Bændablaðið - 19.06.1987, Qupperneq 28

Bændablaðið - 19.06.1987, Qupperneq 28
KJÖTFJALLIÐ VERÐUR10 ÞÚS. TONN Kindakjötsneysla landsmanna á þessu verðlagsári stefn- ir nú í um 8400 tonn en síðasta vetur nam innlegg 12.950 tonnum og 2.400 tonna birgðir voru til við upphaf árs- ins. Kjöt umfram innanlandsneyslu nemur þannig 6.950 tonnum, eða sem svarar rúmlega 50% af framleiðslu þessa árs. 2.400 tonn verða flutt út samkvæmt útflutn- ingsbótakvóta en eftir stendur birgðavandi sem svarar 4550 tonnum. Það jafngildir 200 daga neyslu þjóðarinn- ar á kindakjöti. Þennan vanda ræða stjórnarmyndunar- flokkar en eins og fram hefur komið hafa framlög til landbúnaðar farið milljarð fram úr heimildum fjárlaga. Á sama tíma eru markaðsnefnd og sölusamtök að láta vinna könn- un á Ameríkumarkaði með útflutn- ing í huga. Samkvæmt heimildum Bændablaðsins eru einkum bundn- ar vonir við að selja megi lamba- kjötið sem lúxusvöru en þá er tæp- lega reiknað með mikilli magnsölu, þó verðið yrði viðunandi. Með samningum við bændur hefur ríkið skuldbundið sig til kaupa á 11.000 tonnum fyrir innan- landsmarkað næsta haust en þar af verða 2.400 tonn flutt út. Ólíklegt er talið að sala kindakjöts eigi eftir að aukast og því verða umframbirgðir sem nema 4.750 tonnum til viðbót- ar við þau rúmlega 4.500 tonn sem til verða eftir yfirstandandi verð- lagsár. Þar við bætist það sem Framleiðnisjóður á eftir að kaupa í vetur — samtals a.m.k. 10.000 tonn. í viðræðum Framsóknarflokks, Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks sem eru í gangi er rætt um útflutn- ing þessa — enda fátt annað til ráða og þrátt fyrir útflutningsbætur skil- ar kjötið þannig umtalsverðum gjaldeyristekjum. Ekkert vatn nema í tíma sc tckið Það er betra að panta í tíma þegar Reykjalundarrörin eru annars vegar. - Við höfum varla undan, enda hefur ekkert vatnslagnaefni reynst betur íslenskum aðstæðum. Meðferð röranna er hreinn barnaleikur, möguleikarnir endalausir og endingin gerist varla betri. REYKIALUNDUR Mosfellssveit, 270 Varmá Sími 91 -666200 Telex 2268 var is

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.