Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Blaðsíða 34

Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Blaðsíða 34
Ólafsdóttir 20/2 ’34 — 1/10 ,37), frk. Jakobína Magnúsdóttir (skurðstofuhjúkr- unarkona 20/2 ’34 — 1/10 ’37), frú Júlí- ana Friðriksdóttir (20/2 ’34 — 1/10 ’38 og 1/10 ’39 — 1/10 ’42), frú Helga Heiðar (7/10 ’34 — 1/10 ’40), frú Sigrún Straum- land (1/5 ’35 — 1/10 ’39), frk. Ólafía Stephensen (skurðstof uh júkrunarkona 1/10 ’37 til þessa) og frk. Ragnhildur Jó- hannesdóttir (1/10 ’38 til þessa). Matarvist hefur alltaf þótt ágæt á sjúkrahúsinu og má fyrst og fremst þakka það frk. Margréti Þorsteinsdóttur, sem hefur verið matselja sjúkrahússins frá byrjun til þessa, en aðra ráðsmennsku, bókhald og fyrirsjá hefur frk. Guðlaug Bergsdóttir annazt af stakri ráðdeild og samvizkusemi. Til sjúkrahússins var stofnað af van- efnum og hægt er nú að benda á ýms mistök, sem áttu sér stað við stofnun þess. En þrátt fyrir það hefur það reynzt svo, að ég ætla að erfitt hefði verið að vera án þess og að margir eigi nú því að þakka líf og heilsu, að kvenfélagið Hvíta- bandið réðst í það glæfrafyrirtæki að reisa þessa stofnun og halda við starf- rækslu hennar þessi níu ár. Virðist mér margt óverðugra hafi verið meira þakkað og á lofti haldið, en máske þarf nokkurn fjarska til að sjá hve þessi starfsemi kvenfélagsins Hvítabandsins ber yfir hé- gómabrölt og smámuni, sem eru fréttir dagsins. Nú hefur Reykjavíkurbær starf- rækt sjúkrahúsið í rúm tvö ár og hefur verið haldið í því horfinu, sem áður var og undir hinni sömu framkvæmdastjórn, sem stýrði því fyrr. 32 HVÍTABANDIÐ

x

Afmælisblað Hvítabandsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afmælisblað Hvítabandsins
https://timarit.is/publication/915

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.