blaðið - 03.11.2005, Side 6
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 bia6iö
Þungaflutningar valda auknum slysum
Álag og slysahætta á þjóðvegum landsins eykst með aukinni umferð vöruflutningabíla
Iceland Express:
Mikill áhugi
Flugfélagið Iceland Express er
til sölumeðferðar hjá fyrirtækja-
sviði KB banka og er vonast
til að sala á því taídst fyrir jól.
Að sögn Örvars Kærnested
hjá KB banka hafa margir lýst
yfir áhuga á Iceland Express.
„Ég er nú ekki með það í
kollinum hve margir hafa gefið
áhuga sinn til kynna, en þeir
eru á bilinu 5-10, þannig að það
er óhætt að segja að áhuginn sé
mikill,“ segir Örvar. Hann segir
að þetta séu allt íslenskir aðilar.
Pálmi Haraldsson, einn
aðaleigenda Iceland Express
hefur látið hafa eftir sér að
hann telji flugfélagið vera 3-4
milljarða króna virði. Hagnað-
ur á árinu er tahnn nema
um 300 milljónum króna.
Þungaflutningar á þjóðvegum lands-
ins hafa aukist mikið á undanförn-
um árum með aukinni tíðni slysa
og aukins slits á vegum. Á fyrstu sex
mánuðum þessa árs slösuðust 26 ein-
staklingar í umferðaróhöppum þar
sem vöruflutningabifreiðar komu
við sögu þar af sjö alvarlega og einn
lét lífið. Er þá ekki talið með slysið
í Hallormsstaðarskógi í sumar þar
sem tveir létust og einn slasaðist al-
varlega eftir að fólksbíll og vörubíll
skullu saman.
Slysum fjölgar
Sé horft til umferðarslysa í dreif-
býli hefur slysum þar sem vörubíl-
ar koma við sögu fjölgað ár frá ári
síðan 2002. Það ár voru þau tuttugu
þar af þrjú banaslys og þrjú alvarleg.
Arið 2003 voru slysin alls 22 þar af
eitt banaslys og níu alvarleg. I f
hækkaði talan svo enn meira og slys-
in þá voru 23 talsins. Þá létu tveir líf-
ið og fimm slösuðust alvarlega. Auk-
in umferð þungra farartækja eykur
einnig slit á vegum og ógjörningur
að segja hversu mörgum slysum
það eitt og sér hafi valdið. Að sögn
Eymundar Runólfssonar, verkfræð-
ings hjá Vegagerðinni, skemmast
vegir frekar við þungar bifreiðar og
hættara við að hjólför myndist sem
síðar safni regnvatni. Hann segir
að eftir miklar kvartanir hafi Vega-
gerðin ákveðið breikkun allra nýrra
vega frá sex og hálfum uppí sjö og
hálfan metra. „Það var farið að
heyrast í fólki sem vildi breikkanir.
Aðallega vegna aukins þungaflutn-
ings og einnig vegna þess að menn
eru margir ekkert hrifnir af því að
þurfa að mæta þessu stóru bílum á
mjóum vegum."
Láttu (Irauminn
rætast.
Alklætt í ieðri eda
í slitsterku áklæöi
mikið iírval
hægindastóla
Þungaflutningar á þjóðvegum valda auknum slysum
Blaöiö/lngó
Aukin áhætta
Sigurður Helgason, verkefnastjóri
hjá Umferðarstofu, segir að þó að
ógætilegt sé að draga of margar
ályktanir sé alveg ljóst að aukinn
vöruflutningaþungi hafi meiri hættu
í för með sér. „Það liggur alveg ljóst
fyrir sé litið til banaslysa undanfar-
inna ára þá eru það ótrúlega oft slys
þar sem koma við sögu lítill bíll og
stór bíll þannig að stærðarmunurinn
og þyngdarmunurinn skiptir veru-
legu máli uppá afleiðingar óhappa.“
Hjálmar Björgvinsson, hjá Ríkislög-
reglustjóra, segir lögregluna vera vel
meðvitaða um stöðuna. „Þessir stóru
þungu bílar eru komnir meira uppá
veginn en áður og við gerum okkur
fyllilega grein fyrir því að það eykur
áhættuna án þess að ég vilji fullyrða
nokkuð. Við lítum frekar eftir þess-
um bílum. Ekki það að við viljum
meina að allt sé í ólagi heldur er lög-
reglan meðvituð um þennan vanda.“
Ástþór fyrir Hæstarétt
Villfá tvœr milljónir frá ríkinu fyrir gœslu-
varðhald vegna tölvupósts um yfirvofandi
hryðjuverk
Miskabótamál Ástþórs Magnús-
sonar á hendur ríkinu vegna gæslu-
varðhalds, sem hann sætti árið
2002, er komið fyrir Hæstarétt, en
áður hafði Ástþór tapað því fyrir
héraðsdómi. Gæsluvarðhaldið var
vegna tölvupósts, sem Ástþór sendi
um víðan völl, en þar kvaðst hann
hafa rökstuddan grun um yfirvof-
andi hryðjuverk gegn íslenskum
flugfélögum. Ástþór krefst tveggja
milljóna króna miskabóta fyrir að
hafa að ósekju sætt frelsissviptingu
i fjóra sólarhringa og verið allan tím-
ann í einangrunarvist. Gæsluvarð-
haldið og einangrunin hafi haft í för
með sér andlega þjáningu og miska,
sem hann eigi stjórnarskrárvarinn
rétt á að fá bættan með greiðslu
bóta. Hann .væri þekkt persóna í
þjóðlífinu og hefði um árabil unnið
að friðarmálum.
Ríkið telur hins vegar að Ástþór
hefði sjálfur valdið eða stuðlað að
þeim aðgerðum, sem hann reisir
kröfu sína á, og hafi mátt vera ljóst,
að það gæti haft alvarlegar afleiðing-
ar að senda umræddan tölvupóst.
Tölvupóstur um
yfirvofandi hryðjuverk
Ástþór sendi föstudaginn 22. nóv-
ember árið 2002 tölvupóst í nafni
samtakanna Friðar 2000, þar sem
sagði að samtökin hefðu rökstudd-
an grun um að ráðist yrði gegn ís-
lenskri flugvél með flugráni og/eða
sprengjutilræði vegna stuðnings ís-
lenskra stjórnvalda við hernaðarað-
gerðir í Asíu og flugs íslenskra flug-
félaga með vistir og búnað vegna
þeirra. Tölvupósturinn var sendur
til fjölda aðila, þar á meðal ráðherra,
þingmanna, embættismanna og fjöl-
miðla.
Ástþór var handtekinn af emb-
ætti ríkisögreglustjóra sömu nótt,
þar sem hann sat á bar í Reykjavík
og daginn eftir var hann yfirheyrð-
ur. Þar sagðist hann hafa sent um-
ræddan tölvupóst vegna draumsýna
sinna og innsæis og í tilefni frétta-
flutnings í erlendum fjölmiðlum
um að hugsanlega yrði ráðist á þá
sem styðji ólögmætt stríð gegn Irak
og Arabaþjóðum. Auk þess sagðist
hann hafa fengið tölvupóst frá nafn-
greindum manni þar sem rökstutt
væri hvers vegna íslenskar flugvél-
ar yrðu skotmörk vegna aðgerða ís-
lenskra stjórnvalda.
Ástþór var úrskurðaður síðar um
kvöldið í gæsluvarðhald til 29. nóv-
ember á þeirri forsendu að lögregl-
an teldi efni tölvupóstsins vera til
þess fallið að valda almennum ótta
og óöryggi fyrir flugsamgöngur og
kynni að varða við almenn hegn-
ingarlög. Ástþór kærði gæsluvarð-
haldsúrskurðinn til Hæstaréttar
sem felldi hann úr gildi 26. nóvemb-
er 2002.1 desember var svo gefin út
ákæra á hendur Ástþóri en hann var
sýknaður bæði í Héraðsdómi Reykja-
víkur og Hæstarétti. í framhaldinu
krafði hann ríkissjóð um miskabæt-
ur fyrir að hafa sætt gæsluvarðhaldi
að ósekju, en í héraðsdómi var rík-
issjóður sýknaður í janúar á þessu
ári. Gert er ráð fyrir að Hæstiréttur
kveði upp dóm sinn innan skamms.