Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Side 20
Hólmfríður Arnadóttir:
Yngri deild Hvítabandsins
Með því að ég hafði fengið umboð frá
Heimsfélagi Hvítabandsins til að stofna
ný félög eða deildir, þá fékk ég fáeinar
konur, sem voru félagskonur í Hvíta-
bandinu í Reykjavíó, til þess að stofna
með mér nýja deild, sem fékk nafnið
Yngri deild Hvítabandsins, sem var hlið-
stæð eldri deildinni, en ekki að neinu
leyti undir hana gefin. Við, sem stóðum
að stofnun deildarinnar, vorum eftir sem
áður í eldri deildinni og störfuðum með
henni, jafnframt og í hinni. Þetta var því
líkast og þegar ný stúúka er stofnuð í
Góðtemplarafélaginu. Gerðust margar
ungar stúlkur og konur félagar. Stofnun
deildarinnar fór fram veturinn 1914, og
voru fundir haldnir tvisvar í mánuði, á
Hverfisgötu 50, þar sem ég starfrækti þá
skóla. Þegar yngstu nemendur mínir
komust að því, að svo margar af eldri
nemendum skólans voru starfandi í fé-
lagi þessu, langaði þær einnig til að
stofna með sér félag, sem þá fékk nafnið
Yngsta deild Hvítabandsins, og svaraði
það aftur til barnastúku í Góðtemplara-
félagi.
Haustið 1917 yfirgaf ég' Island og dvaldi
um fimm ára skeið í Ameríku. Deildir
þær, sem getið er um hér að framan,
héldu áfram að starfa undir handleiðslu
nokkurra ágætra kvenna.
Þó þær hafi nú lagzt niður, sem stafar
af breyttum tímum og minni þörf á fé-
lagsskap af þessu tagi, þá hafa þær gert
sitt gagn, og sé ég ekki eftir þeim tíma,
sem ég af eigin hvötum eyddi til að vinna
í félögum þessum.
Frk. Guðlaug Hedvig Bergsdóttir var formað-
ur Hvítabandsins frá 1934—1944. Hún er fædd á
Flateyri við Önundarfjörð 8/10 1903. Útskrifað-
ist úr Kvennaskólanum í Reykjavík 1924. Auk
þess var hún eitt ár við nám í Kaupmannahöfn.
Hún tók við stjórn félagsins á mjög örðugum
árum. Hvítabandið hafði þá nýlega reist hið
myndarlega sjúkrahús við Skólavörðustíg, og
voru ýms vandamál þá á döfinni, sem aðallega
mæddu á frk. Guðlaugu, enda reyndist hún
bæði dugleg og úrræðagóð og vann dyggilega
að gagni og sóma félagsins. Öll þau ár, sem frk.
Guðlaug var formaður félagsins, gekk starfsemi
þess út á það, að halda sjúkrahúsinu starfandi
og var það mest og bezt hennar dugnaði að
þakka, að félagið gat starfrækt sjúkrahúsið öll
þessi ár. Félagskonur þakka frk. Guðlaugu ágæt-
iega unnið starf í þágu Hvítabandsins. H. J.
1 8 HVÍTABANDIÐ