Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Page 16
Jóhanna Gestsdóttir
efni félagsins. Söfnuðu konur skýrslum
um fátæk heimili og gáfu bæði mat og
föt. Voru þá oftast samskot á fundum.
svo að útgjöldin lentu mest á félagskon-
um sjálfum. Ymsar fjáröflunaraðferðir
reyndu þær þó og var undravert hvað
þeim varð vel ágengt. Arið 1905 gaf fé-
lagið t. d. mjólk fyrir 460,00 kr. og hefur
það verið mikil upphæð þá. Til saman-
burðar má geta þess, að í fundargerð frá
þeim tíma er kvartað yfir því, að hús
fengist ekki til fundaíhalds fyrir minna
en 2,00 kr. og þótti það dýrt.
Fötin, sem gefin voru, saumuðu félags-
konur sjálfar, ýmist heima hjá sér eða á
saumafundum. Hafa það oft og tíðum
verið æði mikil aukastörf fyrir húsmæð-
ur, sem þó voru önnum kafnar við sín
eigin heimilisstörf, en þar hefur sannazt,
eins og oft, að mikið má góður vilji. Arið
1918 gaf félagið t. d. 233 fatnaði fyrir
jólin. Seinna sótti félagið um styrk til
bæjarins til fatagjafa, en eigi sést hvort
það hefur komið til framkvæmda. Þess-
um fatagjöfum hefur verið haldið áfram
allt fram á síðustu ár, en þörf fyrir það
er miklu minni en áður var.
Trúmál hefur félagið látið sig skipta,
enda var það stofnað á kristilegum grund-
velli. Lengi hélzt sá siður, að kaupa blóm
og gefa sjúklingum í sjúkrahúsum bæjar-
ins og láta ritningargrein fylgja með.
Einnig hafa fundir löngum verið byrjaðir
og endaðir með bænum og sálmasöng.
Kristileg smáblöð gaf félagið út um tíma,
erindi um trúmál hafa verið flutt innan
félagsins o. fl. Lengi starfaði yngri deild
Hvítabandsins að sömu málefnum og er
hennar getið hér í ritinu á öðrum stað.
Garðyrkju hafði félagið í mörg ár og
hefur þar, eftir líkum að dæma, verið til-
tölulega meira erfiðið en eftirtekjan.
Sumarheimili starfrækti félagið á Brúar-
landi árið 1925 og dvaldi þar að jafnaði
26 manns, og mun það hafa verið með
fyrstu tilraunum í þá átt, er gerðar hafa
verið hér á landi.
Fræðslustarfsemi hefur það einnig
haldið uppi og er venjulegast á hverjum
fundi einhver upplestur, annaðhvort úr
nýútkomnum bókum eða frumsamið. Fé-
lagið selur falleg minningarspjöld og
leggur andvirðið í sjóð. Það á einnig
sjúkrasjóð.
Hjúkrunarmál hafa alltaf verið ofar-
lega á stefnuskrá félagsins og má það
heita þess aðalmál á seinni tímum.
Það hefur oft kostað vökukonur til að
vaka yfir fátækum sjúklingum og stund-
um hafa konurnar gert það sjálfar. Oft
hefur félagið gefið sjúklingum rúmföt og
annað, er að gagni hefur mátt koma, og
stundum hefur þetta verið lánað.
Á Bandalagsfundi kvenna 1917 var
fyrst rætt um stofnun hjúkrunarheimilis
hér í Reykjavík og varð það síðar sérmál
Hvítabandsins og þess aðalmai'kmið í
mörg ár. Varð félagslífið þá fábreyttara
og einkum unnið að fjársöfnun, þó að
alltaf væri jafnframt starfað að líknar-
1 4 HVÍTASANDIÐ