Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Blaðsíða 25
Nokkror Hvitobandskonur frá 1907
Hana áttu konurnar í ríkum mæli. Þar
var rétt undirstaða fundin.
Hvítabandið átti á þessum árum tals-
vert af rúmfatnaði. Var hann lánaður
sjúkum og eins sængurkonum og kom
sér vel. Einnig gaf félagið mjólk eftir
því sem fjárhagurinn leyfði.
Þetta var þá starfið, þangað til sjúkra-
hússmálið komst á stefnuskrá félagsins.
Nú hefur bærinn tekið við rekstri húss-
ins. Hvítabandið gaf bænum húsið með
öllu innbúi, það er að segja, það sem
það var búið að leggja í húsið. Sjúkra-
hús þetta hefur, þó það hafi verið alltof
lítið, eins og reyndar öll sjúkrahús hér í
bæ, gert ómetanlegt gagn. Það þekkja
allir, og ekki þarf að lýsa því, hversu
lánlega hefur tekizt með rekstur þess
fram á þennan dag.
En nú, þegar sjúkrahúsmálinu er lokið
af félagsins hálfu, vildi ég mega óska
þess að það tæki nú upp sína fyrri starf-
semi. Það þarf kannske ekki að gefa föt
eins og stendur, nú hafa allir nóg að
klæðast í, en það eru svo mörg önnur
verkefni, sem einmitt ættu að verða
verkefni Hvítabandsins. Eg er viss um, að
hvert það starf, sem félagið tekur að sér,
verður til blessunar. Það hefur fundið
þá „réttu undirstöðu“ allra sinna verka.
A afmælisfagnaðinum, þegar ég sá
þessar fáu konur, sem eftir eru hfandi af
HVÍTABANDiÐ 23