blaðið - 25.05.2005, Qupperneq 4
4 innlent
■
miðvikudagur, 25. maí 2005 I blaðið
Gunnar Einarsson tók í gær við starfi
bæjarstjóra í Garðabæ af Ásdísi
Höllu Bragadóttur en eins og kunn-
ugt er mun Ásdís á næstunni taka við
starfi forstjóra Byko. Af þessu tilefni
afhenti Ásdís nýjum bæjarstjóra lykil
en að þessu sinni var það ekki hefð-
Flfsar
I - úti og inni -
Varanleg lausn
Gegnheilar útiflísar
á svalir, tröppur,
sólstofur og
jafnvel bílskúrinn.
Verðdæmi:
30x30 kr. 1.150,- m2
ALFABORG
Skútuvogi 6 • Sími 568 6755
Nýr bæjarstjóri í Garðabæ
Rafrænar kosningar á landsfundi Sam-
fylkingarinnar.
formannskosninguna á miklum villi-
götum og hafa einkennst af óstaðfest-
um gróusögum. Hann kvaðst ekki
vita hversu margir ungir fulltrúar
hefðu setið landsfundinn.
Gunnar Svavarsson, formaður
framkvæmdastjómar Samfylkingar-
innar, segir að ný framkvæmdastjórn
hafi enn ekki komið saman, og sér vit-
anlega hafi ekki enn borist formlegar
ábendingar eða kærur. Komi til slíks,
eða að starfsmenn flokksins beri mál-
ið upp, sé það framkvæmdastjómar
að §alla um það.
Blaðinu hefur enn ekki tekist að
ná tali af Ágústi Ólafi Ágústssyni,
nýkjörnum varaformanni Samfylk-
ingarinnar.
Skrifað undir
kjarasamning
Styrktarfélag vangefinna og
SFR - Stéttarfélag í almanna-
þjónustu, hafa skrifað undir
nýjan kjarasamning. Samning-
urinn er að sögn á svipuðum
nótum og gerður var á milli SFR
og ríkissjóðs í mars sl., en nán-
ari atriði stofhanasamningsins
hafa verið útfærð. Eitt af því
sem náðist fram í nýjum samn-
ingi em starfsaldurshækkanir
hjá stuðningsfulltrúum. Samn-
ingurinn er afturvirkur ffá 1.
febrúar síðastliðnum.
bundinn lykill heldur, eins og Ásdís
orðaði það, „lykill að verkefnum bæj-
arstjóra". Um var að ræða þvagblöðru
úr skinni, öðro nafni völuskrín. Til
útskýringar sagði Ásdís að í skríninu
væri lítill miði sem skrifa ætti fram-
tíðarsýn sem fara þyrfti eftir. Einnig
væri í skríninu sauðavala sem hægt
væri að spyrja erfiðra spurninga og
myndi valan svara já eða nei.
Gunnar Einarsson er með meistara-
próf í stjómun, auk þess að hafa lokið
námi í opinberri stjórnun og stjórn-
sýslu. Hann hefur að undanfórnu
unnið að doktorsverkefni við háskól-
ann í Reading í Englandi. Hann mun
sinna starfi bæjarstjóra í eitt ár.
Það vakti athygli blaðamanns að
í kjölfar gamansögu Gunnars um
ffáfarandi bæjarstjóra sagði Ásdís
að „maðurinn væri svo hraðlyginn
að hann ætti eftir að standa sig ffá-
bærlega í nýju starfi". Hvort það sé
reynsla Ásdísar, að slíkt þurfi til að
stjóma Garðabæ, skal ósagt látið.
íslenskir karlmenn verða
allra karla elstir
Landsfundur Samfylkingar:
Fulltrúar Ungra jafnaðarmanna
ekki allir á flokksskrá
Brögð voru að því að fulltrúar Ungra
jafnaðarmanna á landsfundi Sam-
fylkingarinnar reyndust ekki vera
á flokksskrá þegar til skráningar á
fundinn kom. Andrés Jónsson, for-
maður Ungra jafnaðarmanna, segir
að þar hafi verið um mistök skrifstofu
Samfylkingarinnar að ræða - flokks-
skráin hafi ekki reynst nægilega vel
uppfærð fyrir landsfundinn. Það hafi
allt verið leiðrétt. Einn þingmanna
flokksins, sem ekki vildi láta nafhs
síns getið, gaf lítið fyrir þá skýringu
og sagði flokksskrána sjálfsagt aldrei
hafa verið jafnvel uppfærða og nú,
enda hörð formannskosning að baki
með miklum nýskráningum.
268 ungirjafnaðarmennhöfðusetu-
rétt á landsfundinum en enn hefur
ekki tekist að fá staðfest hversu marg-
ir þeirra innrituðu sig á fundinn eða
hversu margir neyttu atkvæðisréttar
síns. Á skrifstofu Samfylkingarinnar
er nú unnið að samantekt tölfræði-
legra gagna landsfundarins.
Andrés telur umræðuna um vara-
Japanskar konur llfa nú allra kvenna
lengst en fyrir um sex árum voru íslensk-
ar konur á toppnum.
Lífslíkur íslenskra karla hafa batnað
mun meira en kvenna á síðustu ára-
tugum og nú er svo komið að íslend-
ingar verða karla elstir í heiminum.
Þetta kemur fram í tölum sem Hag-
stofa íslands sendi frá sér £ gær. Kon-
ur geta þó ennþá vænst þess að lifa
lengur en karlar þv£ eins og annars
staðar £ heiminum er meðalævilengd
karla styttri en kvenna. íslenskir
karlar geta nú vænst þess að verða
78,8 ára og konur 82,6 ára.
Á undanfómum þremur áratugum
hefur dregið talsvert saman með kynj-
unum i meðalævilengd. í upphafi 8.
áratugarins var sex ára munur á ævi-
lengd kvenna og karla hér á landi en
nú er munurinn aðeins tæp fjögur ár.
Svipaða þróun má greina £ öðrum Evr-
ópulöndum en munurinn á ævilengd
á milli kynjanna er þó viðast hvar
meiri en hér, eða sex til sjö ár i flest-
um löndum.
íslenskar konur í 6. sæti
Lengi vel voru lífslíkur íslenskra
kvenna hæstar á veraldarvísu en nú
ero íslenskar konur í 6. sæti. Með-
al þeirra þjóða, þar sem konur lifa
lengur en þær íslensku nú til dags,
má nefna Spán og Frakkland. í Jap-
an eru ævilíkur kvenna langhæstar
í heimi en þar verða konur nær 86
ára að meðaltali. Japanskir karlar
geta vænst þess að ná rúmlega 78
ára aldri.
Gunnar Einarsson tekur við verkefnalykli
af Ásdísi Höllu Bragadóttur, fráfarandi
bæjarstjóra.
Vestfjarðaakademía
- nýtt félag fræðimanna
Dr. Ólína Þorvarðardóttir og Anna
Guðrún Edvardsdóttir M.ed. hyggj-
ast koma á legg félagi fræðimanna á
Vestfjörðum. Félagið mun bera nafn-
ið Vestfjarðaakademían og verður
stofnfundur þess haldinn á Isafirði 2.
júm' nk. „Við höfum verið að horfa til
Reykjavíkurakademíunnar sem fyrir-
mynd en fyrst og ffernst hugsum við
þetta sem félagsskap fólks með æðri
háskólamenntun sem uppfyllir kröfur
um kennsluhæfi á háskólastigi, þ.e.
fólk með embættispróf, meistarapróf
eða doktorsgráðu," segir Ólína. „Með-
limir akademíunnar gætu þá tekið
þátt í rannsóknarverkefnum, boðið
ffarn kennslukrafta sína og ffæði-
lega aðstoð. Félagið virkar þá sem
tengslanet sem veitir fólki í ffæði-
og/eða rannsóknarstörfum stuðning.
Við vonum að þetta verði til eflingar
þekkingarsamfélaginu hér. Það er
komið háskólasetur til Vestfjarða
og þar á bæ er farið að huga að stað-
bundinni kennslu á háskólastigi. Við
viljum bjóða þeim krafta okkar ef til
kemur.“ 30 ffæðimönnum hefur verið
boðin aðild að Akademíunni og Ólina
reiknar með því að þeir muni allir
taka boðinu.
Danskur forstjóri til Samskipa
Ásbjörn Gíslason forstjóri hefur tek-
ið við rekstri Samskipa á íslandi af
Knúti G. Haukssyni, verðandi for-
stjóra Heklu. Ásbjörn hefur leitt út-
rás félagsins erlendis undanfarin ár
og tekur nú einnig við stjóm íslands-
deilda félagsins erlendis og frysti-
vöruflutninga þess. Nýr forstjóri
Samskipa, við hlið Ásbjörns, verður
Michael F. Hassing, sem hefur verið
forstjóri danska Maersk-skipafélags-
ins á Bretlandseyjum. Hann mun
einkum sinna ört vaxandi gámaflutn-
ingastarfsemi Samskipa erlendis og
flutningsmiðlunarþjónustu félagsins.
Starfsmenn Samskipa eru um
1.300 en félagið rekur nú 49 skrifstof-
ur í 21 landi, auk þess sem umboðs-
menn starfa víða um heim. Á þeirra
vegum er alls 21 gámaskip í fóstum
áætlunarsiglingum og eru áætlaðir
heildargámaflutningar félagsins á
þessu ári ríflega 900 þúsund gámaein-
ingar. Samskip og dótturfélagið Sil-
ver Sea eru einnig með 15 frystiskip
á sínum snærum og til viðbótar eru
Samskip með önnur 15 skip í ýmsum
d: Esther
verkefnum, m.a. í þungaflutningum
fyrir olíuiðnað í Noregi og í löndum
við Svartahaf.
Auglýsingadeild 510-3744
blaóió