blaðið - 03.11.2005, Page 10
10 li
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 blaöið
Og Vodafone:
Stuðla að
ábyrgri notkun
á GSM símum
Munum spila bæði vörn og sókn
- segir Skarphéðinn Berg Steinarsson stjórnarformaður FL Group í viðtali við Andrés Magnússon. Hann segir nýju
stjórnina samhenta, þó málsvara almennra hluthafa vanti í hana, ogsegir engin merki um heimildarlausa fjármuna-
flutninga í sumar. Gagnrýni, semfram kom á hluthafafundinum, segir hann eðlilega í almenningshlutafélagi.
Leiðarvísir um ábyrga og
örugga GSM notkun barna og
unglinga hefur verið gefinn
út. Bæklingurinn er ætlaður
foreldrum og fjallar um GSM
notkun barna og unglinga.
Fjallað er um hvernig nota má
farsíma með öruggum og ábyrg-
um hætti. Rætt er um hvenær
börn hafi náð þroska til að nota
farsíma, fjallað er um farsíma
og heilsu, hvað sé til ráða þegar
síma er stolið og hvernig eigi að
koma í veg fyrir einelti með far-
símum. Bæklingurinn er gefinn
út af Og Vodafone í samstarfi
við SAFT, sem er vakningarátak
um örugga og jákvæða notkun
barna og unglinga á netinu og
tengdum miðlum, sem unnið
er á vegum Heimilis og skóla.
Þorgerður Katrín Gunnarss-
dóttir menntamálaráðherra og
María Kristín Gylfadóttir for-
maður Heimihs og skóla voru
við afhendingu bæklingsins.
„Hluthafafundir eru lýðræðislegar
samkomur og eðlilegt að hluthafar
tjái sig um það sem þeir eru ánægð-
ir með og eins það, sem þeim finnst
miður. En það var ekki annað að sjá
en þeir væru flestir ánægðir með
hlutinn sinn.“
Nú var fækkað í stjórninni úr sjö
{fimm. Er ekki áhyggjuefni að nú
situr þar enginn málsvari almennra
hluthafa, sem er breyting frá fyrri
stefnu félagsins og í trássi við tilmæli
Kauphallarinnar?
„Jú, það er alveg rétt. Félagið er að
ganga í gegnum miklar breytingar
og við töldum að það væri mikil-
vægt að það væri öflugur og sam-
stæður hópur í stjórn félagsins. Ég
held að svona samsett muni stjórnin
klára þetta ferli mjög vel. Við erum
hins vegar með tvo utanaðkomandi
menn í varastjórn, tvo virta lög-
menn, og við teljum að það komi til
móts við þetta sjónarmið. En það er
vissulega rétt að þessi leiðbeining,
sem Kauphöllin kemur með, að það
er ekki orðið við henni. Við munum
náttúrlega gera grein fyrir því með
viðeigandi hætti.“
Jafet Ólafsson, framkvœmdastjóri
Verðbréfastofunnar, minntist áþað á
fundinum, að mikið kapp væri lagt í
sóknina, en vörnin væri vanrækt...
„í þessari stjórn eru nú bæði menn,
sem eru þekktir fyrir varfærni, og
eins aðrir, sem eru þekktir fyrir að
koma auga á tækifæri og nýta þau,
þannig að ég held að það sé gott
jafnvægi í stjórninni hvað það varð-
ar. Við munum bæði spila sókn og
vörn.“
Vilhjálmur Bjarnason spurði á
fundinum út ímeintafjármunaflutn-
inga í heimildarleysi og ég hjó eftir
því að þú nefndir að þess sæist ekki
stað í sex mánaða uppgjörinu. En
var það ekki einmitt málið? Mínar
heimildir herma að greiðslan hafi
verið látin ganga til baka, einmitt
til þess að það kæmi ekkifram (upp-
gjörinu.
„Það er bara rangt. Þegar endur-
skoðandi skoðar bókhald og fjár-
reiður félags skoðar hann það ekki
'á tilteknum tímapunkti, heldur
lítur á tiltekið tímabil. Ef það hafa
átt sér stað svona greiðslur, sem ég
veit raunar ekkert um annað en það
i-S Bílavarahlutir
Slæro Oneglc
173 70BI3 -4.800.-
17107104 4.990,-
181 0110 4 1.100.-
191 0110 1 0.900,-
201 OllOl 0.900.-
\(J£il(
1.800
1.990
0.290
7.190
7.900
AÐALNÚMER SÍMI 520 8000 Dí í .Vclrctri í * • ‘ * «
SKEIFUNNI 11 RVlK. • SÍMI 520 8001 SMIÐJUVEGI 68 KÓP. • SÍMI 520 8004
DRAUPNISGATA 1 AK • SlMI 520 8002 BlLDSHÓFÐA 16 RVlK. • SÍMI 520 8005
DALSHRAUN113 HFN. • SÍMI 520 8003 EYRARVEGI 29 SELF. • SlMI 520 8006
www.stllling.is
• '■■■':..
sem ég hef séð í fjölmiðlum, á það
að koma fram við endurskoðun á
reikningum."
En er ekki mikilvægt fyrir almenn-
ingshlutafélag að þegar slíkur kvittur
kemst á kreik - hvort sem hann er
réttur eða rangur - að eyða öllum
vafa sem fyrst?
„Jújú, enda hef ég sagt að endur-
skoðun á bókhaldi og fjárreiðum fé-
lagsins vegna þessa árs hefst á næstu
dögum. Þá verður vafalaust kannað
hvort eitthvað er til í þessu.“
Var skoðað sérstaklega af stjórn-
inni hvort einstakir stjórnendur FL
Group hafi komið að kaupum Fons á
Sterling á sínum tíma?
„Mér dettur ekki í hug að svo sé.
Það er ekkert kannað á hverjum
morgni, sem menn mæta í vinnuna,
BlaÖið/lng 6
hvort þeir hafi eitthvað annað á
prjónunum en að sinna þeim verk-
efnum, sem þeim eru falin. Ég veit
ekki til þess að það sé nokkurt tilefni
til þess að vera með slíkar getgátur.
Það er ekkert í starfsemi félagsins,
sem mér er kunnugt um, sem bend-
ir til þess að hlutirnir séu með öðr-
um hætti en þeir eiga að vera.“
Við höfum horft upp á mjög örar
skipulagsbreytingar hjá félaginu á
undanförnum misserum. Eru líkur
á því að skipan mála sé að komast í
fast far?
„Já, það ætla ég að vona. Við höf-
um mikla trú á þeim breytingum,
sem nú hafa verið staðfestar á hlut-
hafafundi. Nú er bara að koma þeim
fyrirætlunum í framkvæmd> ■
þegar árangurinn skiptir máli
■ÖFLUGT FITUVRENNSLUE
■AUKIN ORKA Á/EFINGUM
• HELDUR ÞÉR VAKANDIVIÐ
- LESTUR, - AI^STUft^K...
Útsölustaðir: Apótekog R^sustóðum
www.medico.is
Akralind 3 - 201 Kóp
Kristján (luðmundsson. trésmiöur og varaborgarfulhrúi
er lormaöur Verkalyðsraös Sjálfstæðistlokksins -
Hann cr í skipulagsráði, og iramkvæmdaráði Rcykjavíkurborgar
Sýnum styrk sjálfstæðismanna oo tökunt þátt
t prófkjörinu - taktu alstöðu og vertu með
(MMi