Bændablaðið - 25.11.2003, Síða 22
/ 22
Þridjudagur 25. nóvember 2003
Ný og gjörbreytt
aðstaða í Sænautaseli
Dekkafi borflí
fjáPhfisinu í alR sumar
Það var sumarið 1994 sem
byrjað var að selja veitingar í
Sænautaseli í Jökuldalsheiði.
Reksturinn hefur verið með
svipuðu sniði siðan, kaffi og
lummur hafa verið á boðstólum
* yfír ferðamannatímann. En
fjöldi gesta hefur vaxið jafnt og
þétt ár frá ári. I vor urðu nokk-
ur þáttaskil í starfscminni þegar
nýtt cldhús, liðlcga 40 fermetrar
að stærð, var tekið í notkun.
Það er áfast við fjárhúsið sem
byggt var upp um svipað leyti og
gamli bærinn. Með tilkomu
þessa nýja eldhúss var fjárhúsið
gert að matsal og er þar nú
langborð eftir endilöngu húsinu
sem 34 geta setið við samtímis
og notið veitinga.
„ Þessi nýja aðstaða er alveg
gerbreyting frá því sem áður var
þegar ég var með þetta í gamla
bænum þar sem aðeins var pláss
fyrir 14 við eldhúsborðið og öll
aðstaða ákaflega frumstæð," sagði
Lilja Óladóttir, á Merki á Jökuldal,
sem séð hefur um veitinga-
reksturinn í Sænautaseli frá upp-
hafi. Lilja segir að nýja húsið hafi
verið fullbygg seint á sumrinu
2002 og þá formlega tekið í
notkun, hins vegar hafi þá verið
eftir að fá í það nauðsynlegan
búnað. Húsið er byggt úr timbri en
torfhleðsla með hliðarveggjum og
torf á þaki.
Lilja segir að nú sé að baki
Bændablaðið
---------------------?—
mesta ferðamannasumar síðan
hún byrjaði í Sænautaseli. Þessa
aukningu segir hún að megi skýra
með þeim miklu framkvæmdum
sem nú eru í gangi inni á hálendinu
en önnur aðalleiðin á ffam-
kvæmdasvæðið er einmitt um
Jökuldalsheiðina. Hún segir að
fjöldi manns hafi farið þama um í
þeim tilgangi að kanna athafha-
svæðið við Kárahjúka en líklega
hafa fæstir gert sér grein fyrir hvað
þama er um að ræða langa leið og
seinfama því það hafi verið um
fímm tíma akstur frá Skriðu-
klaustri í Fljótsdal inn að Kára-
hjúkum og þaðan niður í Sæ-
nautasel í sumar. Því hafi fólk oft
komið seint til hennar í sumar og
af samtölum við fólk sé Ijóst að
margir hafi ekki gert sér í
hugarlund hvað langt sé á milli
staða þar sem veitingar em á boð-
stólum á þessu svæði. Auk þess að
annast veitingasölu sér Lilja um að
sýna ferðafólki gamla bæinn. Við
það nýtur hún góðrar aðstoðar
bræðranna Skúla og Eyþórs
Guðmundssona, sem ólust upp í
Sænautaseli á sínum tíma, og
dveljast þar að jafnaði talsverðan
tíma á hverju sumri og fræða fólk
um búskaparhætti og mannlíf á
heiðinni hér áður fyrr.
>
\
Hæltuleg efni og
nanOsynleg aðgæsla
Ýmis varasöm efni eru notuð í
landbúnaði. Sveitabýli eru að því
leyti sérstakur vinnustaður að þau
eru í flestum tilvikum einnig
heimilisvinnustaðir, þ.e. heimilis-
fólkið kemur að starfseminni og
þar með talin böm og unglingar.
Merkingar hættulegra efna
Efni og vörutegundir eru
flokkuð eftir því hversu
hættuleg þau eru og merkt
samkvæmt eftirfarandi:
Hér á eftir er dæmi um
upplýsingar sem eiga að vera
utan á umbúðum um tiltekið
sótthreinsandi þvottaduft
(annað efni en það sem olli
ofannefndu slysi):
Ætandi. Hættulegt við
inntöku. Myndar eitraðar
lofttegundir við snertingu við
sýru. Geymist á þurrum stað.
Berist efnið í augu skolið þá
strax vandlega með miklu
vatni og leitið læknis. Notið
viðeigandi hlífðarhanska og
hlífðargleraugu/andlitsgrímu.
Varist innöndun reyks við
bruna eða sprengingu.
Geymist þar sem börn ná
ekki til.
Einnig er um að ræða sérstakan
vinnustað að því leyti að bömin
alast upp við það að vera með í
fjósinu og annars staðar áður en
þau em farin að geta hjálpað til
við störfm. Þess vegna er sér-
staklega mikil þörf á aðgæslu
vegna notkunar varasamra efna.
Nýlega slasaðist lítið bam
vegna þess að það komst í brúsa
með fljótandi hreinsiefni fyrir
mjólkurkerfi. Afleiðingamar urðu
þær að bamið brenndist innvortis.
Ekki er talið að mikið af efhinu
hafi farið ofan í bamið þannig að
betur fór en á horfðist.
Geymsla hœttulegra efna
Strangar reglur gilda um
geymslu hættulegra efna eins og
hreinsiefnanna sem að ofan er
getið.
Varasöm efni skal geyma í
sérstökum efnageymslum þannig
að óviðkomandi hafi ekki aðgang
að þeim. Hættuleg efni á að
geyma í læstri geymslu, aðskilin
frá öðrum efhum.
Tx Xn
* C
Öryggisleió-
beiningar ú íslensku
Umbúðir eiga að vera merktar
á íslensku. Þegar varasöm efni
eða vömr em notaðar á vinnu-
stöðum þá eiga öryggisleiðbein-
ingar á íslensku að fylgja með
kaupandanum að kostnaðarlausu.
Sá sem afhendir hættuleg efhi til
notkunar á vinnustöðum, hvort
sem það er framleiðandi, inn-
flytjandi, seljandi eða dreifmgar-
aðili, á að sjá viðtakanda fyrir
öryggisleiðbeiningum. Sá sem
notar hættuleg efni við
atvinnurekstur, þ.á m. búrekstur,
á að sjá til þess að öryggisleið-
beiningar séu til staðar þar sem
efnin em notuð. Hann á því að
óska eftir að fá öryggisleiðbein-
ingar þegar hann fær slíkt efni
afhent.
í öryggisleiðbeiningunum
eiga að vera ítarlegar upplýsingar
í 16 liðum, m.a. um innihald,
heilsufarshættur við notkun,
skyndihjálp, aðferðir við að
slökkva eld, hvemig bregðast eigi
við efnaleka, meðhöndlun og
geymslu, nauðsynlegan persónu-
legan hlífðarbúnað eins og hvort
nota eigi hanska, öndunargrímur
o.s.frv., hættur gagnvart um-
hverfmu og hvemig farga eigi
efninu.
Það er því mikilvægt að lesa
vel upplýsingamar á umbúðunum
og í öryggisleiðbeiningunum og
fara eftir þeim, t.d. varðandi
geymslu efnanna en ekki síður
þegar verið er að nota efnið.
Naudsynlegt
aó kynna sér reglur
Allir þeir, sem nota hættuleg
efni, þurfa að kynna sér gildandi
reglur um meðferð hættulegra
efna. Reglumar má fá á heima-
síðu Vinnueflirlitsins,
www.vinnueftirlit.is, eða á um-
dæmisskrifstofúm stofnunarinnar,
þ.e. í Reykjavík, á Akranesi, ísa-
firði, Sauðárkróki, Siglufirði,
Akureyri, Húsavík, Egilsstöðum,
Vestmannaeyjum og í Hvera-
gerði.
Sérstaklega skal bent á
eftirfarandi reglur:
-Reglur um vemdun starfs-
manna gegn hættu á heilsutjóni af
völdum efnafræðilegra skaðvalda
á vinnustöðum nr. 765/2001.
-Reglur um öryggisleiðbein-
ingar vegna efnanotkunar á
vinnustöðum nr. 602/1999.
-Reglugerð um flokkun,
merkingu og meðferð eiturefna,
hættulegra efna og vörutegunda,
sem innihalda slík efhi nr.
236/1990 ásamt síðari
breytingum.
Hanna Kristín Stefánsdóttir,
Víóir Kristjúnsson,
frϗsludeild Vinnuftirlitsins
efna- og hollustuháttadeild
Vinn ueftirlitsins
Taprekstur hjá
Slátnriélaginu en
eiginfjárstaða gáð
Rekstrartap Sláturfélags Suð-
urlands á tímabilinu janúar til
september 2003 var 30,0
milljónir segir í fréttatil-
kynningu frá félaginu. A sama
tímabili árið áður var 14,5
milljón króna rekstrartap.
Afkoma fyrir fjármagnsliði
batnar um 38 milljónir, en
aukin fjármagnsgjöld og tap af
rekstri hlutdeildarfélaga leiða
til 15 milljón króna lakari
afkomu milli ára. Fjár-
hagsstaða Sláturfélagsins er
áfram góð með eigið fé rúmar
1.188 milljónir og 46% eigin-
fjárhlutfall. I tilkynningu segir
að tekjur SS hafi numið 2.398
milljónum á fyrstu níu mánuð-
um ársins 2003, en hafi verið
2.667 milljónir á sama tíma í
fyrra en lækkunin sé tilkomin
vegna ástands á kjötmarkaði.
Gjöld minnkuðu um 12% á
milli ára og rekstrarhagnaður án
fjármunatekna og fjármagns-
gjalda hækkaði verulega eða í 45
milljónir miðað við 7 milljónir
króna árið áður. 1 lok september
2003 voru heildareignir Slátur-
félags Suðurlands 2.605 milljónir
og höfðu lækkað um 326
milljónir frá áramótum. I frétta-
tilkynningu segir að kaup SS á
Reykjagarði muni ekki koma inn
í reikningsskil félagsins fyrr en á
síðasta ársfjórðungi 2003.
Horfur
Afkoma félagsins á fyrri
árshelmingi ársins 2003 var
óviðunandi og einkenndist af
mikilli verðsamkeppni og of-
framboði á kjöti á markaðnum
sem hafði neikvæð áhrif á af-
komu félagsins. Ekki er gert er
ráð fyrir að aukið jafnvægi náist
á kjötmarkaðnum fyrr en kemur
fram á árið 2004 að mati stjóm-
enda Sláturfélagsins. Að sögn
þeirra verður aðhaldi áfram beitt
í rekstri félagsins, en gripið hefúr
verið til þess að draga úr út-
gjöldum auk þess sem fjár-
festingar hafa verið dregnar
saman. Gert sé ráð fyrir að af-
koma félagsins batni á síðasta
ársfjórðungi.
Tæta niflur heyrnllnr
og dreifa I rofabflrfl
Landgræðslufélag Biskupstungna
fékk styrk úr Pokasjóði til að
kaupa vél sem tætir niður gamlar
heyrúllur og er hcyið síðan notað
til að græða upp rofabörð.
Þorfinnur Þórarinsson á
Spóastöðum er formaður
Landgræðslufélag
Biskupstungna. Hann segir að
þetta hafi verið gert sl. fjögur ár
með mjög góðum árangri.
„En þetta er mjög dýrt og því
takmörkunum háð.
Flutningskostnaður á heyrúllunum
nemur tæpum eitt þúsund krónum á
rúlluna og síðan þarf tvær vélar til
þess að dreifa heyinu. Önnur vélin
er sjálfur dreifarinn og síðan er
önnur vél til að setja rúllumar í
hann," sagði Þorfmnur.
Hann segir að það sem gerist
þegar heyinu er dreift á rofabörðin
sé að sandur fari í heyið og það
festist alveg í rofabörðunum og
síðan grær gras upp úr þessu.
Þorfmnur segir að þar sem heyinu
var dreift fyrir fjórurn ámm líti
svæðið mjög vel út. Unnið er í
þessu verkefni tvisvar á ári.
Eiríkur Jónsson í Gýgjarhólskoti
sagði að rúllutætarinn væri festur
aflan í dráttarvél og síðan tætti hann
heyrúllumar í sundur og spýtti
heyinu upp í rofabörð. Hann segir
að þessi aðferð hafi gefið mjög góða
raun við uppgræðsluna. Það er dýrt
að flytja heyrúllumar og því mikils
um vert að nýtingin á heyinu sé góð
og hún sé það úr þessari vél. Löng
og góð reynsla sé fyrir þvi að setja
hey í rofabörð að sögn Eiríks.
Mikið er til af heyi eftir
eindæma gott sumar og miklar
fymingar em til og segir Eiríkur að
Landgræðslufélagið hafi ekki verið í
neinum erfiðleikum með að fá hey.
Landgræðslufélagið hefúr
fengið styrk úr Pokasjóði til
uppgræðslustarfa á móti ffamlagi
heimamanna og síðan hefur fengist
styrkur úr nýjum sjóði hjá
Landgræðslunni sem heitir
Landbótarsjóður. Landgræðslufélag
Biskupstungna hefur mest unnið að
uppgræðslu nærri Hvítárvatni en þar
er nokkurt rofabarðasvæði.
Landssamband
hestamannafélaga
fréttablaðs Landssambands
hestamannafélaga. Ætlunin er að LH-
fréttir komi út tvisvar á ári og verður
blaðinu dreift inn á öll heimili
félagsmanna í hestamannafélögum
innan LH. Með þessu móti vonast
stjórn samtakanna til að miðla
upplýsingum beint til félagsmanna
sinna og kynna þau fjölbreyttu
verkefni er Landssambandið starfar
að.
í fyrsta tölublaðinu er m.a. að finna
viðtal við Jón Albert Sigurbjörnsson,
formann LH, auk frétta af starfi
samtakanna. Upplag blaðslns er
8.000 eintök og ritstjóri er Hulda G.
Geirsdóttir.
SP.lR
Bæjarlind 1 • Sfmi 544 4510
Opið alla daga kl. 10 - 20
www.sparverslun.is