Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Side 21
H. S. Þ.:
Sigurbjörg ÞorlóksdóHir
Ekki er hægt að minnast svo á starf-
semi Hvítabandsins, að eigi sé jafnframt
getið Sigurbjargar Þorláksdóttur kennsiu-
konu.
Hún var tvímælalaust sú kona, er
mestu réði um málefni félagsins um
langt skeið, að undanskildum formanni
þess, frú Ingveldi Guðmundsdóttur, en
þær unnu alltaf saman og var samvinna
þeirra hin ákjósanlegasta.
Sigurbjörg var fædd á Undirfelli í
Vatnsdal 5. sept. 1870. Stóðu að henni
merkar ættir til beggja hliða, enda auð-
séð gott ættarmót í svip hennar og lát-
bragði. Hún ólst upp hjá ömmu sinni að
Tjörn á Vatnsnesi, ágætu menntaheimili,
eins og mörg prestssetur voru á þeim
tímum.
Hún hafði fjölhliða gáfur og lagði á
margt gjörva hönd. Ung lærði hún Ijós-
móðurfræði og stundaði þau störf um
tíma, einnig saumaskap og vélprjón, sem
þá var óvenjulegt. En hennar aðallífsstarf
varð þó kennarastaðan og hafði hún búið
sig hið bezta undir það starf. Hún hafði
kennarapróf úr Flensborgarskóla og
dvaldi auk þess erlendis við framhalds-
nám. Hún varð kennari við Barnaskóla
Reykjavíkur um aldamót og gegndi hún
því starfi til dauðadags. Þótti hún þar
sem annars staðar liðtæk vel og var við-
brugðið hvað stjórnsöm hún var og hve
mjög hún bar hag barnanna fyrir brjósti.
Einnig lét hún málefni stéttarinnar sig
miklu skipta og skildi þýðingu samtak-
anna.
I Hvítabandið gekk hún árið 1912 og
var hún þá þegar kosin varaform. félags-
ins og það var hún til hinztu stundar.
Hún hafði alla kosti, er til þess þarf að
vera góð félagskona, hugkvæmni, mælsku,
brennandi áhuga og dugnað. Varð hún
því félaginu hinn mesti styrkur og ör-
uggasta stoð meðan hennar naut við.
Hún gekkst fyrir því, að stofnuð var
barnadeild innan félagsins, þar sem telpur
fengu tilsögn í handavinnu og þeim var
leiðbeint á mörgum sviðum. Mun það
starf mikið hafa hvílt á hennar herðum,
en lagðist brátt niður sökum húsnæðis-
leysis. Sigurbjörg sá glöggt hvað bömin
í Reykjavík ólust upp við óholl skilyrði
og götulíf. Gerði hún margar tillögur um
barnaleikvelli og einnig mun hún hafa
verið fyrst manna til að starfrækja hér
dagheimili fyrir börn. Hafði hún eitt
slíkt heimili í nokkur ár, er hún rak á
eigin ábyrgð við hin erfiðustu kjör, en
HVÍTABANDIÐ 1 9