Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Blaðsíða 4

Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Blaðsíða 4
systur sinni, Þorbjörgu ljósmóður Sveins- dóttur. Hún var víðlesin og' hafði mikið ferðast um landið. Það komu því margir gestir til þeirra frændsystra. Olafía kom oft með langferðagesti heim til okkar í Engey. Það var þá fátt um skemmtanir og lítið um vegi, en nóg af bátum. Man ég oft eftir slíkum heimsóknum. Voru það skemmtilegir dagar. Olafía hafði óvana- lega mikla frásagnarhæfileika og' gerði hún samræður mjög skemmtilegar. A yngri árum sínum tók hún mikinn þátt í stjórnmálum og fylgdi þar Benedikt Sveinssyni móðurbróður sínum að mál- um. Síðari ár ævi sinnar skipti hún sér ekki af þeim málum. Hún hugsaði mikið um ræktun lands- ins og áttu þau Þórhallur biskup oft tal um þau mál. Hún var fyrst, eða ein af þeim fyrstu, sem byrjaði að rækta tún í mýrunum í Sunnuhvolslandi, sem nú er verið að taka undir húsabyggingar. Pétur Hjaltested keypti af henni og' hélt þar áfram sinni miklu túnrækt. En annað tún áttu þær fóstrur við Skólavörðustíginn. Ólafía Jóhannsdóttir er fædd á Mosfelli í Mosfellssveit 13. dag októbermánaðar 1863. Þegar hún var á öðru ári, fluttu for- eldrar hennar austur í Skaftafellssýslu. Fór hún þá í fóstur til Ólafs sekretera Stephensen í Viðey og síðari konu hans, frú Sigríðar Þórðardóttur. Hún var áður gift síra Tómasi Sæmundssyni. í bók sinni „Frá myrkri til ljóss“ lýsir hún veru sinni í Viðey á yndislegan hátt. En eftir þriggja ára veru þar fór hún til móður- systur sinnar, Þorbjargar Sveinsdóttur. I Viðey, „perlunni á Kollafirði“, fékk Ólafía að sjá blessað landið sitt fyrst. Þar dreymdi hana drauma um álfa og huldu- fólk inni á milli stóru hólanna og mörgu örnefnanna. Eftir að hún fór til móður- systur sinnar fékk hún að vera nokkrar lokkana mína, þegar ég hugsa til bernsku minnar. Hún var glöð og djörf í tali og fram- komu. Ég man, að einu sinni fór hún ein á báti í land eða langt út á sundið. Það þótti bæði djarft og strákalegt þá, hreint ókvenlegt. En þetta var víst veðmál og hún vildi sýna, að konan væri manns ígildi. Hún var sköpuð kvenréttindakona og foringi. Hún ólst upp við frelsi og sjálf- stæði og sterka föðurlandsást hjá móður- 2 HVÍTABANDIÐ

x

Afmælisblað Hvítabandsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afmælisblað Hvítabandsins
https://timarit.is/publication/915

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.