Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Blaðsíða 21

Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Blaðsíða 21
H. S. Þ.: Sigurbjörg ÞorlóksdóHir Ekki er hægt að minnast svo á starf- semi Hvítabandsins, að eigi sé jafnframt getið Sigurbjargar Þorláksdóttur kennsiu- konu. Hún var tvímælalaust sú kona, er mestu réði um málefni félagsins um langt skeið, að undanskildum formanni þess, frú Ingveldi Guðmundsdóttur, en þær unnu alltaf saman og var samvinna þeirra hin ákjósanlegasta. Sigurbjörg var fædd á Undirfelli í Vatnsdal 5. sept. 1870. Stóðu að henni merkar ættir til beggja hliða, enda auð- séð gott ættarmót í svip hennar og lát- bragði. Hún ólst upp hjá ömmu sinni að Tjörn á Vatnsnesi, ágætu menntaheimili, eins og mörg prestssetur voru á þeim tímum. Hún hafði fjölhliða gáfur og lagði á margt gjörva hönd. Ung lærði hún Ijós- móðurfræði og stundaði þau störf um tíma, einnig saumaskap og vélprjón, sem þá var óvenjulegt. En hennar aðallífsstarf varð þó kennarastaðan og hafði hún búið sig hið bezta undir það starf. Hún hafði kennarapróf úr Flensborgarskóla og dvaldi auk þess erlendis við framhalds- nám. Hún varð kennari við Barnaskóla Reykjavíkur um aldamót og gegndi hún því starfi til dauðadags. Þótti hún þar sem annars staðar liðtæk vel og var við- brugðið hvað stjórnsöm hún var og hve mjög hún bar hag barnanna fyrir brjósti. Einnig lét hún málefni stéttarinnar sig miklu skipta og skildi þýðingu samtak- anna. I Hvítabandið gekk hún árið 1912 og var hún þá þegar kosin varaform. félags- ins og það var hún til hinztu stundar. Hún hafði alla kosti, er til þess þarf að vera góð félagskona, hugkvæmni, mælsku, brennandi áhuga og dugnað. Varð hún því félaginu hinn mesti styrkur og ör- uggasta stoð meðan hennar naut við. Hún gekkst fyrir því, að stofnuð var barnadeild innan félagsins, þar sem telpur fengu tilsögn í handavinnu og þeim var leiðbeint á mörgum sviðum. Mun það starf mikið hafa hvílt á hennar herðum, en lagðist brátt niður sökum húsnæðis- leysis. Sigurbjörg sá glöggt hvað bömin í Reykjavík ólust upp við óholl skilyrði og götulíf. Gerði hún margar tillögur um barnaleikvelli og einnig mun hún hafa verið fyrst manna til að starfrækja hér dagheimili fyrir börn. Hafði hún eitt slíkt heimili í nokkur ár, er hún rak á eigin ábyrgð við hin erfiðustu kjör, en HVÍTABANDIÐ 1 9

x

Afmælisblað Hvítabandsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afmælisblað Hvítabandsins
https://timarit.is/publication/915

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.