blaðið - 25.05.2005, Síða 21
blaðið I miðvikudagur, 25. maí 2005
Playstatlon 3
Njóttu þess fram í fingurgóma að sumarið er komið. Notaðu næsta frí-
dag til að sinna sjálfum þér og safna kröftum eftir annasama vinnuviku.
Slakaðu á eða dólaðu þér við að sinna áhugamálum sem hugur þinn reik-
ar til. Að kvöldi dags geturðu svo á fljótlegan og einfaldan hátt kórónað
afslöppunina með því að fylgj a einfaldri grilluppskrift sem kitlar bragðlauka
flestra karlmanna. Njóttu sólarinnar og léttleika sumarins undir áhrifum
frá tælandi snarki grillsins og ilmandi matreiðslu að hætti karlmanna.
Grilluppskrift
einstæðingsins:
Innihald:
Nautainnanlærisneið
1 hvítlaukur
1 gulrót
2 stórar kartöflur
Smjörklípa
Kjötkraftur
Svartur og grænn pipar
Hveiti eða Maizena-mjöl
Kjötið
Steikið kjötið skamma stund og piprið
vel. Setjið álpappír á grillið og steikið
saxaðar kartöflurnar og niðurskorna
gulrótina upp úr smjöri ásamt heilum
hvítlauksrifjunum. Setjið svo kjötið
á álpappírinn og steikið allt saman.
Stingið í kjötið með reglulegu millibili
til að kanna hvort það sé tilbúið. Steik-
ingartími fer eftir smekk.
Sósan
Setjið örlítið vatn í pott og bætið
nautakrafti og grófmöluðum svörtum
og grænum pipar út í. Látið malla
í fimm mínútur og bætið svo örlitlu
hveiti eða Maizena-mjöli út í til að
þykkja sósuna. Hrærið vel og bætið
svo örlitlum rjóma út í rétt áður en
sósan er tekin af hellunni.
Skolaðu þessu niður með rauðvíni,
bjór eða hverju því sem þér finnst
viðeigandi - hallaðu þér svo aftur og
njóttu þess að sumarið er komið. Að
sjálfsögðu á að borða úti undir berum
himni ef veður lofar - til að kóróna
upplifunina. |
bylting á leikja-
tölvumarkaði
Sony hefur gert nýjustu Playstation-
tölvunaopinbera. Áblaðamannafundi
fyrir skemmstu kynnti Sony í fyrsta
sinn vélina sem ber nafnið Playstati-
on 3. Heitið kom ekki á óvart, þrátt
fyrir að mikil leynd hafi verið um það
í nýafstaðinni auglýsingaherferð.
Helsti munurinn á PS2 og PS3 er
sá að í nýju vélinni er sér örgjörvi
sem sér um vinnslu og sér grafik-ör-
gjörvi sem var ekki í PS2. Hinn frægi
Cell-örgjörvi, sem Sony hefur unn-
ið að undanfarið ár í samstarfi við
IBM og Toshiba, keyrir vélina áfram
og N-VIDEA-örgjörvinn sér um graf-
íkina. í stað þess að einn örgjörvi
sjái um allt þá er betri skilgreining
á milli verkefna í vélinni sem skilar
sér í stórbættum hraða og betri graf-
ík. Nýja tölvan notast við Blue Ray
geisladiska. Þeir geta borið sex sinn-
um meira efni en hefðbundnir DVD
diskar eða um 54GB. Hún mun geta
spilað alla leiki sem komið hafa út fyr-
ir fyrri Playstation-tölvur. Nýja vélin
mun spila flestar þekktar tegundir
diska, hefðbundna og skrifaða geisla-
diska, DVD, DVD-ROM, DVD-R og
DVD+.
Grafíkin er víst sláandi og einn
þeirra íslendinga, sem séð hefur tölv-
una, sagðist í fyrsta skipti hafa feng-
ið gæsahúð yfir því sem fyrir augu
bar. Vélin getur spilað á tvö sjónvörp
í einu þannig að ef maður er t.d. í bíla-
leik þá getur maður skipt myndinni á
milli sjónvarpa í tveggja manna spili
án þess að myndin skiptist í tvennt
á einum skjá. Allar fjarstýringar
eru þráðlausar og hægt er að nota
sjö stýripinna í einu án þess að nota
millistykki. ■
Mín skoðun
aldarinnar?
magnus@vbl.is
Femínistafélagið samanstend-
ur af vígreifum stúlkum sem
berjast af miklum eldmóði
gegn hvers konar kvenoki.
Markmið samtakanna er
virðingarvert og innblásið af
fallegri hugsjón en því miður
teygja angar starfseminnar sig
langt út fyrir það svið sem sam-
tökin ættu að fást við.
Ráðvilltu riddararnir
Fyrir nokkru fjölmenntu femínistar
í bókabúðir og stórverslanir til að
líma bleikan límmiða á hvert einasta
eintak tímaritsins B&B. Á límmiðan-
um var innihald blaðsins fordæmt og
neytendur hvattir til að beina kaup-
um sínum annað. Femínistar voru
sérstaklega óánægðir með grein sem
hafði verið skrifuð í blaðið skömmu
áður og hét „Beygð’ana í bólið“.
Ljóst var að enginn
innansamtakanna
hafði mátt vera
að því að lesa
innihald
greinar-
innar
sem
snerist um tilhugalífsráðleggingar til
karla sem áttu erfitt með að finna sér
maka - greinarhöfundurinn valdi ein-
faldlega óviðeigandi nafn vegna þess
að það stuðlaði. Þetta er einkennandi
fyrir baráttu femínista - þeir slást
við vindmyllur, berjast gegn ósýni-
legum óvinum en skeyta ekki um rót
vandans sem liggur í sjálfsvitund kyn-
systra þeirra.
Rót vandans
Um allan hinn vestræna heim fyrir-
finnast kvennablöð. Þau gefa örvingl-
uðum konum ráð til að bæta stöðu
sína í heimi einstaklinga og sam-
keppni. í blöðunum eru ógrynni ráð-
legginga til kvenna um hvernig þær
geti þóknast körlum. Greinarnar bera
gjarnan nöfn á borð við: „Karlar vilja
stór brjóst", ,AIlt sem þú þarft að gera
til að finna draumaprinsinn", „Svona
verður flott að klæða sig næsta sum-
ar“, „Nærfót sem virka“, eða með öðr-
um orðum: ,Ailt sem þú þarft að gera
til að körlum líki vel við
þig“. Vinsælustu
tíma-
ritin fyrir konur eru uppfull af grein-
um sem ná út fyrir endamörk for-
heimskunnar. Greinum sem snúast
um fót, kynlíf, sambönd og snyrtivör-
ur - fót sem öðrum finnst flott, kynlíf
sem öðrum finnst gott, sambönd eins
og öðrum finnst þau eiga að vera og
málningu sem gleður auga annarra!
Er þetta sjálfstæði nútímakonunnar?
Allt sem öðrum finnst í einu blaði
ásamt auglýsingum? Villandi ráðlegg-
ingar innan um aragrúa af áróðri?
Vinsælustu og dýrustu kvennablöðin
á borð við Cosmopolitan minna held-
ur á auglýsingasíma-
skrár en ritverk
vitsmunaveru - það
er því lán í óláni að
margar konur lesa
ekki blöðin en skoða
eingöngu myndir og aug-
lýsingar.
Verði þinn vilji
Nú höfum við með örlítilli
Úr Cosmopolitan
hugleiðingu séð glitta í grundvallar-
vanda hinnar vestrænu konu. Hún
er á tilvistarlegum vergangi - hún
er háð öðrum um eigin sjálfsvitund.
Á hverju ári fær hún send skilaboð
frá hinum og þessum mönnum, víðs
vegar að úr heiminum, um hvernig
hún skuli klæða sig, hvað hún skuli
vera þung, hvort líkaminn eigi að
vera stæltur eða magur, hvernig hún
skuli lita á sér hárið o.s.ffv. Af þræls-
lund tekur konan við skilaboðunum
frá tískukóngi sínum og heldur hok-
in út í heiminn til að reyna að upp-
fylla fáránlegar kröfur yfirboðarans
- skipanir sem krefjast þess að hún
hætti að borða og verji bróðurhluta
tíma síns og ráðstöfunartekjum til
að framfylgja útlitskröfum herrans.
Þarna, femínistar mínir, er vanda-
málið - ekki í karlablöðunum heldur
í kvennablöðunum! Berjist við rétta
óvini, ekki spenna bogann svo langt
að strengurinn slitni - þá fellur örin í
fótinn á sjálfum ykkur.
Burt með
táfýluna
Táfýla verður mörgum vandamál
á sumrin með hækkandi sól og
uppsveiflu hitastigs. Táfýla getur
stafað af sveppasýkingu en þá er
lausnin fólgin í lyfjagjöf. Apótek
bjóða ýmis krem og úða til að bera
á fætuma en þó eru til húsráð fyrir
þá sem þjást af hefðbundinni minni
háttar táfýlu.
Hægt er að setja einn dropa af
formalíni í sinn hvom skóinn. Það
kæfir alla lykt. Þeim sem hyggjast
beita þeirri lausn oftar en einu
sinni er bent á að ráðfæra sig við
lyfjafræðing. Einnig er hægt að
geyma skóna í frysti í sólarhring og
við það hverfur fýlan nema hún sé
svimandi súr.