blaðið - 03.11.2005, Blaðsíða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 blaöiö
SUSHI
TRHin
OPNAR 1. DESEMBER
[LÆKJARGATA]
Matvöruverð:
Hækkun
framundan?
Gera má ráð fyrir að verð á
matvöru muni hækka hér
á landi á næstu mánuðum
miðað við spá greiningadeildar
íslandsbanka í gær. Þar er bent
á að Hagar, móðurfélag Bónus,
to/ii og fleiri verslana, hafi birt
níu mánaða uppgjör sitt fyrr í
vikunni og að útkoma þess hafi
verið slæm. Félagið tapaði um
700 milljón krónum á tímabil-
inu og er slæm afkoma meðal
annars rakin til „verðstríðs á
lagvöruenda matvörumark-
aðsins“ eins og það er orðað.
Gengið:
Enn hækkar
gengið
Gengi íslensku krónunnar
hækkaði talsvert í gær f kjölfar
frétta af aukinni erlendri
skuldabréfaútgáfu. Gefin voru
út skuldabréf fyrir 8 milljarða
króna. Samkvæmt Greiningu Is-
landsbanka hefur erlend útgáfa
því vaxið um 11 milljarða það
sem af er vikunnar. Dollarinn
er því kominn undir 60 krónur
á ný og hefur það ekki gerst
síðan í mars sl. Evran kostar
72 krónur og hefur hún ekki
verið ódýrari síðan í júní 2000.
íslandsbankamenn segja flest
benda til að Seðlabankinn
muni enn á ný hækka stýri-
vexti sína á næstu vikum og
mun sú hækkun enn hvetja til
frekari útgáfu erlendra aðila
á skuldabréfum í erlendum
krónum. Það er því útlit fyrir
að gengi krónunnar haldist
enn hátt og kemur enn frekari
gengishældcun vel til greina.
Að mati Greiningar er krónan
ofmetin þegar tiílit er tekið til
viðskiptahallans og þyrfti gengi
hennar að lækka um fjórðung
til að stuðla megi að jafnvægi á
utanríkisviðskiptum landsins.
Það muni hinsvegar ekki gerast
fyrr en á síðari hluta næsta árs
og á þarnæsta ári. Gengisvísital-
an fór í gær lægst í 100,2 stig og
samkvæmt Landsbankanum
hefur hún aldrei farið lægra.
Bubbi Morthens:
Krefur 365 um 20 milljónir
vegna forsíðu Hér og nú
Villfá 20 milljónir króna í miskabœtur. Fjölmiðlarisinn verður að
finnafyrirþvíþegar svona ergengið fram, segir Sigríður Rut Júlíus-
dóttir, lögmaður Bubba.
Tónlistarmaðurinn Bubbi Mort-
hens hefur stefnt 365 prentmiðlum
og Garðari
Erni Úlfars-
syni, fyrr-
verandi
ritstjóra
tímarits-
ins Hér
og nú,
v e g n a
umfjöll-
unar um sig
í sumar. Bubbi
krefst þess að
ummæli í
fyrirsögn-
um blaðs-
ins verði
d æ m d
dauð og
ómerk
og að
W hann
fái 20 milljónir króna í miskabætur.
Á forsíðu Hér og nú þann 16. júní
í sumar var mynd af Bubba þar sem
hann sat inni í bíl og reykti sígarettu
undir fyrirsögninni „Bubbi fallinn“.
Að sögn Sigríðar Rutar Júlíusdótt-
ur, lögmanns Bubba, var með þeim
hætti reynt að blekkja lesendur, því
margir töldu að þarna væri greint
frá því að söngvarinn hafi fallið á
fíkniefnabindindi. Inni í blaðinu
mátti hins vegar lesa um það að
hann væri aðeins fallinn á tóbaks-
bindindi. „Eðli máls samkvæmt sáu
mun fleiri forsíðuna en lásu grein-
ina og komust að hinu sanna.“
Sigríður Rut segir að vissulega séu
20 milljóna miskabætur hærri en
dæmi eru um. „1 því samhengi verð-
ur að líta til stöðu tjónvalds. Þarna
er fjársterkur aðili, sem heldur úti
fjölda fjölmiðla í gríðarlegri dreif-
ingu. Það þýðir ekkert að láta hann
borga 20 þúsundkall í skaða-
bætur, því slík útgjöld skipta
hann engu. Þá heldur hann
bara áfram að brjóta og er
samt að græða. Fjölmiðlar
mega ekki græða á lögbrotum
frekar en aðrir.“
Dæmi eru um að staða tjónvalds
sé höfð til hliðsjónar þegar bætur
eru ákvarðaðar. Staða tjónþola get-
ur líka haft áhrif þar á. „Það er alveg
rétt að opinberar persónur þurfa
að þola meiri og nánari umfjöllun
en almenningur. En það þýðir ekki
að fjölmiðlar hafi veiðileyfi á þær
og geti leyft sér hvað sem er,“ segir
Sigríður Rut. Hún telur að í málaferl-
unum verði hugað að margvíslegum
flötum þess.
„Þetta er friðhelgisbrot, hvort fjalla
megi um hvað sem er í einkalífi
fólks, þó það sé frægt. Svo snýst það
um hvort leyfilegt sé að birta mynd-
ir úr launsátri með þessum hætti.
Loks snýr það að því hvort fjölmiðill
megi óátalið setja mál fram með vill-
andi hætti.“
Straumur-Burðarás:
Hefur þrefald-
að eigið fé frá
áramótum
Straumur-Burðarás Fjárfest-
ingabanki birti í gær árshluta-
uppgjör sitt. Þar kemur fram
að hagnaður eftir skatta
fyrstu níu mánuði ársins nam
rúmum 14 milljörðum króna
en á sama tímabili i fyrra var
hagnaðurinn rúmir 6 milljarð-
ar. Hækkunin nemur því 107%.
Eigið fé var 105,448 milljónir
króna í lok þriðja fjórðungs og
hefur eigið fé bankans þrefald-
ast frá áramótum. Þórður Már
Jóhannesson forstjóri Straums-
Burðaráss segist ánægður með
uppgjörið í tilkynningu frá
bankanum. „Bankinn hefur
styrkt stöðu sína á öllum
sviðum. Vaxta- og þjónustu-
tekjur aukast og útlán til
viðskiptavina vaxa á hverjum
ársíjórðungi. Samruni Straums
og Burðaráss eflir bankann,
eigið fé hefur þrefaldast frá
áramótum og umsvif bankans
á erlendum verðbréfamörkuð-
um hafa aukist," segir Þórður.
ASI
Uppsögn kjara-
samninga næsta skref
Miðstjórn ASÍ kom saman í gær en
þar var lýst yfir vonbrigðum með
viðbrögð atvinnurekenda og ríkis-
stjórnar við umleitunum ASl um
endurskoðun kjarasamninga. Talið
er einsýnt að til uppsagnar kjara-
samninga muni koma að óbreyttu.
„Það hafa verið áframhaldandi
viðræður við fulltrúa Samtaka at-
vinnulífsins og við áttum fund með
ríkisstjórn í morgun,“ sagði Grétar
Þorsteinsson, forseti ASÍ í samtali
við Blaðið í gær. „Menn sjá ekki ann-
að en að ef þessi staða helst óbreytt
þá blasi við uppsögn kjarasamninga.
Enn er þó til stefnu hálfur mánuður,
því eindaginn í þessu máli er fimm-
tándi nóvember." Grétar sagðist ekki
vilja tjá sig um það hvort hann væri
bjartsýnn um að málið muni leysast
fyrir þann tíma. „Það voru ákveðin
vonbrigði með fund okkar með ríkis-
stjórninni og það hefur hvorki geng-
ið né rekið í viðræðum okkar við SA.
Þetta er staðan sem við stöndum
frammi fyrir og það var þetta ástand
sem miðstjórnin var að leggja mat á
í dag. En lengi skal manninn reyna
og eins og ég sagði er tæpur hálfur
mánuður til stefnu. Hjá Samtökum
atvinnulífsins virðist því miður
ekki vera neinn hljómgrunnur fyrir
því að brúa það bil sem þarf að brúa
til þess að menn nái saman og þær
viðræður sem farið hafa fram hafa
verið á þann veg að menn sjá ekki
í stöðunni eins og er að þar á bæ
verði einhverjar breytingar.“ Grétar
vildi ekki tjá sig um sjónarmið SA í
málinu. „Það er viðurkennt að verð-
lagsforsendurnar eru brostnar, við
deilum ekkert um það. Síðan eru
bara uppi mismunandi viðhorf til
málsins að öðru leyti og þeir verða
bara að skýra sína afstöðu sjálfir.“
Glerveggir-huróir
Brautir - Hert g
Hawa
Unnu teiknimyndasamkeppni
I gær voru veitt verðlaun fyrir teiknimyndasamkeppni barna sem (búðalánasjóður stóð
fyrir. Það var Forseti (slands, Ólafur Ragnar Grfmsson, sem afhenti verðlaunin en í gær
var þess einnig minnst að 50 ár eru liðin frá afgreiðslu fyrsta húsnæðisláns Húsnæðis-
málastjórnar, forvera fbúðalánasjóðs.
_ gler ehf
arvogsmegin - S: 58
www.iarngler.is
O Heiösklrt O léttský|a& ^ Skýjað £ Alskýlað // Rigning,lítllsháttar /// Rlgnlng f 7 Súld * ^ Snjókoma
' 'S' 9 :fc
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vin
Algarve
Dublln
Glasgow
17
22
15
11
16
17
08
13
15
18
23
05
08
17
08
18
10
07
10
15
14
13
-1
0
%
0°
*
*
*
Slydda Snjóél
tfr*
Skúr
0 0°
?
01“
%
*
*
4‘
0
&
%
1
o
*
0
-1°
Veðurhorfur f dag kl: 18.00
Veðursíminn 32 0600
Byggt á upplýslngum frá Veðuretofu (alands
7°
///
///
///
ro ///
*
Amorgun
0
1°