Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Blaðsíða 13

Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Blaðsíða 13
hún treysti sér að ferðast til Danmerkur. Þar hitti hún vini sína, sem hún hafði eignazt fyrst þegar hún fór utan. Nú fannst henni hún eiga að fara heim, það væri vilji Guðs. Hún lagði á hafið og ferðin gekk miklu betur en nokkur hafði þorað að vona. Hún kom aftur til íslands 31. júlí 1920. Eftir 17 ára fjarveru kom hún aftur heim og fékk að vera hér meðal landa sinna í fjögur ár. En þá var hún búin að vera of lengi langdvölum í Noregi til að geta fellt sig við kulda okkar og af- skiptaleysi í trúmálum og ýmsar trúar- skoðanir, sem þá voru hér mikið uppi. Sporin hennar hér í bæ þessi ár voru til blessunar. Veru hennar hér og blessun- arríka starfs mun alltaf gæta meðal vor. Ég þakka þær stundir, sem hún kom til okkar hjóna. Hún fékk að sjá dætur okkar, sem allar voru þá ungar. Ég minnist hvemig hún horfði á þær með blíðu, kærleiksríku augunum sínum og skildi leiki þeirra og angran. Hún strauk lokka þeirra jafnmjúkt og mína, þegar hún kenndi mér að lesa heima á æsku- heimili mínu í Engey. Veikindi þau, sem höfðu þjáð hana yfir 20 ár, tóku sig upp að nýju. Þá var ekk- ert sjúkrahús hér á landi þar sem hún gat notið þeirrar kyrrðar og hvíldar, sem hún þarfnaðist. Það réðist þá af, að hún færi til Noregs aftur. Gekk sú ferð von- um framar. Hún andaðist í Oslo um sumarið 21. júní 1924 meðal sinna norsku vina og grænu grenitrjánna, sem höfðu heillað hana, og ilmur þeirra var henni svala- drykkur. Lík hennar var flutt heim til Islands. Það kom með „Lyru“. Allan daginn var fólk að koma og spyrja: „Hvar er kistan hennar? Hvenær á að flytja hana í land?“ Klukkan 5 e. m. var kista Ólafíu hafin frá borði. Var hafnarbakkinn þá alskipað- ur fólki. Fánar voru alls staðar dregnir í hálfa stöng. Þannig tóku Islendingar á móti hennar jarðnesku leifum. Nokkrum dögum síðar var hún jarðsungin frá Dóm- kirkjunni í blíðskapar veðri að viðstöddu fjölmenni. Síra Sigurbjörn A. Gíslason hélt kirkjuræðuna, en konur báru kist- una fram í anddyri, þar tóku við nán- ustu vinir og borgarstjórinn og hófu hana út. En upp í garðinn var kista hennar borin af eldri og yngri vinum hennar. Ræðismaður Norðmanna mætti í kirkj- unni í einkennisbúningi. 011 blóm, sem gefin voru á kistu Ólafíu, voru eftir ákvörðun hennar gefin sjúkrahúsunum og fangahúsinu. Við gröfina talaði síra Arni Sigurðsson. Lík hennar var flutt heim. Island fær að geyma duft hennar. Hún hvílir við hlið fóstru sinnar og ömmu í kirkjugarð- inum í Reykjavík. Þar hafði hún sjálf kosið sér ból. Allar heimildir um starf Olafíu eru teknar úr ævisögu hennar, „Frá myrkri til ljóss“. HVÍTABANDIÐ 1 1

x

Afmælisblað Hvítabandsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afmælisblað Hvítabandsins
https://timarit.is/publication/915

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.