Bændablaðið - 19.06.1987, Side 14

Bændablaðið - 19.06.1987, Side 14
Eiturefnanotkun í gróðurhúsum: EKKERT ER VITAÐ UM AÐSTÆÐUR HÉRLENDIS — Væg eitrun er þessháttar aö óvíst er aö garðyrkjumenn leyti sér lækninga, segir Vilhjálmur Rafnsson hjá Vinnueftirliti Hér í opnunni birtir Bændablaðiö grein úr dönsku blaði um þá hættu sem stafar af eit- urefnanotkun í gróðurhúsum og atvinnu- sjúkdóma garðyrkjumanna. Engar svipaðar rannsóknir hafa verið gerðar á heilsufari ís- lenskra ylræktarbænda en það að stór hluti danskra garðyrkjumanna þjáist af vægum eitrunareinkennum gefur tilefni til að ís- lendingar athugi sinn gang. Ekkert er vitað uin það hvort eiturefnanotkun hér er meiri eða minni en í Danmörku og skýrsluhald hér er of ófullkomið til þess að hægt sé að fletta því upp. Samkvæmt þeim upplýsingum sem Bændablaðið fékk hjá Vinnueftirlitinu hafa engar rannsóknir verið gerðar á aðstæðum í gróðurhúsum eða heilsufari garðyrkju- bænda. Nokkurt eftirlit hefur verið með þeim sem vinna að úðun skrúðgarða og ann- arri skrúðgarðyrkju en þar hafa komið upp alvarleg eitrunareinkenni. Aftur á móti sagði Vilhjálmur Rafnsson yfirlæknir hjá Vinnueftirlitinu að væg eitrunareinkenni eins og þau sem talað er um í dönsku grein- inni, væru þessháttar óþægindi að í fæstum tilfellum leyta menn sér sérstaklega lækn- inga þeirra vegna. Hætta á eitrun er mun meiri í lokuðu umhverfi gróðurhúsa en við garðaúðun. Sigurgeir Ólafsson plöntusjúkdómafræð- ingur og einn nefndarmanna í eitrunarnefnd sagði í samtali við Bændablaðið að ómögu- legt væri að segja til um það hvort eiturefna- notkun hér væri meiri en hjá Dönum. Vitað er að eiturefnanotkun er yfirleitt meiri við ræktun skrautjurta en grænmetis og Danir framleiða mikið af skrautjurtum til útflutn- ings. Þá skiptir miklu hvernig eftirliti er hátt- að, hversu mikið er notað af lífrænum vörn- um og hvaða eiturefni eru notuð. Þannig hafa menn hér á landi mikið hætt að nota fosfórefni á seinni árum og tekið upp önnur hættuminni. Samkvæmt heimildum Bændablaðsins er mun minna eftirlit með notkun hlífðarbúnaðar hér á landi en i Dan- mörku. Eiturefnanefnd hefur efitrlit með eitur- notkun og gefur leyfi til innflutnings eitur- efna. Um leið ákveður nefndin í hvaða hættuflokki efnið lendir og samþykkir þær leiðbeiningar sem innflytjandi lætur fylgja með. Þeim sem nota efnið ber að hlýta leið- beiningunum en engin reglugerð er til um notkunina í smáatriðum. Sérstök leyfi þarf til að kaupa eiturefni og eiga allir sem hafa slík leyfi að hafa gengist undir námskeið í notkun eiturefna. Sala efna í þremur hættu- mestu flokkunum, X, A og B er skráð og haldið til haga af eiturefnanefnd en ekki er hægt að greina með vissu hversu mikið af því eitri fer til notkunar í gróðurhúsum og garð- yrkju. Þá eru engar tölur til um sölu á efnum í C flokki sem vissulega hafa óhollustu í för með sér þó þau séu ekki eins bráðhættuleg og hin. í samtali Bændablaðsins við Sigurgeir Ólafsson kom ennfremur fram að við flokk- un efnanna er meðal annars tekið mið af því hversu óholl þau eru þeim sem á að nota þau auk þess að miða við mengun umhverfis og það hversu bráðdrepandi efnin eru. Eiturefnanotkun snertir líka afurðir garð- yrkjubænda þar sem nokkuð þykir á skorta að eftirlit með aðskotaefnum sé nægilegt. Flestir telja þó að mengun í innlendum af- urðum sé miklu mun minni en í afsláttarvör- um sem keyptar eru utanlands frá. Boða rafgirðingar — lang ódýrastar r v. r r Ætli þetta sé Boða rafgirðing Orugglega, því að Björn bóndi kaupir aðeins það besta og það ódýrasta v__ _____________________________________/ KAPLAHRAUNI 18 220 HAFNARFJÖRÐUR S(MI 91-651800

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.