan í kjölinn. Magnús sagði að
fúndir af þessu tagi hefðu verið haldnir
áður og þeir væm ómetanlegir. Islensku
dómaramir þrír áttu að leiða umræðuna á
Akureyrarfundinum.
"Þátttaka í þessari sýningu skiptir
miklu máli fyrir okkar, en þátttakan kostar
okkur mikla vinnu. Þannig þarf að senda
vörur út til dæmingar tveimur vikum fyrir
sýningu og aftur þegar hún hefst.
Tilgangurinn með þessu öllu er að veita
framleiðendum gæðalegt aðhald. Þetta er
auðvitað skemmtilegt þegar vel gengur og
við sjáum að Islendingar standa jafnfætis
því besta sem boðið er upp á hér ytra.
"Hinir mörgu dómarar yfir eitt hundrað
talsins em afar hæfir í sínu fagi og sjá
fljótt hvað betur má fara ef eitthvað er að.
Þegar slíkt kemur upp á fá framleiðendur
athugasemdir og ráð, sem þeir geta nýtt
sér þegar heim kemur. " sagði Magnús
Ólafsson.