Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Blaðsíða 6

Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Blaðsíða 6
hennar yfir því að fá að fara heim. „Ég ætla heim, heim á fyrsta skipi, sem fer héðan, heim til íslands!“ Vinir hennar fylgdu henni á járnbraut- arstöðina og hún horfði út á Víkina með- an lestin þaut út með firðinum. Þetta var í fyrsta sinni sem hún fór frá Nor- egi. Þá óraði hana ekki fyrir því, að hún ætti eftir að dvelja þar langdvölum. A þessari fyrstu ferð sinni frá Noregi fór hún að hugsa um trúna á Guð og Guðs soninn. Hún hafði á „Heimilinu“ kynnst trúuðum konum, sem gerðu bæn sína á hnjánum. Nú, þar sem hún sat ein 1 járnbrautarvagninum, varð hún gagntek- in af löngun til að biðja til Guðs og þakka honum allar velgerðir og handleiðslur. „Ég féll á kné við trébekkinn í vagn- inum og bað Guð, að Jesús mætti vera frelsari minn, syndir mínar hreinsaðar burtu, og ég mætti eiga Soninn og með honum hið eilífa líf.“ — Eftir bæn sína varð Olafía gagntekin af gleði. Henni fannst hún hafa fundið sín fyrri heimkynni, þar sem hún þekkti hvem krók og' kima. Nokkrum klukkutímum síðar var hún komin til Kaupmannahafnar, og daginn eftir var hún komin um borð í skip, sem átti að fara til Islands. Næstu missiri starfaði hún að mörgum málum. Hún setti á stofn skrifstofu fyrir lífsábyrgðarfélagið „Star“. Hún varð hin sterka stoð í hinu nýstofnaða kvenrétt- indafélagi, sem hlaut nafnið Hið íslenzka kvenfélag. Hún vann að bindindismálum í Goodtemplarareglunni og hún stofnaði Hvítabandið með 50 konum á fyrsta fundi. Árið 1895 komu þrjár konur hingað til Reykjavíkur sendar af alheims-stjórn Hvítabandsins í Ameríku. Koma þessara Hvítabands-kvenna hafði ákaflega mikil áhrif á allt starf og líf Olafíu. — Vísa ég þeim, sem vilja lesa um þessar ágætis konur, í æfisögu Ólafíu, „Frá myrkri til ljóss“, á bls. 72. Árið eftir sendi Hvítabandið í Banda- ríkjunum henni 200,00 kr. til að ferðast um landið og afla félaginu fylgis. Frá „Star“ hafði hún 300,00 kr. Fyrir þessa peninga fór hún fram og aftur um landið. Hún fór til Stykkishólms og þaðan um Vestfirði, um Isafjarðardjúp og landveg til Reykjavíkur. Um haustið fór hún norður Kjöl til Akureyrar og þaðan suð- ur Grímstunguheiði um Kaldadal. Veturinn 1897 fékk hún bréf frá Banda- ríkjunum, þar sem hún er beðin að sækja fund Hvítabandsins, er halda átti í Tor- onto í Kanada í októbermánuði. Hún átti að fá fría ferð frá Englandi til Ameríku og frítt uppihald þar. En hún átti gamalt loforð frá „Star“-félaginu um fría ferð frá Islandi til Englands. Þetta óvænta boð var freistandi. Einnig hlaut það að breyta allri hennar fyrri hugsun um mjólkurbú og matreiðslu- kennslu. Hún segir: „Mér hafði dottið í hug að koma mér fyrir á höfuðbóh nokkru á Suðurlandi og taka þangað ungar stúlkur og kenna þeim að fara með mjólk og búa til mat.“ Henni datt í hug, að koma á húsmæðraskóla-deild við búnaðarskólann á Hólum. — Hún ræddi þetta bæði við skólastjóra og þingmenn. En öll þessi áhugamál hennar áttu langt í land. Og nú eftir nær fimmtíu ár eru sum af þeim að rætast í dálítið breyttum búningi. Það er ákaflega gaman að lesa kaflann í bók Ólafíu um komu 'hennar til New- York og veru hennar hjá þessu yndislega hámenntaða fólki, sem hún fékk nú að vera samvistum með. Hún dvaldi lengst á heimili Pratts hershöfðingja (hann var kallaður „faðir Indíána“). Hún átti þessu fólki það að þakka, að hún fékk að vera á samkomu, þar sem hinn mikli prédik- 4 HVÍTABANDIÐ

x

Afmælisblað Hvítabandsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afmælisblað Hvítabandsins
https://timarit.is/publication/915

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.