Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Blaðsíða 9

Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Blaðsíða 9
í Noreg biyrjaði hún fyrirlestrastarf- semi sína (fyrir Hvítabandið) strax upp úr nýárinu. Hún ferðaðist suður með landi og kom við í hverjum bæ. — Alls staðar var henni vel tekið. Fólkið kom og hl.ustaði á íslenzku konuna og hvar- vetna var henni tekið sem vini og frænda. — Meðan hún dvaldi í Skot- landi fann hún til þreytu, sem ekki vildi hverfa þó hún héldi kyrru fyrir. Nú ágerðist þessi þreyta og þegar hún kom til Arendal þrutu kraftar hennar, og hún varð að leggjast á sjúkrahús. Hún gat ekki lokið því starfi, sem hún hafði tekið að sér. Það féll henni þungt. En um leið og Hvítabandið leysti hana frá störfum, sendi það henni aukreitis 150,00 kr. og hvatti hana að fara heim til íslands og hvíla sig. Það var þetta fé, sem henni fannst binda sig skyldum við Hvítaband- ið í Noregi. Þess vegna fór hún aftur til Noregs til að halda áfram því starfi, sem hún nú varð að hætta við. Olafía kom heim snemma sumars 1901. Móðursystir hennar varð himinglöð, þá eins og alltaf, þegar fóstra hennar kom heim til hennar aftur úr langferðum sín- um. En hún gerði aldrei neitt til að hefta hana heima. Ólafía hafði alltaf miklar áhyggjur um líðan fóstru sinnar, þegar hún var að heiman. Hún þekkti fóstru sína öllum öðrum betur — og hún gat betur en allir aðrir gert henni til geðs og létt henni lífið, þegar hún kom þreytt heim frá starfi. En nú þurftu þær ekki að skilja oftar, meðan þær lifðu báðar. Á æskuárum sínum var Ólafía, eftir því sem hún segir sjálf, ekki trúuð og hafði margar efasemdir í trúmálum. En eftir því, sem hinn andlegi þroski hennar óx af umgengni við hið göfuga og góða fólk, sem hún var langdvölum með bæði í Noregi, Ameríku og Skot- landi, breyttust trúmálaskoðanir hennar smátt og smátt í örugga trúarvissu. Og í Skotlandi tók hún dálítinn þátt í prédik- unarstarfsemi. Þorbjörg móðursystir hennar og fóstra var alltaf lifandi í trúnni, og tók öllum vel, sem vildu auka gengi trúarinnar meðal Islendinga. Á þessum árum byrjaði ungur áhuga- samur guðfræðingur að halda uppi kristilegum samkomum hér í bænum. Á þessar samkomur var litið dálítið mis- munandi. Islendingar höfðu látið sér nægja prestana og prédikanir þeirra í kirkjunni á sunnudögum. Löngu hús- lestramir voru lesnir á sunnudögum heima og Péturshugvekjur á vetrum, eftir vinnu á kvöldin. Því skyldi okkur ekki nægja þetta áfram? Nei! Þessum unga áhugasama guðfræðing fannst þetta ekki nóg. Hann vildi veita nýjum straum- um af trúarlífi inn í íslenzka þjóðfélagið. Hann leitaði að duglegu trúuðu fólki til að starfa með sér að þessum málum. Ólafía kom á þessar samkomur. Þar, eins og alls staðar þar sem hún fann að gott mál var á ferðinni, þar vildi hún styðja og styrkja. Um veturinn bað hann hana að prédika einhvern sunnudag með sér. Hún segir: „Eg hafði að sönnu talað á samkomum í Edinborg, en þó skaut það mér skelk í bringu að hugsa til þess, að standa frammi fyrir löndum mínum og vitna um trú mína. Eg fann, að allt, sem ég kynni að segja, yrði ég að geta staðið við alla æfi, og mér fannst eins og ég væri að brjóta allar brýr að baki mér. Og þá kom mér þessi spurning í hug: Getur þú gert þér ljósa grein fyrir hverju þú trúir? Ert þú sjálf sannfærð um endur- lausnina? Eg fann að ég var stödd á vegamótum, og sú ákvörðun, sem ég nú tæki, yrði ekki aftur kölluð. Ég leitaði þá Guðs og bað hann í sálarangist minni að birta mér, hvað ég ætti að gera, hvað hann vildi ég gerði, birta mér það svo ljóst og greinilega að ég vissi, hvort ég HVÍTABANDIÐ 7

x

Afmælisblað Hvítabandsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afmælisblað Hvítabandsins
https://timarit.is/publication/915

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.